Frjáls verslun - 01.04.1972, Blaðsíða 15
ur einmitt skort til þessa, þótt
þær séu forsenda aukinna
tengsla Afríkuríkja. Þannig
liggur fljótasta leiðin fyrir
kaupmann frá Casablanca til
Kairo enn um París eða Róm,
frá Dar-es-salem í Tanzaníu til
Kinshasa í Kongó er fljótast
að fara um Jóhannesarborg í
S.-Afríku. Fjarritunarsamband
milli Nairobi og Khartum í
Súdan fer um London, og að-
eins 16 aðildarríkja OAU hafa
beinar flugsamgöngur sín á
milli.
„Þegar tengslin skortir,
verðum við að skapa þau,“
sagði Kenyatta. Fyrstu vísar
þeirra eru nú þegar til stað-
ar. Sex ríki hafa ráðagerðir
um þjóðveg yfir Afríku, sem
tengi hafnarborgina Mombasa
í Kenía,' við Indlandshaf, yfir
7000 kílómetra leið við At-
lantshafið hjá Lagos, höfuð-
borg Nígeríu. Að þessum fram-
kvæmdum standa Úganda,
Kenía, Zaire, Kamerún, Níger-
ía og Miðafríkulýðveldið.
ERFIÐ SAMBÚÐ
Fjórtán þúsund menn úr
verkfræðideildum kínverska
hersins eru að leggja teina fyr-
ir járnbrautarlínu milli Lús-
aka og Dar-es-salam, 1850
kílómetra veg. Vestur-þýzk
byggingafyrirtæki vinna að
endurbótum á vegakerfi Níger-
íu, og bandarískir vegagerðar-
verktakar eru að tengja Zam-
bíu við Tansaníu í austurhluta
álfunnar og við Botsvana í
suðri.
Forsætisráðherra Nígeríu,
Yakubu Gowon, leggur til að
fyrsta þrepið í stofnun „stórs
efnahagsbandalags Afríku, sem
felli niður allar hömlur á
verzlun milli Afríkuríkja“,
verði svæðisbundin efnahags-
bandalög. Til þessa hafa til-
raunir til að gera viðskipta-
samninga á ákveðnum svæð-
um álfunnar nær alltaf farið
út um þúfur.
Til dæmis skýrði forseti
Tsad, Francois Tombalbaye, í
febrúar síðastliðnum frá úr-
sögn ríkis síns úr fjölþjóðlega
flugfélaginu Air Afrique.
Ástæðan til úrsagnarinnar var,
að Tombalbaye móðgaðist,
þegar flugfélagið flutti svæðis-
höfuðstöðvar sínar frá Duala
í Kamerún til Libreville í
Gabon, en ekki til Tsad.
Kamerún hafði strax í fyrra
hætt þátttöku í flugfélaginu.
Þegar fulltrúar EBE ætluðu
í febrúar í fyrra að hitta að
máli í Nairobi fulltrúa þeirra
ríkja í Afríku, sem hafa tengsl
við EBE, neituðu fulltrúar
Úganda í fyrstu að ganga í
ráðstefnusalinn. Það var ekki
fyrr en búið var að setja mynd
af Amin fyrir framan inngang-
inn í stað myndar af fyrrver-
andi forsætisráðherra Úganda,
Milton Obóte, að fulltrúarnir
gengu til sæta sinna á ráð-
stefnunni.
Þrátt fyrir alla öfundina og
rifrildið vona framfarasinnað-
ir Afríkumenn, að Afríkurík-
in geti komið fram sem ein
heild í samningum ,,svörtu“
ríkjanna og EBE, þegar fjall-
að verður um framlengingu
aukaaðildarsamninga þeirra
við EBE-ríkin á næstu árum,
en samningarnir gilda nú til
1975.
„Það mundi vera mikilvæg-
asta skrefið í átt til einingar
Afríku,“ ritar blaðamaðurinn
og forsetasonurinn í Kenía,
Peter Kenyatta.
Rcrfkerfi
Rafkerfi
°g
dieselkerfi
SMITIIS K'LG
Mœlar og miðstöðvar
Rafkerti
og
hitakerti
SKIPHOLTI 35
BifreiSalökk
GIRLING
hemlakerfi
og
höggdeyfar
SÍMAR 81350-2
FV 4 1972
15