Frjáls verslun - 01.02.1975, Blaðsíða 7
i stultu máli
9 Að hætta að reykja í
bréfaskóla
Sænskir bréfaskólar gefa nú kost á
námskeiðum í að hætta reykingum.
Athuganir hafa leilt í Ijós, að 75% af
])átttaken<lum leggja reykingar á hill-
una. Jafnframt liefur komið í ljós, að
þær ráðleggingar, sem eru gerðar um
matarræði á þrengingartímum hafa
þyngt hvem þátttakanda um að meðal-
tali 5 kg á árinu.
f Vítahringur
Áætlað er, að hækkun á áburðarverði
kosti bændur um 1200 millj.kr. á árinu
á verði fyrir síðustu gengisfellingu. Ef
eitthvað af þessu er greitl niður cða allt,
lciðir það til mciri framleiðslu en ella
og sennilega meiri útflutningshóta. Ef
liins vegar ekki er greitt niður hækkar
verðlag á landbúnaðarafurðum og allt
verðlag í landinu, svo og útflutnings-
hætur. Hvað á að gera?
# Fluglyfta milli London og
Glasgow
Fyrstu loftfáksferðirnar í Evrópu,
þar sem horgað er við dyrnar, hófust
nýlega milli London og Glasgow. Fluttir
voru 11,700 farþegar fyrstu vikuna með
þessum hætti, sem er mun meira cn bú-
ist liafði verið við. Kannski Íslendingar
fari að stíga beint upp í vélarnar með
þessum hætti, þegar þeir þurfa að fara
jjessa leið.
9 Fjárfestingarsjóftir
Sænska þingið hefur sett lög um, að
fyrirtæki þar í landi skuli leggja 15% al'
ágóða ársins 1974 í sérstakan fjárfest-
ingarvarasjóð. Féð vcrður vaxtalaust en
skattfrjálst. Heimild ríkisstjórnarinnar
og vinnumálastofmmar þarf til ráðstöf-
unar fjárins.
Hér á landi voru eitt sinn svonefndir
nýbyggingarsjóðir. Ekki er ólíklegt að
binding varasjóðsheimilda eða fjárfest-
ingarsjóðir af einhverj u tagi gætu kom-
ið að góðu gagni við að jafna sveiflur
Iiér á landi.
# Efnahagsráðstafanir
Þótt efnahagsráðstafanir rikisstjórn-
arinnar komi alls staðar niður, virðist
þó sú leið, sem valin var snöggtum hetri
en að taka upp innflutningshöft eða
skatta af því tagi, sem komu til umræðu
og fólu i sér alls konar mismunmn. Hins
vegar er nauðsynlegt að sýna aðliald á
öllum sviðum, ef gengisfellingin á að ná
tilgangi sínum.
9 3750 milljónir til könnunar
á frjósemi
Unnið er að geysiumfangsmikilli
könnun á frjósemi kvenna í heiminum
og hverjir séu helstu áhrifavaldar barn-
eigna. Könnuninni er stýrt af enska
tölfræðinginum Maurice Kendall. Ætl-
unin cr að taka úrtak kvenna í hverju
landi og athuga samband milli fjölda
bama, tekna, fjölskylduaðstæðna o.l'l.
Aætlað er, að könnunin muni kosta 3750
milljónir íslenskra króna.
9 Fáir bændur í olíuleit
Nokkurs uggs gætti í Norcgi um, að
bændur mundu flosna upp og fara í
olíuleit. Komið hefur hins vegar á dag-
inn, að aðeins 2-3% þeirra, sem að olíu-
málum starfa koma frá landbúnaði,
skógarhöggi og sjávarútvegi. Flestir
komu úr byggingariðnaði, öðrum iðnaði
og þjónustugreinum.
9 Breyta þarf fyrirkomulagi
olíugreiftslna með skipum
Eins og er, er verulegur hluti af oliu-
kostnaði fiskiskipa greiddur niður með
tilfærslu frá vinnslu til veiða. Einn ljóð-
ur á þessu fyrirkomulagi er sá, að olían
er jafnframt notuð í landi og því hætta
á misnotkun. Annar ókostur cr sá, að
bvati verður minni til að spara og fara
að nota svartolíu í stað disilohu. 1 þriðja
lagi geta skipin þeyst um allan sjó, án
þcss að horfa í kostnaðinn, á sama tima
og farskip og flugvélar fara ekki svo
yfir Atlantshafið, að ekki sé reiknað
nákvæmlega út, hvaða lcið sé ódýrust
og hvaða liraði hagkvæmastur.