Frjáls verslun - 01.10.1972, Qupperneq 37
Er athugun sálfræðinganna
var komin vel á veg, komust
þeir að því, sér til undrunar,
að framleiðni jókst ekki að-
eins í þeim hópum, sem til-
raunirnar voru gerðar á, held-
ur einnig í viðmiðunarhópun-
um, þar sem engar breyting-
ar voru gerðar á ytra um-
hverfi.
I lok tilraunarinnar voru
tilraunahóparnir látnir vinna
við sömu ytri skilyrði og ríkt
höfðu í upphafi rannsóknanna
og kom þá í ljós, að afköst
voru 25% meiri en þá hafði
verið.
SÁLRÆN ÖFL
Af þessu varð ljóst, að rann-
sóknaraðferðir tæknimannanna
einar dugðu ekki til að útskýra
afkastaaukninguna. Skýringin,
sem sett var fram, var sú, að
sálræn öfl, algjörlega óháð hin-
um ytri skilyrðum á vinnu-
stað, hefðu haft áhrif á afköst
starfsmannanna og framleiðsl-
an aukizt vegna breyttrar að-
stöðu starfsmannanna til starfs-
ins og vinnufélaganna. Með því
að leitað var eftir aðstoð og
samstarfi starfsmannanna við
þessar rannsóknir, fannst þeim
að þeir hefðu hlutverki að
gegna við lausn þessa vanda-
máls. Starfsmaðurinn var orð-
inn þátttakandi, sem máli
skipti. Annað, sem þarna hafði
áhrif var, að með því að starfs-
mennirnir voru látnir vinna í
6 manna hópum við tilraunina,
þar sem þeim var veitt athygli
og þeir fylgdust náið með hver
öðrum, varð hið ópersónulega
fyrirtæki persónulegt.
Mayo benti á, að fyrirtækið
væri þjóðfélagskerfi, með hags-
munahópa, fréttaslúður, óform-
legt skipulag, siðvenjur og
misjafniega rökræna hegðum.
Afleiðingar Hawthorne-til-
raunanna urðú þær, að sjónar-
mið hinnar vísindalegu stjórn-
unarstefnu voru véfengd. —
Starfsmaðurinn var ekki að-
eins hluti af vélinni, sem hann
vann við, heldur margbrotin
vera, með sérstakar sálrænar
og persónulegar þarfir, sem
kröfðust viðurkenningar og at-
hygli.
Síðan Hawthorne-tilraunirn-
ar voru gerðar hafa þau sjón-
armið, sem leggja áherzlu á
mannleg samskipti verið eitt
aðalviðfangsefni þeirra, sem
fengizt hafa við stjórnun og
rannsóknir í þágu stjórnunar-
fræða.
RAUNGREIN ASTEFN AN
í seinni heimsstyrjöldinni
var byrjað að nota ýmsar
stærðfræðigreinar, sérstaklega
aðgerðarrannsóknir, til lausn-
ar stjórnunarvandamálum.
Hagnýtt gildi þessara greina
hefur síðan verið að aukast og
hefur með tilkomu rafreiknis-
ins orðið svo mikið og almennt,
að þær eru nú taldar nauðsyn-
legt aðstoðartæki hvers stjórn-
anda og hafa stuðlað að því að
gera stjórnunina að afmarkaðri
sérgrein en hún hefur verið,
þar sem allir stjórnendur þurfa
að kunna nokkur skil á þess-
um fræðum.
Auk aðgerðarannsókna má
nefna, að örvaritaáætlanir eins
og CPM, PERT og fleiri, eru
nú mjög almennt notaðar, og
ýmis konar fjármálaútreikn-
ingar og stjórnunarupplýsinga-
kerfi (management information
system) fyrir rafreikna hafa
rutt sér til rúms í vaxandi
mæli um allan heim. Þróun
KJÖTFARS — BJÚGU
Úrvals vörur — jafnan
Heildsala, smásala:
Kjötverzlunin
Skjaldborg við Lindargötu,
rafreiknisins er af mörgum tal-
in vera einn af merkustu at-
burðum tuttugustu aldarinnar
og margir álíta, að áhrifum
hennar megi líkja við iðnbylt-
inguna miklu. Þýðing raun-
greinanna fyrir stjórnunar-
fræðin mun vafalítið haldast í
hendur við þá þróun.
Gildi raungreinanna hefur
verið sérstaklega mikilvægt
við að gera upp á milli val-
kosta og finna þá, er veita
mestan hagrænan ágóða, auk
þess sem stærðfræðilíkön geta
gert stjórnendum mögulegt að
gera kannanir, sem yrðu óhæfi-
iega kostnaðarsamar við raun-
verulegar kringumstæður.
Með vaxandi alþjóðavið-
skiptum og samvinnu milli
þjóða, hafa stjórnunarfræðin
orðið alþjóðlegri og raun-
greinastefnan hefur átt stóran
þátt í að gefa stjórnuninni
bæði vísindalegri og alþjóð-
legri blæ en áður.
— PYLSUR — ÁLEGG.
fyrirliggjandi.
BÚRFELL,
Reykjavík. — Sími 19750.
Sitjið rétt og keik
við störf og leik!
Húsfreyjan, bóndinn, \inga fólkió
og börnin kunna (ill aö mcta lipran
og hollan stól, stillanlcgan viö
lix-fi bvcrs og cins.
Margar gcröir og litir.
Vinyl- cöa tau-áklæöi.
Fást í fyrirfcröalitlum umbúöum,
, . hcntugum til scndingar og gjafa.
Auövcld samsctning cftir nákvæmum
> lciðarvísi. Scndum um allt land.
SUDURGÖTU ÍO.REYKJAVÍK— SÍMI 2.44-20
KJÖTIÐNÁÐARVÖRUR
FV 10 1972
37