Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1972, Blaðsíða 39

Frjáls verslun - 01.10.1972, Blaðsíða 39
Hver er staðan í Efnahagsbandalagsmálum? eftir dr. Guðmund IHagnússon, prófessor Efnahagsbandalag Evrópu hefur verið ofarlega á baugi í mörguni löndum að undan- förnu vegna fyrirhugaðrar stækkunar handalagsins. Ehki hvað sízt hafa umræður orðið heitar 1 Noregi og Danmörku. Hér á landi hafa hin mismun- andi úrslit þjóðaratkvæða- greiðslnanna í þessum tveim- ur löndum vakið einna mesta athygli. en einnig hefur nýlega verið gengið frá viðskiptasamn- ingsuppkasti milli íslands og bandalagsins. Þessi samningur hefur^ enn ekki verið samþykktur á Al- þingi og Efnahagsbandalagið hefur gert fyrirvara fyrir sitt leyti um, að viðunandi lausn verði ao fást á landhelgismál- inu, áður en samningurinn tek- ur formlega gildi. TILGANGUR EFNAHAGS BANDALAGA OG HELZTU SAMVINNUÁFANGAR í EVRÓPU. Erfitt er að átta sig á því, hvað fellst í EBE, NORDEK eða EFTA o.s.frv., nema menn viti hvaða tilgang víðtækt efnahagssamstarf hefur. Enda þótt vitna megi til margra bóka i þessum efnum, er góð vísa aldrei of oft kveðin. Þess vegna mun hér farið nokkrum orðum um aðalhugsunina að baki fríverzlun og fastmótaðra efnahagssamstarfi. Kenningar um hagkvæmni hinnar alþjóðlegu verkaskipt- ingar og frjálsa verzlun má rekja til iðnbyltingarinnar á Englandi. Urðu þær arftakar merkantílismans, eða gullsöfn- unarstefnunar, og kenningin um hagkvæmni verkaskipting- arinnar var hugmyndafræðileg- ur bakhjarl þess tímabils frjálsrar verzlunar, sem ríkti seinni hluta 19. aldar og allt fram að heimsstyrjöldinni fyrri. Að vísu hafði sameining ýmissa landssvæða í Evrópu átt sér stað nokkru áður. Þann- FV 10 1972 ig var sameining þýzku ríkj- anna í eitt tollabandalag árið 1834 — Zollverein — merkur áfangi. Mikill afturkippur kom í fríverzlun frá heimsstyrjöld- inni fyrri og þangað til eftir bá síðari. Þannig nam t. d. útflutningur og innflutingur Bretlands um 30% af þjóðar- framleiðslunni fyrirheimsstyrj- öldina fyrri, en um 17% rétt eftir þá seinni. Sömu til’hneig- ingu má sjá af verzlunartölum annarra Janda Vestur—Evrópu. Eftir 1945 hefur þróunin í átt til frjálsari samskipta orðið ör. Ekki er unnt að rekja allt það, sem skeð hefur á þessu sviði, en helztu áfangarnir eru GATT, OEEC, OECD, Kola- og stálsamsteypan, Rómarsáttmál- inn 1957 og EBE, EFTA 1960, umræður um NORDEK og nú nýverið útvíkkað Efnahags- bandalag. Sú upprunanlega kenning, að nægilegt væri að sleppa öllum tollum til að tryggja hag- kvæmni hinnar alþjóðlegu verkaskiptingar, á sér nú fáa áhangendur. Margoft hefur verið bent á og reynslan hefu- ur sýnt, að einstök ríki geta rekið innanlandsstefnu, sem stendur fríverzlun fyrir þrif- um og mismunandi ákvæði, reglur og lög á ýmsum svið- um geta hindrað frjálsan flutn- ing vöru og þjónustu milli landa, hvaðþá heldur frjálsan flutning vinnuafls, fjármagns, hugmynda og þekkingar. En tilgangurinn með efnahagssam- starfi í fastara formi er ein- mitt að tryggja samræmdar reglur á sem flestum sviðum og reyna að koma í veg fyrir handahófskenndar ákvarðanir einstakra landa í eiginhags- munaskyni, sem reyndar oft, koma niður á þeim seinna í einni eða annarri mynd. Nú er það staðreynd. að mestöll utanríkisviðskipti í heiminum eiga sér stað milli háþróaðra landa innbyrðis, þ.e. 70—80 % vörustreymis er milli þeirra, en 20—30% falla i hlut vanþróaðra ríkja. Einnig er greinilegt, að viðskiptin hafa vaxið örar í þróuðu ríkjunum en þróunarlöndunum, og innan þróunarríkjanna hefur vöxtur- inn orðið örastur hjá samstarfs- bandalögum eins og EBE og EFTA. Mörgum finnst þessi til- hneiging miður fyrir þróunar- löndin, sem vonlegt er. Hins vegar hefur alls ekki verið sýnt fram á, að staða þróun- arlandanna hefði ekki orðið jafn léleg, ef til efnahags- bandalaganna hefði ekki verið stofnað, því að enda þótt verzl- un innan bandalaganna styrk- ist, hlýtur almenn hagvaxtar- aukning þeirra einnig að leita út á við. AUKNING ÞJÓÐARFRAM- LEIÐSLU 220% Á 12 ÁRUM. Svo teknar séu nokkrar töl- ur, þá steig samanlögð þjóðar- framleiðsla í Efnahagsbanda- lagslöndunum úr 163,4 millj- örðum dollara í 427,4 milljarða dollara frá 1958—1969, eða yf- ir 220% (á hlaupandi verð- lagi). 1 Noregi var aukningin á sama tíma 140% í Bretlandi 70%, 110% í Bandaríkjunum og 75% í EFTA sem heild. Framleiðsluaukningin á mann 1959—1969 var sem hér segir: EBE 5,5% EFTA 3,7% USA 4,3% Japan 11,4% Heildarinnflutningur EBE jókst um 170% á hlaupandi verðlagi frá 1958—1968, en út- flutningur um 180%. Á sama tíma jókst verzlun milli land- anna innbyrðis um 320%. Vert er að veita þessu breytta mynztri athygli. Einnig má benda á, að einmitt vegna auk- innar fríverzlunar hafa við- skipti landa í Vestur—Evrópu aukizt tiltölulega hraðar en þjóðarframleiðslan, þ. e. hlut- fallið á milli viðskiptavaxtar og þjóðarframleiðsluaukningar 39 L

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.