Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1972, Side 35

Frjáls verslun - 01.12.1972, Side 35
Fyrirtæki vörur þjónusta Mikil umsvif Héðins lllinnzt 50 ára afmælis vélsmiðjunnar Vélsmiðjan Héðinn h.f. átti 50 ára afmæli þann 1. nóvern- ber s.l., og til marks um þenslu fyrirtækisins má nefna, að í upphafi störfuðu þar fjórir menn, nú 200, gólfflötur smiðj- unnar var þá 60 fermetrar, er 10.000 nú, og öll tæki voru knúin með einum fjögurra kíló- watta rafmótor, en nú eru mótorar 203 og framleiða 1203 kílówött. Bjarni Þorsteinsson vélfræð- ingur, og Markús ívarsson vél- stjóri, stofnuðu Héðin árið 1922 með því að kaupa vél- smiðju, er Bjarni Jónsson hafði starfrækt í Aðalstræti. Var til- gangurinn að koma upp full- kominni vélsmiðju er gæti ann- azt smíði og viðhald véla og áhalda. Starfsemin jókst hröðum skrefum og var orðið þröngt um hana, er hafizt var handa um byggingu þess húss, sem Héðinn er nú í við Seljaveg, árið 1941. Brátt tók enn að þrengjast að fyrirtækinu og ái’- ið 1966 var reist útibú frá Héðni í Garðahreppi, og nefn- ist það Garða-Héðinn. Bjarni og Markús veittu fyr- irtækinu forstöðu fyrstu 20 ár- in, en að Bjarna látnum, tók Sveinn Guðmundsson núver- andi forstjóri við stjórninni, en Markús lézt ári síðar. Starfssemi Héðins var eink- um tvíþætt, framleiðsla og verzlun. Framleiðslan er reynd- ar flestum kunn, og má nefna að Héðinn hefur reist nær all- ar síldarverksmiðjur á Austur- og Suðvesturlandi og komið upp fjölda frystitækja í frysti- húsum um land allt. Tæki þessi eru yfirleitt hönn- uð í Héðni og smíðuð þar að mestu eða öllu leyti. Héð- inn hefur alltaf verið í nánum tengslum og samstarfi við sjávarútveg landsmanna, og tekið að sér margvíslegar fram- kvæmdir, er snerta hagnýtingu sjávarafurða. Fyrirtækið rekur einnig víðtæka viðgerðarþjón- ustu fyrir bátaflotann og verk- smiðjur, og annast hvers kon- ar nýsmíði til fullkomnunar. Meðal nýjunga í framleiðsl- unni, sem nú eru á döfinni, er ísvél, sem getur framleitt 35 tonn af ís á klst. en þær stór- virkustu nú framleiða aðeins 18 tonn. Árið 1966 var reist útibú í Garðahreppi, sem fyrr segir, Sveinn GuSmundsson forstjóri á skrifstofu sinni í Héðni. FV 12 1972 35

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.