Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1972, Qupperneq 11

Frjáls verslun - 01.10.1972, Qupperneq 11
Virkjun á IMesjavöllum óþörf næstu 10 ár? Búizt viö miklu vatnsmagni á Reykjum og ■ Mosfellsdal Hitaveita Reykjavíkur mun að Iíkindum fá nægilegt vatns- magn frá Reykjum og úr Mos- fellsdal næstu 10 árin að minnsta kosti, þannig að ekki verður nauðsynlegt að ráðast í virkjunarframkvæmdir á jarð- hitasvæði við Nesjavelli í Grafningi eins snemma og áætlað hafði verið. Gert hafði verið ráð fyrir, að hefja þyrfti virkjunarfram- kvæmdir á Nesjavöllum á tímabilinu 1973-74, svo að þörfum Hitaveitunnar yrði mætt. Aftur á móti hefur mik- ið vatnsmagn fengizt með bor- unum á gamla hitaveitusvæð- inu að Reykjum og áformað er að bora ennfremur í Mos- fellsdal. Vonast forráðamenn Hitaveitu Reykjavíkur til þess, að með þeirri viðbót fáist alls 4000 tonn af heitu vatni á klukkustund, eða um fjórfalt magn miðað við það, sem gamla Reykjaveitan gaf af sér. BORÁÐAR 12 HOLUR Á Reykjum var aftur byrj- að að bora eftir vatni árið 1970 og hefur verið haldið áfram fram á þetta ár. Hafa nú ver- ið boraðar 12 holur og verða að minnsta kosti 11 þeirra virkjaðar. Að meðaltali er rennslið um 150 tonn á klukku- stund úr hverri holu og vatn- ið 80-84 stiga heitt. Er búizt við, að þarna verði alls 30-40 holur, þegar framkvæmdunum, sem nú eru áætlaðar, verður endanlega lokið. Mun borun- um verða baldið áfram á Reykjum, á gamla jarðhita- svæðinu, næsta ár, en síðan farið í MosfelJsdalinn. SAMNINGAR VIÐ NÁGRANNASVEITAR- FÉLÖG Af þessum ástæðum er tal- ið líklegt, að aðgerðum við Nesjavelli verði frestað í 10 ár, en þó fer það að sjálfsögðu eftir því, hver byggðarvöxtur verður í Reykjavík og hvort nágrannasveitarfélög Reykja- víkur verða tekin inn á hita- veitukerfið. Núna hafa verið gerðir samningar við Kópavog um lagningu hitaveitu þar í bæ og sölu á vatni, sem Hita- veita Reykjavíkur mun hvort tveggja annast. Fleiri bæjar- félög hafa í hyggju að gera sams konar samninga. Verzlanadauöi í Siglufiröi: Húsnæðisverð aðeins 20 % af því sem gerist á höfuðborgarsvæðinu Segja má, að verzlanadauði hafi herjað í Siglufirði að und- anförnu og eru sumir eigcndur þeirra fáu verzlana, sem eftir eru á staðnum að hugsa um að Ioka. Meðan síldarárin góðu þekkt- ust enn í Siglufirði var svo að segja verzlun í hverju húsi í Aðalgötu, en þær eru nú ör- fáar eftir. Fólksflóttinn úr bænum hefur átt sinn þátt í þessari neikvæðu þróun, en nú eru íbúar Siglufjarðar rétt rúmlega 2000 talsins, en voru 3300 þegar flest var, árið 1946. 20% AF HÖFUÐBORGAR- VERÐLAGI Verzlunarh úsnæði stendur nú víða autt í Siglufirði eins og meðfylgjandi mynd sýnir. Er verðlag á húsnæði í bænum að- Svona er víða umhorfs í Siglu- firði. Þetta er eitt af verzlunar- húsunum við Aðalgötu. eins um einn fimmti af því, sem gerist í Reykjavík og ná- grenni og á þetta einnig við um íbúðarhúsnæði. EINBÝLISHÚS FYRIR 1,2 MILLJ. Um þessar mundir er hægt að fá ódýrar íbúðir í Siglufirði á sama tíma sem við mikil hús- næðisvandamál er að glíma á höfuðborgarsvæðinu og í öðr- um kaupstöðum úti um land- ið. Hins vegar hefur atvinna í Siglufirði verið nokkuð ó- trygg og svo til eingöngu byggzt á fiskvinnslunni. Þó vantar þar fólk í vinnu sem stendur. Húsnæði er nóg á staðnum og til dæmis um verð- lag á íbúðarhúsnæði má nefna, að fyrir skömmu var nýtt ein- býlishús þar selt fullbúið fyr- ir 1,2 milljónir. FV 10 1972 11

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.