Frjáls verslun - 01.11.1973, Blaðsíða 53
EGILL VILHJÁLMSSON h.f.,
Lauga.vegi 118, hefur aukið
mjög vinsældir bandaríska
fólksbilsins Wagoneer á und-
anförnum árum, sem jafnframt
er fjórhjóladrifsjeppi og því
afar heppilegur fyrir íslenzka
staðhætti. Wagoneer er 6
manna bíll, með 6 eða 8 cyl.
vél og kostar frá kr. 720.000.
— Bíllinn er station gerð og
í 74 árgerðinni eru helztu nýj-
ungar, m. a. nýjar fjaðrir og
,,housingar“, styrkt yfirbygg-
ing, o. m. fl. Hægt er að velja
um 6 mismunandi liti og lægsti
punktur frá jörðu er 19,5 cm.
Ný gerð er komin á markað-
inn, en það er Jeep Cherokee,
sem er svo til eins og Wago-
neer í laginu, en 2ja dyra og
með hurð að aftan.
Þá býður fyrirtækið upp á
fólksbíla frá brezku Chrysler-
verksmiðjunum, eins og t. d.
Hunter, sem kostar frá kr.
408.00. í Hunter er 4 cyi. 73
ha. Din vél. Benzíneyðsla er
um 8,5 1. á 100 km. Hunter er
4ra dyra. Hægt er að velja um
14 liti. Lægst hæð frá jörðu
er 17 cm.
SVEINN EGILSSON h.f.,
Skeifunni 17, hefur umboð
fyrir allar gerðir bíla frá Ford-
verksmiðjunum í Bandaríkjun-
um, Bretlandi og V.-Þýzka-
landi. Undanfarna mánuði hef-
ur umboðdð selt talsvert af
Bronco jeppum og Comet
fólksbílum. Comet er „lítill“
amerískur fólksbíll, sem fáan-
legur er annað hvort 2ja eða
4ra dyra og kostar ca. 639.000
og 677.000. í Comet má velja
6 eða 8 cyl. vélar, sjálfskipt-
ingu, vökvastýri, aflbremsur
o. m. fl. Litaúrval er mikið á
bandaríska vísu og hægt er að
velja um margar útfærslur,
jafnt að innan sem utan.
Frá brezku Ford-verksmiðj-
unum býður Sveinn Egilsson
h.f. upp á t. d. Cortínu, í
nokkrum mismunandi gerðum
og kosta frá ca. kr. 450.OOd? —
í Cortínu er 4 cyl. vélar, ann-
að hvort 78 hö. eða 112 hö.
Hægt er að velja um ,,station“,
eða 2ja og 4ra dyra fólksbíla,
VELTIR h.f.,
Suðurlandsbraut 16, hefur á
undanförnum árum selt veru-
legt magn af sænsku Volvo
bílunum, sem þykja afar
heppilegir fyrir íslenzkar að-
stæður. Helztu gerðirnar, sem
umboðdð hefur nú á boðstóln-
um eru: Volvo 142 Evrópa,
144 De Luxe, 145 Station De
Luxe, en þeir kosta (í sömu
röð) kr. 635.000, kr. 685.000 og
kr. 740.000. Nýir öryggisstuð-
arar eru að aftan og framan;
bílstjórasætið er upphitað;
þurrkur eru á aðalljósum;
benzíngeymir er á sérstökum
öryggisstað og stýrishjól er
með innbyggðum öryggispúða.
í Volvo er 4 cyl. 90 ha. SAE
vél, við 4800 snúninga pr.
mín., eða 135 ha. SAE við 6000
snúninga pr. mín. Gírkassi er
4ra gíra alsamhæfður og eyðsla
er sögð vera 10-12 1. pr. 100
km. Hægt er að velja um 18
mismunandi liti. 18 cm. eru
undir lægsta punkt.
FV 11 1973
53