Frjáls verslun - 01.02.1975, Blaðsíða 23
Skrifstofur SAS og ferðaskrifstofur eru í beinu
sambandi við tölvumiðstöð SAS í Kaupmanna-
höfn og senda farpantanir þangað.
Með tilkomu DC-10 þotnanna hafa vöruflutning-
ar SAS aukizt mikið. Sendingar fara nú á pöllum
heimsálfa á milli.
út fyrir ytri mörk félagsins
sjálfs. Hagrup bendir á, að SAS
sé dæmi um samstarf þriggja
Norðurlandaþjóða, sem megi
þó auðveldlega víkka út, þannig
að það nái til fleiri. Slíkri sam-
vinnu SAS og Swissair var
komið á 1958 með samningi til
10 ára um samstarf á mörgum
sviðum. Þessi samningur var
endurnýjaður og gildir til 1978.
Hann lýtur einkanlega að tækni-
málum, m.a. samræmingu á
tæknibúnaði flugvéla og við-
haldi.
KSSU - SAMTÖKIN
Þegar SAS og Swissair
ákváðu að panta hvort um sig
tvær flugvélar af gerðinni Bo-
eing 747, var séð fram á að sam-
eiginlegur floti fjögurra fllug-
véla væri ekki nægur til að
standa undir kostnaði af tækni-
búnaði á jörðu niðri fyrir þess-
ar vélar og viðhaldsaðstöðu. Þá
kom fram hugmynd um að
breikka samstarfsgrundvöllinn
enn frekar og fyrir valinu varð
hollenzka flugfélagið KLM.
Samkomulag náðist milli þess-
ara þriggja félaga um að sam-
ræma allan búnað Boeing 747-
flugvéla sinna og gera sameignr
leg innkaup hjá framleiðandan-
um. Félögin mynduðu svo með
sér formlegan félagsskap 1969,
sem kallaðist KSS - samtökin,
og var svo um samið, að þau
keyptu saman nýjar flugvélar,
skiptust á tæknilegri þjónustu,
tryggðu sameiginlega o.s.frv. Þá
var ákveðið að kaupa eitt sam-
eiginlegt kennslutæki, eftirlík-
ingu af flugstjórnarklefa
Boeing 747 fyrir flugmenn allra
félaganna til að æfa sig í. Með
þessu sparaðist mikið fé og mun
svo enn verða.
Þegar þessi KSS - samtök
töldu tímabært að kaupa flug-
vélar af gerðinni DC-10, óskaði
franska flugfélagið UTA eftir
samstarfi, því að það ætlaði
líka að fá vélar af þeirri gerð.
Frá 1970 hafa samtökin því
verið nefnd KSSU og þótt erfitt
sé að meta starf þeirra til fjár
hefur SAS þó sparað sér álit-
legar upphæðir á ári hverju
vegna þátttöku sinnar í því.
Samanlagður flugfloti KSSU
er um 200 flugvélar. Gert er ráð
fyrir, að 1970 verði breiðþotur
samtakanna orðnar 50 talsins.
Starfsmenn félaganna fjög-
urra eru um 45.000, þar af eru
starfsmenn SAS, Swissair og
KLM á bilinu 12-15.000 hjá
hverju félagi, en 5000 manns
vinna hjá UTA. KSSU - samn-
ingurinn gerði ráð fyrir, að á
fimm ára tímabili 1971 - 1975
myndu félögin þiggja vissan
vinnustundafjölda hvert hjá
öðru. Þeir hafa samanlagt verið
metnir á um 10. millj. dollara á
ári. Vegna samstarfs í trygging-
armálum hafa iðgjöld SAS af
flugvélatryggingum lækkað um
hér um bil 7 millj. norskra
króna á ári.
DÓTTURFYRIRTÆKI
OG ÖNNUR TENGD
50 TALSINS.
Þá vék Knut Hagrup að dótt-
urfyrirtækjum SAS og þeim
margþætta rekstri, sem félagið
er nú aðili að. Um þessar mund-
ir eru dótturfyrirtækin og önn-
ur tengd félaginu alls 50 talsins,
þar af eru 20 starfandi að fram-
leiðslu eða þjónustu. Hótelrekst-
ur hóf SAS 1960 og nú rekur
félagið 10 hótel í Skandinavíu,
þrjú í Kaupmannahöfn, tvö í
Oslo, eitt á hverjum þessara
staða: í Stafangri, Bodö, Tromsö
FV 2 1975
23