Frjáls verslun - 01.12.1972, Qupperneq 18
íslenzk frímerki
3000 fastir áskrifendur
erlendis
Frímerkjasala pósthússins í
Reykjavík afgreiðir að jafnaði
5000 pantanir til erlendra safn-
ara, þegar ný frímerki eru gef-
in út hérlendis, og á fastri
„áskrifendaskrá“ eru um 3000
útlendingar. Fyrir viðskipti
frímerkjasölunnar komu inn
um 30 milljónir króna í fyrra,
þar af 80% í erlendum gjald-
eyri.
Samkvæmt upplýsingum
Rafns Júlíussonar, hjá Pósti og
síma, pöntuðu Þjóðverjar ís-
lenzk frímerki fyrir sem svar-
ar 5 milljónum króna í fyrra,
Svíar fyrir 4 milljónir, Danir
3,7 og Bandaríkjamenn 1,7
milljónir. Hefur frímerkjasal-
an reglulegt samband við
fjölda aðila erlendis með kynn-
ingu á frímerkjaútgáfum.
2-4 MILLJÓNIR AF HVERJU
MERKI
Það eru eingöngu frímerki,
sem almennar afgreiðslur póst-
húsanna selja, sem frímerkja-
salan hefur á boðstólum. Frí-
merkjabúðunum er látið eftir
að selja gömul merki, sem ekki
eru lengur notuð almennt fyr-
ir burðargjald bréfa. Hefur
áhugi útlendinga á íslenzkum
merkjum farið vaxandi með ár-
unum og kemur þar fyrst og
fremst til, hvað merkin eru
gefin út í smáu upplagi, miðað
við það, sem erlendis tíðkast.
Upplag frímerkja hérlendis er
á bilinu 2-4 milljónir merkja,
en það fer mikið eftir verð-
gildi hvers einstaks og er upp-
lag aldrei tilkynnt fyrirfram
heldur nokkrum mánuðum eft-
ir að merki kemur út. Er stund-
um um viðbótarprentanir að
ræða.
samstæðuútgáfur á ári, en í
Svíþjóð til dæmis eru ný frí-
merki gefin út í hverjum ein-
asta mánuði. Mikil aukning
varð í íslenzku frímerkjaútgáf-
unni upp úr 1956, þegar Norð-
urlandamerki með svönunum
fimm var gefið út.
Af nýjum frímerkjum á
þessu ári hefur skákeinvígis-
merkið tvímælalaust vakið
mesta athygli, en í pósthúsinu
í Laugardalshöllinni seldist
það fyrir 15-20 milljónir. Fyrir
liggur bráðabirgðaáætlun um
útgáfu frímerkja á næsta ári.
Ber þar hæst frímerki í tilefni
af 100 ára afmæli skildinga-
merkjanna svokölluðu, sem
voru hin fyrstu íslenzku frí-
merki. Þá verður af því tilefni
líka efnt til frímerkjasýningar,
sem opnuð verður 31. ágúst,
og mun standa í 7-10 daga.
ELLEFU ÞJÓÐHÁTÍÐAR-
MERKI 1974
Væntanleg eru líka á næsta
ári tvö Evrópufrímerki, tvö
Norðurlandamerki með mynd
af Norræna húsinu og verða
slík merki gefin út á öllum
Norðurlöndunum þann 26.
júní. Þá er væntanlegt merki
með mynd Herra Ásgeirs Ás-
geirssonar, fyrrverandi forseta
Islands, og frímerki í tilefni
af afmæli Alþjóðaveðurfræði-
stofnunarinnar.
Þjóðhátíðarárið 1974 verður
svo gefin út 11 merkja sam-
stæða, eitt merki helgað hverri
öld Islandsbyggðar. Það ár
verður líka gefið út Evrópu-
merki og merki vegna 100 ára
afmælis Alþjóðapóstmálastofn-
unarinnar.
Alls munu hafa komið út á
íslandi frá byrjun milli 500 og
600 frímerki.
tnme'ricjasaia Pósts og síma seldi söfnurum fyrir 30 milljónir
í fyrra.
FRÍMERKJASÝNING
Á NÆSTA ÁRI
Að jafnaði koma hér út 4-6
18
FV 12 1972