Frjáls verslun - 01.10.1972, Side 9
í STUTTIJ MÁLI...
§ llvaft cru i’járlö"?
Fj árlagafrumvarpið fyrir áriS 1973 er nú
til umræðu á Alþingi. Niðurstöðutölurnar
eru rösklega 20 milljarðar. Enginn gerir
ráð fyrir öðru en talan eigi eftir að hækka
í meðförum þingsins og munu fjárlögin
nema rösklega þriöjungi þjóðartekna, þeg-
ar allt kemur til alls.
Þótt fjárlögin séu rædd í þinginu, mætti
gjarnan stofna til umræðna um þau utan
þingsins, því að erfitt er að finna í frurn-
varpinu samræmda heildarstefnu í fjár-
málum ríkisins. Væri t.d. ekki kjörið fyrir
Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
(áður Hagfræðifélagið) að efna árlega til
fundar um fjárlögin og fá þá fjármálaráð-
herra á sinn fund?
§ Eiigleiitlingai* oí*
Finnar Iikii*
Engin skoöanakönnun hefur verið gerð á
Islandi um afstöðuna til Efnahagsbanda-
lagsins. I Gallup-könnun á vegum finnska
blaösins Sanomat kom í ljós, aö 19'X Finna
voru á móti gerðum, en óstaöfestum, við-
skiptasamning Finna við EBE, 31% voru
óákveðin, en 50% meö. Hver yrði afstaða
íslendinga?
§ Aukin sókii aft
viðskiptadeild
Á annað hundrað manns hófu nám í
viskiptadeild Háskóla íslands á þessu
hausti, sem er fjórðungsaukning frá fyrra
ári. Skýringar á þessu aukna aðstreymi eru
eflaust margar, en til samanburðar má
geta þess, að árið 1968 innrituðust rösk-
lega 40. í fyrsta lagi hefur eftirspurn ver-
ið meiri en framboð undanfarin ár, sem
m.a. má rekja til þess að meira er unnið
að hagskýrslugerð og hagrannsóknum en
áður og viðskiptafræðingar hafa gengið
inn 1 störf, sem aðrir unnu áður. Mörg
fyrirtæki og samtök ráða nú til sín viö-
skiptafræðinga. í ööru lagi er kennsla í
hagfræðigreinum orðin almennari í
menntaskólum og ekki óeðlilegt, að þeir,
sem komast í nánari kynni við hagfræði á
því stigi, haldi áfram í viðskiptadeild. i
þriðja lagi fer aðsókn 1 einni deild eitthvað
eftir því, hvað erfitt er að komast í aðrar
deildir og ljúka námi þar, og því, hvernig
atvinnuhorfur eru í ööru námi. í fjórða
lagi er orðiö dýrara að fara beint í nám
erlendis en áður. I fimmta lagi getur ver-
ið, að orðstír deildarinnar sé orðinn meiri
og að fleiri komi til.
f ilfliílinar liafa liækkaA
a lieimsinarkaði
Flestir málmar hafa hækkað mikið í
verði á heimsmarkaöi undanfarin ár og
búizt er við frekari hækkun á t.d. kopar
og tini. Álmarkaðurinn hefur þó verið
þungur, en þó hefur Alcoa nýlega hækkað
nokkrar tegundir afurða sinna í sérstökum
gæðaflokkum. En vart er búizt við nokkr-
um hækkunum á áli á þessu ári sökum
mikilla óseldra birgða.
• i\ý logaraölil hafin
Frá því hefur verið skýrt 1 fréttum, aö
fyrsti skuttogarinn af þeim nýju sé kominn
til landsins og margir hafa gert sér ferð
niður að höfn til að skoða skipið. Þykiv
mönnum sem aðstaða um borð sé öll betri
en veriö hefur. Skipið mun brátt halda á
veiðar, en eigendur hafa látiö í ljósi ugg
um væntanlega afkomu, enda bæði til-
kostnaður farið hækkandi og afli rýrnandi
aö undanförnu. Reyndar munu sumir út-
gerðarmenn, sem von eiga á nýjum skut-
togurum, vera að velta því fyrir sér, hvort
þeir eigi yfirleitt að senda skipin út við
núverandi aðstæður. En til þess aö meta,
hvort rétt sé aö gera skipin út þjóðhags-
lega séð, verður m.a. að líta á alla vinnslu-
rásina, því að hugsanlegt er að frystingin
geti bætt upp taprekstur togaranna. Eins
og er, virðist það hæpið, enda er þetta
úrlausnarefni, sem stjórnvöld glíma viö
um þessar mundir.
FV 10 1972
9