Frjáls verslun - 01.10.1972, Page 10
Óánægju gætir hjá forráða-
mönnum Landhelgisgæzlunnar
vegna meðferðar Stjórnarráðs-
ins á málum hennar þessar
vikurnai. Verða allar aðgerðir
hennar að hljóta samþykki
raðherra áður en látið er til
skarar skríða gegn landhelgis-
brjótum. Þannig beið varð-
skip í fimm klukkutíma ekki
ahs fyrir löngu úti á miðun
um eftir því að fá heimild til
að klippa á víra hjá einum
togaranum. Sú heimild fékkst
ekki en öðru varðskipi var á
sama tíma leyft að klippa á
öðru veiðisvæði og hefur þessi
úthlutun klippileyfa þegar
valdið nokkurri öfund og af-
brýðisemi meðal áhafna hjá
Landhelgisgæzlunni, sem telja
illa með sig farið, og staðhæfa
að ekkert hefði verið því til
fyrirstöðu að koma með 100
landhelgisbrjóta til hafnar nú
þegar, ef æðstu yfirvöld hefðu
leyft það!
7 ; ? i ?
Til hefur staðið að skipta
um framkvæmdastjóra hjá dag-
blaðinu Tímanum. Kristján
Benediktsson, borgarfulltrúi,
sagði upp framkvæmdastjóra-
stöðunni og stóð til að Gunnar
Hilmarsson, yfirmaður farbók-
unardeildar Flugfélags íslands
tæki við. Starfið hjá Tímanum
mun hins vegar ekki þykja
girnilegt, því að tapreksturinn
er botnlaus, svo að enginn
neitt ráðið. Sumir spá 5 millj-
ón króna rekstrarhalla. á árinu.
króna rekstrarhalla á árinu.
? ! ? ! ?
Auglýsingastofurnar hafa
reynt að fá forráðamenn út-
varpsins til að breyta fyrir-
komulagi útvarpsauglýsinga,
sem er orðið úr sér gengið og
samrýmist engan veginn kröf-
um tímans. Gera menn sér
vonir um að einhverjar breyt-
ingar verði gerðar, þannig að
auglýsendur fái meiri ráðstöf-
unarrétt yfir auglýsingatíma
og þurfi ekki nauðsynlega að
láta þuli útvarpsins lesa boð-
skap sinn í tilkynningaformi.
Búizt er við hækkuðu auglýs-
ingaverði, ef þessi breyting
fæst í gegn.
? ; ? ; ?
Framkvæmdastofnun ríkisins
er sezt að í húsi við Rauðarár-
stíginn í Reykjavík. Er þetta
hús nefnt FALSHÚSIÐ manna
á meðal, og þykir sumum
gárungunum vel við eiga, því
að þetta lýsi einkar vel þeirri
iðju, sem þarna er stunduð
og innifeli Iíka nafn húseig-
andans, sem er bílaleigan Fal-
ur.
? ! ? ! ?
Tollgæzlan stendur oft
frammi fyrir miklurn vanda í
sambandi við innflutning á
svokölluðum klámritum frá út-
löndum. Er í mörgum tilfell-
um leitað úrskurðar sakadóms
í málum af þessu tagi. Megin-
regian mun samt vera sú, að
menn geta fengið send í pósti
klámblöð frá útlöndum ef sýni-
lega er ekki um innflutning til
endursölu að ræða. Þó byggist
þetta eitthvað á mati einstakra
tollgæziumanna og munu sum
ir setj i myndir umsvifalaust á
svarta iistann, ef á þeim eru
tveir naktir einstaklingar eða
fleiri af báðum kynjum.
? ! ? ! ?
Togaraeigendur eru rnjög
uggandi vegna ákvörðunar sam
gönguráðherra um hafnbann á
fiskiskip og eftirlitsskip Vest-
ur—Þjóðverja og Breta. Ástæð-
an er sú, að ísfisksala x Vest-
ur—Þýzkalandi stendur nú
sem hæst og búast íslenzkir
togaraeigendur við löndunar-
banni hjá Þjóðverjum, sem
mótleik gegn hafnbanninu á
íslandi. Annars þykja allmörg
atriði þessa máls óljós: í fyrsta
lagi, hvort tilmæli ráðherra.ns
hafi verið send til allra hafna-
stjórna á landinu og í öðru
lagi, hvernig bregðast skuli
við, þegar skipstjóri, sem
aldrei hefur brotið af sér í 50
mílna landhelginni, þarf að
leita til hafnar. Munu þess
vera dæmi, að vestur—þýzkir
skipstjórar hafi mjög ákveðið
lýst því yfir, að þeir muni
virða íslenzku landhelgina, og
staðið við það til bessa..
? ! ? ! ?
Fyrii’ nokkru héldu útvarps-
menn mikið hóf til 'heiðurs
Axel Thorsteinssyni, frétta
manni, en hann var að iáta
af störfum hjá útvarpinu eftir
margra áratuga þjónustu við
stofnunina og vann hann jafn-
an að undirbúningi morgun-
fréttanna áður en aðrir voru
komnir á fætur. Morguninn
eftir þessa miklu hátíð, þar
sem hinn árrisuli, gamli forkur
var kvaddur, var víst enginn
mættur til að undirbúa morg-
unfréttir útvarpsins og þurfti
þulur að grípa til þess góða
ráðs að lesa fréttirnar beint
úr dagblöðunum!
? ! ? ! ?
Tilmæli Magnúsar Kjartans-
sonar og Lúðvíks Jósefssonar
til kaupsýslumanna um að þeir
beini viðskiptum sínum frá
Bretlandi hafa mælzt illa fyrir.
TeJja menn fráleitt að flokka
aðgerðir verkalýðsforystunnar
í Bretlandi undir „hafnbann“
eins og um tilskipun stjórn-
valda væri að ræða.
Þó að heitt sé í kolunum
milli íslendinga og Breta um
sinn finnst innflytjendum ekki
ástæða til að rjúfa áratuga
gömul viðskiptasambönd sín
við Breta.
10
FV 10 1972