Frjáls verslun - 01.08.1971, Side 8
Matvöruverzlunin er of dreifð á höfuðborgarsvceðinu.
vörukaupmanna, auk þess að
SÍS hefur rekið í Reykjavík
birgðastöð fyrir kaupfélögin.
Með þessum samtökum hefur
verið ste'fnt að samstæðari inn-
kaupum og einfaldari vörudreif-
ingu til verzlana, í einu orði
sagt hagræðingu á þessu sviði.
Ljóst er, að þrátt fyrir þessar
aðgerðir, standa ýmsir „úti í
kuldanum“. og þörf er enn víð-
tækari aðgerða meðal kaup-
manna. bæði á sviði innkaupa
og birgðahalds og með tilliti
til greiðsluhátta.
Athuganir FV virðast leiða
í Ijós, að mesti vandinn í sam-
bandi við frekari aðgerðir, sé
sá, að matvöruverzlun á höfuð-
borgarsvæðinu sé of dreifð. Hin
mikla dreifing sem átt hefur
sér stað, stafar af ýmsum or-
sökum, en þungar eru á met-
unum ástæður sprottnar frá nú-
gildandi verðlagningarreglum
og skorti á aðhaldi sveitarfélag-
anna varðandi skipulag verzl-
unar af þessu tagi. Verzlanirn-
ar eru nálægt 150, að meðtold-
um verzlunum KRON, en af
þessum fjölda eru æði margar
örsmáar verzlanir, jafnvel á
okkar mælikvarða, sem engar
venjulegar rekstursreglur ná
yfir. Við þetta bætist síðan. að
Mjólkursamsalan rekur tugi
mjólkurbúða, sem selja mest
notuðu mjólkurvörurnar og,
rýrir það að sjálfsögðu enn
rekstursgrundvöll eðlilegra og
vel búinna matvöruverzlana.
Það er svo aftur á móti ör-
ugglega mjög viðkvæm spurn-
ing, hvort unnt sé að brjóta
málið til mergjar frá þessari
hlið, og vissulega þýðir ekki
um það að tala fyrr en gert
hefur verið ráð fyrir því í að-
búð matvöruverzlunar, að hún
geti borið sig við venjulegar
aðstæður og miðað við almenn-
ar kröfur nútímafólks um vöru-
úrval og þjónustu.
A meðan beinist áhugi kaup-
manna einkum að auknu sam-
starfi í viðskiptum við heild-
verzlanir, bæði um vörubirg-
ingu og greiðsluhætti, svo og
saimstarf um fræðslu og fleira
á þessum sviðum. En aukið sam
starf af þessum toga er veru-
legum vandkvæðum bundið,
vegna þess hve verzlanirnar
eru í rauninni ákaflega ólíkar í
eðli 'sínu. vegna gífurlegs stærð-
armunar og af fleiri ástæðum,
og einnig vegna þess skipulags-
skorts, sem fengið hefur að
hreiðra um sig til skamms tíma.
Þess vegna er hætt við, að
ekki verði miklu meiru um þok-
að í átt til aukinnar hagræð-
ingar, fyrr en almenn aðbúð
og skipulag matvöruverzlunar-
innar verður tekið til endur-
skoðunar bæði af hájfu ríkis og
sveitarfélaga og svo verzlunar-
innar sjálfrar.
8
FV 8 1971