Frjáls verslun - 01.10.1972, Side 19
Mjög miklir erfiðleikar hafa verið í efnahagslífi Breta að
undanförnu. Verðbólgan hefur magnazt, kaupkröfur verka-
manna hafa orðið meiri og meiri og verðlag á nauðsynjum
hækkað. Astandið í verkalýðsfélögunum hefur reynzt ríkis-
stjórninni erfitt. Fámennir hópar öfgamanna hafa tekið við
forystunni í sumum jieirra og hvatt til aðgerða eins og
verkfalls hafnarverkamanna í sumar. Þessir sömu foringjar
voru þá nýkomnir úr fangelsi, þar sem þeir sátu inni fyrir
brot á ákvæðum vinnumálalöggjafarinnar. Verkalýðsfor-
ystan sagð'ist ekki myndu fara að þeim lögum, „sem hún
gæti ekki fellt sig við“. Fangarnir voru látnir lausir, en
ríkisstjórn Heaths varð að taka vinnumálalöggjöfina til
endurskoðunar, þó að efni hennar hefði verið eitt af helztu
málunum, sem kjósendur greiddu atkvæði um í þingkosn-
ingum 1970.
ríkisstjórnina til að leggja nýju
tillögurnar fram. Hún hafði
neitað að hafa slík afskipti af
kaupgjaldsmálunum allt frá
því að hún tók við völdum í
júní 1970.
Sem stendur hækkar verðlag
í Bretlandi að meðaltali um
7.8% á ári, samanborið við 5.4
% í fyrra. Kaupgjaldið hækkar
um 14% á ári og horfur eru á
enn örari hækkun þess.
Atvinnuleysi hefur aldrei
verið jafnmikið í 30 ár. Yfir
Bretland hafa dunið mjög al-
varlegar vinnudeilur, sem jafn-
ast aöbins á við allsherjarverk-
fallið 1926.
Brezka stjórnin er nú knúin
til að grípa í taumana vegna
þess, að fyrri tilraunir til að
hafa stjórn á verðbólgu hafa
mistekizt og ennfremur er fyr-
irsjáanlegt, að framfærslu-
kostnaður muni hækka svo um
munar næstu 12 mánuði.
Um áramótin ganga Bretar í
Efnahagsbandalag Evrópu. Um
leið hækkar verðlag á matvöru
sennilega. Þá leiðir nýr virðis-
aukaskattur, sem lagður verður
á næsta vor, einnig til verð-
hækkana.
Önnur ástæða: Fjármálasér-
fræðingarnir segja að sterlings-
pundið skuli skráð á föstu
gengi áður en Bretland geng-
ur í Efnahagsbandalagið. Ef
ekki væri gripið til ráðstafana
til að stöðva verðbólgu, telja
þeir erfiðleikum bundið að
finna raunhæft gengi pundsins.
MIKLAR LAUNAKRÖFUR.
Mest aðkallandi er þó að
finna svör við kröfum 2,7
milljón verkamanna um hærri
laun. Sumar þeirra ganga út
á allt að 60% kauphækkun og
verkföllum er hótað um jóla-
leytið verði ekki búið að finna
lausn á málunum fyrir þann
tíma.
Þess vegna reynir Heath-
stjórnin nú til þrautar að fá
stuðning verkalýðsforustunnar
við frjálst samkomulag um
bindingu verðlags og kaup-
gjalds. Ef ekki verður unnt að
fá þá niðurstöðu með frjálsu
samkomulagi aðila þykir ein-
sýnt, að grípa verði til lög-
gjafar. Verði áætlun ríkis-
stjórnarinnar aftur á móti ofan
á gera sérfræðingar ráð fyriv
að aðgerðirnar myndu draga
úr verðbólgunni um 7% á
næsta ári.
Ýmsar blikur eru nú á lofti
og þykir ljóst að ekki verði
hjá verðhækkunum komizt i
ýmsum framleiðslugreinum
vegna kostnaðarauka. Launa-
hækkanir hafa orðið verulegar
að udanförnu og verkalýðs-
félögin gera meiri kröfur. Á
seinna árshelmingi 1971 kröfð-
ust verkalýðsfélögin 20 %
kauphækkunar að meðaltali en
nú hækka þessar tölur stöðugt.
TAPAÐIR VINNUDAGAR
70% FLEIRI EN í FYRRA.
Sem dæmi má nefna, að
110.000 rafstöðvastarfsmenn
fara fram á 40% hækkun og
sama gera 900.000 verkamenn
ýmissa bæjar- og sveitarfélaga.
Um 300.000 vikapiltar á sveita-
býlum vilja 60% kaup'hækkun
og starfsmenn Ford-bílaverk-
smiðjanna brezku krefjast 50%
hækkunar.
Órói á vinnumarkaðinum
hefur aldrei verið meiri í 46
ár. Á fyrstu átta mánuð-
um ársins fóru fleiri vinnudag-
ar til spillis vegna verkfalla
en á nokkru heilu ári síðan
1926. Það sem af er þessu ári
hafa þannig 70% fleiri vinnu
dagar en á öllu árinu í fyrra.
Ýmsar ástæður eru tilgreind-
ar til skýringar á þessum á-
tökum. Ein er andstaðan gegn
vinnumálalöggjöfinni nýju. Þá
er líka áberandi, hvað komm-
únistar hafa í vaxandi mæii
stundað undirróðursstarfsemi
sína í sumum félögunum og
tekið þar forystu.
Enn ein ástæða: Félögin
hafa náð umtalsverðum
árangri í mótstöðu sinni við
launamálastefnu stjóxmarinnar
síðustu átján mánuði. Aðeins
póstmannasambandið hefur
beðið ósigur í tilraunum sínum
til að standa gegn hinni opin-
beru stefnu um að halda kaup-
hækkunum í skefjum.
FV 10 1972
19