Frjáls verslun - 01.01.1966, Síða 11
Hæstikaupstaður á ísafirði um 1910
Við tækifæri sem þetta er margs að minnast, og
vandi að velja og hafna.
Ég mun því bregða á það ráð, að rekja hér, eftir
því sem unnt er í stuttu máli, tildrög þess, að reglu-
gjörðin frá 26. janúar 1866 hlaut staðfestingu kon-
ungs, en um allt það, sem ég verð að láta ósagt, vísa
ég til afmælisrits, sem Jóhann Gunnar Ólafsson,
bæjarfógeti, hefir í smíðum fyrir bæjarstjórnina, og
út mun koma á þessu ári. Hefi ég haft tækifæri til
að kynna mér þetta rit og tel, að það verði bæði
girnilegt til fróðleiks og skemmtilegt aflestrar.
Við skulum þá, háttvirtir tilheyrendur, gera
okkur nokkra grein fyrir því, hvernig byggðin í
Skutulsfirði þróaðist stig af stigi, unz verzlunar-
staður var risinn hér á Skutulsfjarðareyri, sem þótti
það álitlegur, að ástæða var talin til að veita hon-
um full kaupstaðarréttindi.
Landnáma getur þess að Helgi Hrólfsson úr
Gnúpufelli og Þórólfur brækir hafi numið land í
Skutulsfirði. í Gísla sögu Súrssonar er sagt að Odd-
ur Örlygsson hafi búið á Eyri, en hann hafði tekið
austmennina tvo, Þóri og Þórarinn, á vist.
Þorgrímur goði Þorsteinsson felldi þessa menn
þar sem síðan heitir Dagverðardalur og Austmanns-
fall, og þekkja allir hér um slóðir þau örnefni.
Sennilegt er að prestssetur hafi verið á Eyri frá
því að kristni var lögtekin, og að nokkrir bæir hafi
byggzt hér við fjörðinn þegar á landnámsöld, en
byggðin síðan haldizt óbreytt að kalla öld eftir öld.
Skilyrðin til landbúnaðar hafa þó ekki ráðið mestu
um þessa byggð, heldur nálægð fiskimiðanna og
höfnin við Skutulsfjarðareyri og Skipeyri. Hefir hún
frá fyrstu tíð verið talin ein hin allra bezta á landinu.
Af því leiddi einnig, að staðurinn varð snemma
verzlunarmiðstöð, og fiskveiðar urðu drjúgur þátt-
ur í lífsafkomu fólksins.
í manntalinu árið 1703 eru 16 býli talin í Skut-
ulsfjarðarhreppi, sem þá náði yfir Arnardal, Skutuls-
fjörð og Hnífsdal og var talinn með V.-ísafjarðar-
sýslu. Alls voru þá 228 manns í hreppnum, þar af
19 á Eyri og Eyrar afbýli.
Verzlunin hefir öldum saman verið stunduð af
erlendum lausakaupmönnum og erlendum fiski-
mönnum, og vitað er, að hér við ísafjarðardjúp
verzluðu Þjóðverjar, Englendingar og trar allt fram
á daga dönsku Einokunarverzlunarinnar, sem hófst
árið 1602. M. a. s. er þett getið í Einokunarsögunni,
að fslendingar hafi sjálfir tekið að bera sig eftir
björginni, og að Eggert Hannesson, lögmaður, hafi
fengið verzlunarleyfi í Skutulsfirði og Dýrafirði ár-
ig 1579, en að hann muni hafa rekið þar verzlun í
félagi við Hamborgara.
í upphafi einokunartímabilsins var Skutulsfjörð-
ur ein þeirra 20 hafna, sem ákveðið var að siglt
FR.TÁLS VF.RZT.UN
u