Frjáls verslun - 01.12.1972, Side 41
í funa ástarleiksins sagði
hún allt í einu:
— Kalli, hefur þú nokkurn
tíma selt alfræðibækur?
— Nei, ástin.
— Þá er eins gott að þú
prófir það, því að maðurinn
minn var að koma inn úr dyr-
unum.
Móðirin var dálítið áhyggju-
full vegna hegðunar 10 ára
sonar síns. Hann snýr alltaf
við, ef eitthvað kvenkyns labb-
ar hjá, og flautar hástöfum.
Móðirin net'nir þetta við heim-
ilislækninn, sem lítur á hana
yfir gleraugun og segir:
— Já, þér hljótið að hafa
séð það á augunum í honum,
að hann er mjög illa á vegi
staddur, á við alvarlegt vanda-
mál að glíma. En það versta
verður liðið hjá eftir 50-60 ár.
^JPg
/l /A
Fyrsta blaðið gefið út
í 800 þús. eintökum
Playboy-fyrirtækið gaf út á
síðastliðnu hausti nýtt tímarit
sem kallað er OUI. Þetta nýja
blað ei að mestu með svipuðu
efni og franska blaðið LUI sem
Playboy-fyrirtækið gefur einn-
ig út. Er ætlunin að nota sama
efni að verulegu leyti í bæði
blöðin enda markaður ólíkur.
Playboy kemur nú út í
6.500.000 eintökum. Það blað
mætir vaxandi samkeppni frá
öðrum blöðum eins og sjá má í
blaðsölum erlendis. Það tíma-
rit sem mestum ái'angri hefur
náð í samkeppninni við Play-
boy er Penthouse en útgáfa á
OUI á einmitt að vera mót-
vægi gegn því.
Meðfylgjandi mynd er af
forsíu OUI. Myndin til hliðar
er máluð af franska teiknaran-
um Aslan en hann sést hér að
neðan við iðju sína. Aslan býr
í útjaðri Parísar og hefur um
sig fjölda fyrirsæta sem hann
festir myndir af á striga.
FV 12 1972
41