Frjáls verslun - 01.04.1972, Blaðsíða 55
Til Bangkok með SAS
Eftir að hafa hugsað mig
svolítið um og litið á nokkra
ferðabæklinga hef ég ákveðið
að benda yður á ferð með SAS
til Bangkok. Frá Kaupmanna-
höfn er lagt af stað kl. 1500
og lent í Bangkok kl. 0935 dag-
inn eftir. Þetta er sérstaklega
þægilegt flug með þotu af
gerðinni Douglas DC-8. Aðeins
ein millilending er á leiðinni,
en það er í Tashkent í Rúss-
landi og viðdvöl þar er um
það bil 45 mínútur.
Flugvöllurinn í Bangkok er
ásamt Tokíó-flugvelli stærsti
flugvöllur í Austurlöndum
fjær. Þessi annar dagur ferðar-
innar er til frjálsra afnota og
vegna hins mikla tímamismun-
ar verður lítið úr framkvæmd-
um, en gott er að fá sér hress-
andi bað í sundlaug hótelsins.
Næstu tvær vikur er dval-
izt í Bangkok og tímann verður
að nota vel, enda margt að sjá
í þessari fögru og sérstæðu
borg. Hinn fljótandi markað-
ur er eitt hið fyrsta, sem skoð-
að er, og bezt er að gera það
snemma morguns, meðan sól-
in er enn lágt á lofti og mest
um að vera á markaðnum. Far-
ið er með vélbát eftir hinum
ýmsu leiðum Chao Phya fljóts-
ins, en á bökkum þess vaxa
litskrúðugar orkideur eins og
fífill í haga. Hitinn eykst með
hækkandi sól og er því bezt
að vera kominn heim á hótel
um hádegið, því að oft er þá
um 35 stiga hiti og loftslagið
er rakt.
Síðari hluta dagsins er bezt
að nota til innkaupa, en í Bang-
kok, eins og í öðrum austur-
Jónas Jónasson hjá SAS.
landaborgum, má gera góð
kaup á ýmsum varningi, sem
kostar of fjár hér á Vestur-
löndum. Má þar nefna hið al-
kunna Thai-silki, postulín og
ýmsa skartgripi. Á kvöldin
þarf engum að leiðast, og hægt
er að velja milli rólegra mat-
staða, með austurlenzkum mat,
og margs konar næturklúbba,
því að Bangkok er dæmigerð
„24-tíma“ borg.
Þegar svona langt er komið
er freistandi að líta eilítið
meira í kring um sig og frá
Bangkok er greiðfært til allra
hinna freistandi staða Austur-
landa. Nepal, Burma, Hong
Kong, Malasía svo eitthvað sé
nefnt, og vandi er að velja,
en ég hef kosið þriggja daga
ferð til Nepal með Thai-Inter-
national. Flogið er yfir hæstu
tinda Himalajafjalla og þrátt
fyrir stutt flug er eins og að
koma í annan heim þegar lent
er í höfuðborginni Kathmandu.
Þarna er allt miklu frumstæð-
ara en í Thailandi og um leið
mjög heillandi. Allir dagar í
þessari ferð eru fyrirfram
skipulagðir og tíminn flýgur
áfram í þessum undraheimi
austursins. Fyrst er sjálf borg-
in skoðuð og gefinn góður tími
til kaupa á alls konar hand-
gerðum varningi, sem svo
mjög er eftirsóttur. Einnig eru
skoðanaferðir um fjallahéruð
Nepal og bær hinna heilögu
„Bhaktapur“ sóttur heim.
Til Kaupmannahafnar er
svo haldið að morgni dags og
komið kl. 1800 sama dag, en
tímamismunur er sex klukku-
stundir.
Af hverju ekki
Færeyjar?
„Færeyjar, vinin í Atlants-
hafi“ er lítill, vel skrifaður og
fróðlegur bæklingur um Fær-
eyjar, útgefinn af Flugfélagi
íslands. Þar er m. a. svo til
orða tekið, „að á eyjum þess-
um búi einhver smæsta menn-
ingarheild jarðar“, en íbúatal-
an er í dag röskar 40.000
manns.
Síðan flugsamgöngurnar hóf-
ust hefur ferðamannastraum-
urinn milli Atlantshafsvinj-
anna tveggja aukizt ár frá ári
og til þess leitt, að Flugfélag
íslands áætlar í sumar að
halda uppi þremur ferðum
vikulega. Sérfargjald, sem
gildir í minnst 6 daga og mest
tvær vikur, er kr. 6.567,00.
Haraldur Jóhannsson, sölu-
stjóri hjá Flugfélagi Islands.
FV 4 1972
55