Frjáls verslun - 01.04.1972, Blaðsíða 9
Erlendir laxveiðimenn borga
22.000 kr. fyrir daginn
Heildarvelta SVFR áætluð 35 millj. kr. á árinu
Stangaveiðifélag Reykjavík-
ur hefur beitt sér fyrir að laða
bandaríska stangaveiðimenn til
fslands í sumar, og hefur þeim
verið gefinn kostur á að veiða
lax í Norðurá. Borga þeir
22.000 krónur fyrlr daginn í
ánni. í því er innifalin þjón-
usta, svo sem fæði, leiðsögu-
menn og akstur milli Reykja-
víkur og árinnar. Af jicssu
verði fær ferðaskrifstofa, sem
selur laxveiðiferðina, 20% í
umboðslaun.
Það eru 11 stengur á tíma-
bilinu 27. júní til 9. ágúst, sem
seldar verða vestan hafs. Að
sögn Ásgeirs Ingólfssonar hjá
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur
eru það tvær ferðaskrifstofur
í New York, ein í Chicago og
önnur í Pittsburg, sem selja
þessar ferðir. Munu þær senda
hingað 70 veiðimenn á þessu
sumri.
Ástæðan fyrir því, að
Stangaveiðifélagið hefur snúið
sér til erlendra aðila með sölu
á laxveiðileyfum í Norðurá, er
sú, að leigan á ánni hefur
hækkað gífurlega eftir endur-
skoðun á leigusamningi við
landeigendur, sem lauk í jan-
úar. Gjaldið, sem nú gildir, er
7 milljónir fyrir árið, en var
í fyrra 2 milljónir. Innlendir
laxveiðimenn, sem hyggjast
fara í Norðurá í sumar, þurfa
að greiða allt að 7900 krónum
Þrátt fyrir aukna samkeppni
um • útlit, sem Morgunblaðið
heyir við hin dagblöðin eftir
að offsetprentsmiðja Blaða-
prents tók til starfa, hefur
auglýsingum í Morgunblaðinu
fjölgað stöðugt upp á síð-
kastið. Vakti það athygli fyrir
iskömmu, er 2. síða blaðsins,
sem er ein af hefðbundnum
fréttasíðum þess, var hálffyllt
af auglýsingum.
En það eru ekki aðeins aug-
lýsingarnar, sem aukizt hafa,
heldur er það athyglisvert, að
þetta stærsta blað landsins hef-
ur jafnt og þétt bætt við sig
áskrifendum á síðustu mánuð-
um, þannig að í febrúar sl.
bættust t. d. við 600 nýir
áskrifendur að blaðinu. Fjölg-
un áskrifenda Morgunblaðsins
nam um 5% í fyrra, sem er
veruleg aukning miðað við þá
útbreiðslu, sem blaðið hafði
fyrir. Morgunblaðsmenn bíða
þess nú með eftirvæntingu
að eintakafjöldi blaðsins nái
40.000 daglega, en mjög
skammt mun vera í það. Fyr-
ir fimmtán árum var upplag
blaðsins um 28.000 eintök á
dag.
Hjá Morgunblaðinu er verið
að hefja undirbúning að offset-
prentun. Vélin er komin til
landsins og er gert ráð fyrir,
fyrir stöngina utan hins áður-
nefnda tímabils, sem einkan-
lega er ætlað útlendingunum.
Til samanburðar má geta þess,
að veiðileyfi í Elliðaánum kost-
ar 2500 kr. fyrir eina stöng í
hálfan dag.
Fyrir rúmum fimm árum
var heildarvelta SVFR innan
við 2 milljónir króna árlega.
Árið 1971 var veltan rúmlega
16 milljónir, en verður á yfix--
standandi rekstrarári 35 millj.
Or prentsmiðju Morgun-
blaðsins.
að prentun í henni hefjist í
sumar og verður byrjað á Les-
bók, en sjálft blaðið verður að
líkindum unnið í þessari nýju
vél á komandi veti'i.
IVIorgunblaðið senn
í 40.000 eintökum
FV 4 1972
9