Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1973, Blaðsíða 15

Frjáls verslun - 01.11.1973, Blaðsíða 15
Atlantshafsbandalagið veitir Islending- um beztu tækifærin tiE að fylgjast með þróun heimsmála — Islenzk stjórnvöld sniðganga samstarf bandalagsþjóðanna ■ mikilvægum Ein af Phantom-orrustuþotum Bandaríkjahers, sem nýlega bætt- ust í tækjakost varnarstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli. málaflokkum í aðalstöðvum Atlantshafs- bandalagsins í Briissel er venju fremur fylgzt af áhuga með stjórnmálaþróuninni á íslandi. Er það að vonum, þar sem fulltrúar ríkisstjórna banda- lagsins og embættismenn þess eru mjög uggandi um samn- ingsstöðu hinna vestrænu þjóða í viðræðum um af- vopnun, verði það ofan á, að íslendingar hafi frumkvæði í að veikja vamarmátt banda- lagsins á næstu misserum. Ritstjóri F.V. var ásamt fleiri íslenzkum gestum á ferð í Brússel fyrir skömmu og hitti þá að máli allmarga em- bættismenn bandalagsins og herfræðinga auk íslenzku sendimannanna þar. Vitaskuld bar málefni íslands mjög á góma í þessum viðræðum og var það samróma álit allra, að fyrir bandalagið í heild myndi brottför varnarliðsins frá ís- landi nú á þessu stigi málsins veikja stöðu Atlantshafsbanda- lagsins út á við og rýra til muna árangurinn af öryggis- málaviðræðunum milli austurs og vesturs fyrir bandalagið. ÞARF AÐ SÝNA STYRK SINN Mr. P. J. S. Moon, fulltrúi í hinni pólitísku deild bandalags- ins, sagði, að ekkert væri nú jafnbrýnt og að Atlantshafs- bandalagið sýndi styrk sinn í undirbúningsviðræðunum um öryggismálaráðstefnu Evrópu, og á fundunum um gagnkvæma fækkun í herafla, því að minnsta veikleikamerki yrði af hálfu ríkjanna í Austur-Evrópu hent á lofti og notað til hins ýtrasta í því augnamiði að gera hlut Vestur-Evrópu lakari en ella. Það væri því algjörlega ótímabært eins og sakir stæðu að draga einhliða úr varnar- mætti Atlantshafsbandalagsins. Stríð ísraelsmanna og Araba var nýafstaðið, er bessi fundur fór fram og fjallaði Mr. Moon því allýtarlega um það og hvern lærdóm mætti af því draga. Hann benti á, að þrátt fyrir hina svonefndu „þíðu“ i samskiptum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna og yfirlýsingar beggja aðila um, að þeir myndu leggja sig fram um að koma í veg fyrir hernaðarátök, meðal annars með meiri og nánari skiptum á upplýsingum, hefðu Sovétmenn ekki gefið Banda- ríkjastjórn neina vísbendingu um að hernaðarátök væru yfir- vofandi við botn Miðjarðar- hafsins. Sovétstjórnin hefði þó haft fulla vitneskju um, að hverju stefndi og því flutt hernaðai'ráðsjafa sina á brott úr Arabalöndum nokkru fyrir upphaf stríðsins, án þess þó að veita ráðamönnum í "Washing- ton neina viðvörun. Mátti þó öllum Ijóst vera, að þessi átök hefðu getað leitt til víð- tækra og miög alvarlesra hernaðarátaka. f stríðinu sjálfu hefðu Sovétmenn síðan byrjað geysilegar vopnasendingar til Arabaríkjanna og valdamenn í Moskvu hvatt Arabaleiðtoga leynt og ljóst til blóðugra átaka. Taldi Mr. Moon einsýnt, að hefðu úrslit átakanna við botn Miðjarðarhafsins orðið með öðrum hætti, myndu Sovét- ríkin hafa notfært sér ástandið út í yztu æsar til þess að hagn- ast á því pólitískt og ná sér niðri á Bandaríkjamönnum. KRÖFUR UM FRELSI AUSTUR-EVRÓPUÞJÓÐA Það er því eðlilegt, að ráða- menn á Vesturlöndum efist enn um hinn raunverulega til- gang Sovétleiðtoganna. Mörg- um þykir reynslan úr stríði Araba og ísraelsmanna benda ótvírætt til þess, að kaldrifjað valdatafl í alþjóðastjórnmálum sé eini leikurinn, sem Sovét- menn taki hátíðlega enn sem komið er. Það væri því sorg- FV 11 1973 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.