Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1972, Page 10

Frjáls verslun - 01.04.1972, Page 10
Flugfélögin: Gagnkvæm eignaraðild hefur verið rædd Bœði flugíélögin hafa haft augastað á Hótel Esju. Flugfélag íslands og Eimskip eru líklegir kaupendur. Ekkert mun hafa miðað áfram að undanförnu í viðræð- um fulltrúa Flugfélags íslands og Loftleiða um nánari sam- vinnu eða hugsanlega samein- ingu félaganna. Engin formleg tilkynning hefur verið gefin út um gang viðræðna, en kunn- ugir telja, að aðilar standi fjær því marki, sem stefnt er að, en fyrir síðustu áramót, þegar fulltrúar beggja félaganna voru bjartsýnir á, að jákvæð niðurstaða af umræðunum næðist. Forstöðumenn beggja félag- anna munu telja skynsamlegt að láta sem minnst frá sér fara opinberlega á þessu stigi og forðast að ýfa upp gömul sár, en halda enn opinni leið til að taka málið upp á nýjan leik. Þegar bezt gekk í vetur var álitið, að samkomulag myndi takast um gagnkvæma eignar- aðild og að félögin skipuðu menn í stjórn hvors annars, en því mun jafnframt hafa átt að fylgja ákvörðun Loftleiða um að hætta Norðurlandaflugi sínu. MIKLAR EIGNIR LOFTLEIÐA Eignir félaganna voru mjög á dagskrá í þessum viðræðum framan af. Stóðu Loftleiðir þar betur að vigi með margs konar fjárfestingu sinni á liðnum ár- um hér heima og erlendis. Þátttaka Flugfélags íslands í alþjóðasamtökum flugfélaga, IATA, og marg háttuð sam- vinna við einstök erlend flug- félög innan samtakanna, styrkti hins vegar aðstöðu þess í viðræðunum við Loft- leiðir, sem standa utan IATA svo sem kunnugt er. Auk þeirrar samvinnu, sem Flugfé- lag íslands hefur haft upp á síðkastið við brezka flugfélag- ið BEA á flugleiðinni til Bret- lands mun sterklega hafa kom- ið til greina að taka upp náið samband við SAS og vestur- þýzka flugfélagið Lufthansa Samningaviðræður við SAS um flugið milli Norðurlanda, íslands og Grænlands, hafa lengi staðið yfir og stefnt hef- ur verið að því að komast að samkomulagi um isvonefnt ,,pool“, þ. e. a. s. samræmingu áætlana með beztu nýtingu far- kosta fyrir augum og bróður- lega skiptingu tekna og kostn- aðar milli félaganna eftir ákveðnum reglum. Svipað fyr- irkomulag mun einnig hafa komið til tals í samstarfi við Lufthansa um flugið til Frank- furt, en þó með þeim hætti, að Lufthansa sendi farþega sina með flugvélum Flugfélags- ins, en ekki í eigin farkostum fynst um sinn. IIÓTEL ESJA TIL SÖLU En Flugfélagsmenn hafa líka verið að líta í kringum sig_ til að bæta eignalega stöðu sína. Þar hefur Hótel Esja verið einna skýrast inni í myndinni. Raunar munu Loftleiðamenn líka hafa sýnt áhuga á að eign- ast hótelið, en í þeirra röðum telja menn þó nóg hafa verið aðhafzt í hótelmálum á undan- förnum árum og vilja að Hótel Loftleiðir sýni betri fjárhags- lega afkomu eftir helmings- stækkunina í fyrra áður en lengra er haldið á sviði hótel- mála. Eigendur Hótel Esju, þ. e. fjölskylda Kr. Kristjánssonar, hefur áhuga á að selja hótelið og hafa fulltrúar Flugfélagsins og Eimskips verið að kanna málið. Það væri tímanna tákn miðað við þróun ferðamála víða erlendis og fordæmi Loft- leiða í hótelrekstri hér heima, að flutningafyrirtæki á borð við Flugfélag íslands og Eim- skip rækju hótel í Reykjavík. Flugfélagið er enn í leiguhús- næði með skrifstofur sínar vestur í Bændahöll, og með þeirri stækkun, sem ráðgerð er á Hótel Esju til austurs, gætu Flugfélagsmenn fengið góða aðstöðu til skrifstofuhalds í hluta byggingarinnar. 10 FV 4 1972

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.