Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1973, Side 73

Frjáls verslun - 01.11.1973, Side 73
Mýtt efni, sem gerir við og loftfyllir sprungna hjólbarða Smyrill, varahlutaverzlun, Ármúla 7 í Reykjavík, hefur nýlega hafið innflutning og söl'u á efni, sem gerir við og loftfyllir hjólbarða, sem sprungið hafa af völdum nagla, glerbrota og þess háttar hluta. Efni þetta, sem er innflutt frá Frakklandi og nefnist Punc- ture Pilot 77, er fljótandi gúmmíkvoða á sprautubrúsum, sem eru að því leyti ólíkir öðrum spra'utubrúsum, að þess- ir hafa plastslöngu og nippil. Efnið Puncture Pilot 77 er í stuttu máli notað þannig, að ef loft sígur úr hjólbarða, er ventilhettan skrúfuð af og hjólið lofttæmt eins vel og hægt er, síðan er Puncture Pilot brúsinn hristur vel (yljaður við miðstöðina ef kalt er) og nippillinn á plast- slöngunni skrúfaður á hjól- ventilinn, síðan er hettan á brúsanum losuð af og þrýst á. Fyllist þá hjólið af gúmmí- kvoðu og lofti og fær sína eðlilegu lögun. Hefur þá kvoð- an sezt í gatið og lokað því. Þegar lokið er áfyllingunni á að aka bílinn ca 10-15 km á meðalhraða 20-25 km á klukkustund til þess að gúmmíkvoðan í hjólbarðanum jafni sig, og loftþrýstingurinn verði eðlilegur, síðan er ekið áfram, svo sem leið liggur. Framleiðendur efnisins ráð- leggja að láta athuga hjólbarð- ann á gúmmíviðgerðarverk- stæði t. d. ekki hefur reynzt mögulegt að fjarlægja nagla, sem valdið hefur óhappinu. Þá þarf að fylgjast með loftþrýst- ingi í hjólbarðanum. Hins veg- ar segja framleiðendur ekkert því til fyrirstöðu að aka hundruð kílómetra, eftir að gert hefur verið við hjólbarð- ann á þennan hátt, ef tekizt hefur að fjarlægja aðskotahlut þann, sem sprengdi barðann. Puncture Pilot 77 er ætlað til viðgerða jafn fyrir slöngu- sem slöngulausa hjólbarða. Þó er viðgerð ekki möguleg, ef slanga er rifin eða ef slöngu- laus hjólbarði fellur ekki þétt að felgu. Efnið er selt í tveim- ur brúsastærðum. Er 340 gramma brúsi fyrir hjólbarða að 590x13 og 650 gramma brúsi fyrir hjólbarða stærri en 590x13. Þá er sérstakt tveggja brúsa sett fyrir vöru- og áætl- unarbifreiðar. Þar er efnið í öðrum brúsanum, en þrýstiloft í hinum. Framleiðendur segja, að í kulda þurfi að ylja efni t. d. við miðstöðina í bílnum. Þá vara þeir við því, að ekki megi brúsarnir standa þar sem sól skín á þá, né heldur geym- ist þeir í hita yfir 50°C, held- ur ekki þar sem börn ná í. Þetta nýja efni reynist væntanlega góð og þægileg lausn á vandamáli, sem menn og konur hafa lengi glímt við. Það springur á hjólbarða, þeg- ar verst stendur á og á versta stað, e. t. v. á mikilli umferð- argötu. Allt til þessa hefur ekki verið um annað að ræða en að skipta um hjól, eða að reyna að ná sambandi við viðgerðarmann eða verkstæði. Hefur það oft reynzt taf- samt og vandkvæðum bundið. Með brúsa af Puncture Pilot 77 virðist viðgerðin auðveld og ekki tafsöm. Sú kynning, sem fram fór á vegum Smyrils, þegar efnið var sýnt, og reynt fyrir blaða- mönnum, bendir til að hér sé á ferðinni mjög athyglisverð nýjung, sem sérhver ökumaður getur haft gagn af að kynna sér. Mynd 1: Sprungið á framhjóli. — Mynd 2: Viðgerð með Puncture Pilot 77. — Mynd 3: Ekið af stað að lokinni auðveldri viðgerð. FV 11 1973 73

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.