Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1975, Blaðsíða 71

Frjáls verslun - 01.02.1975, Blaðsíða 71
Grindavík Reiknað með tvöföldun íbúatölu á 20 árum Rætt við Eirík Alexandersson, bæjarstjóra um nýtt aðalskipulag „Við vorum eiginlega famir að syndga ,upp á náðina og farnir að deiliskipuleggja hverfi utan ramma heildarskipulagsins frá 1964, sem er fylltur og vel það. Því var nýtt lieildarskipulag orðið mjög aðkallandi og er vinnsla þess alveg á lokastigi þannig að það verður væntanlega samþykkt í vor eða sumar, eða þegar búið verður að fella lítilsháttar breytingar inn í það. Það skip.ulag nær til árs- ins 1994 og er reiknað með að íbúafjöldinn í Grindavík tvöfaldist á tímabilinu til þeirra marka.“ Þetta sagði Eiríkur Alex- andersson, bæjarstjóri í Grinda- vík, í viðtali við FV, en Grinda- vík öðlaðist kaupstaðarréttindi í fyrra og búa þar nú um 1600 manns. Skipulag þetta er um leið nokkurs konar spá, sem gerir ráð fyrir um 5% fjölgun á ári að meðaltali fram til 1994, en þess má geta að ’73 til ’74 komst fjölgunin upp í 10%, og sagði Eiríkur að nokkurrar óvissu gætti um þróun staðarins er litið væri t.d. til hins nýja og góða vegar þangað, stórbættrar hafnaraðstöðu, og geysimikils jarðhita í næsta nágrenni, sem gæfi möguleika langt umfram jarðvarmahúshitun í bænum, en skipulagið verður endurskoð- að á fimm ára fresti. ENDURBÆTUR Á HÖFNINNI Ein aðalforsenda aðalskipu- lagstillögunar eru hinar miklu endurbætur á höfninni, sem eru langt komnar og gerbreyta allri aðstöðu þar. Má af þeim sökum, og vegna hinnar heppilegu legu Grindavíkur til fiskimiða, gera ráð fyrir mjög örri fólksfjölgun í bænum á næstu 5-10 árum, jafnvel tvöföldun íbúafjöldans á 12 til 15 árum, eins og raunin hefur orðið á tímabilinu frá 1960 til 1974. Eins og tillagan liggur nú fyrir, gerir hún ráð fyrir að um það bil 23 hektarar verði nýttir undir einbýlis-og raðhús, sem svarar til um 350 íbúðum, en á tæpum fimm hektörum er gert ráð fyrir 180 íbúðum í þriggja hæða fjölbýlishúsum. Samtals gerir skipulagstillagan því ráð fyrir um 530 nýjum íbúðum. Miðað við 4 manna fjölskyldu- stærð, svarar þetta til 2120 íbúa, og yrðu þá íbúar Grinda- víkur samtals 3700. Meirihluti landsins innan nýja skipulags- rammans, er i eigu kaupstaðar- ins, ríkið á hluta, sem upphaf- lega átti að nota undir NATO mannvirki, og svæðið vestan Víkurbrautar og sunnan Ás- brautar er í einkaeign. Það er annar tilgangur skipu- agsins að skapa skilyrði fyrir óhindraða þróun viðkomandi sveitarfélags, en minna máli skipti hvort tilteknum áfanga sé náð á tilteknum tíma. í aðal- skipulaginu er gert ráð fyrir að höfnin þróist í austurátt, og við hana eru hugsuð fiskiðnaðar- svæði og önnur skyld starfsemi. Um miðbik skipulagssvæðisins er fyrirhugaður miðbæjar- kjarni, eða í nágrenni Festi, og er þar ráð gert fyrir að marg- breytileg þjónusta einkaaðilla og hins opinbera fái aðstöðu. Nú er t.d. mjög lítil verslun í Grindavík þar er vart verslað nema með daglegar nauðþurft- ir, en Grindvíkingar sækja mikið til Keflavíkur, til meiri- háttar innkaupa. Þá er þar enginn hárskeri, svo eitthvað sé nefnt, en Eiríkur vonaðist til að úr þessu gæti farið að rætast. enda gæfi íbúafjöldinn nú möguleika á fjölbreyttari þjón- ustustarfsemi en áður hefur verið. Miðbæjarkjarni þessi ætti að hafa mikla þróunar- möguleika, þar sem hann er hugsaður við aðal innkeyrsluna í byggðarlagið, þ.e, Víkurbraut, og enn fremur verður hann mjög miðsvæðis, þegar fram líða stundir. Þar er nú kirkja í byggingu. FJÖLBÝLISHÚSAHVERFI Umhverfis miðkjarna er FV 2 1975 71
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.