Frjáls verslun - 01.02.1975, Blaðsíða 67
Sigurplast hf.: >
Unnið á vöktum allan sólarhringinn
við umbúðaframleiðslu
Sigurplast hf. við Elliðavog 117 er með pIastframleiðsJ,u í aðeins fastara formi ef svo má að orði
komast. Þar eru framleiddar allskonar flöskur, glös, brúsar, krukkur og talsvert af mekaniseruðum
og öðrum hlutum úr plasti.
Sjampóið sem þú notar eða
kryddið eða terpentínan er að
öllum líkindum úr umbúðum
frá þessari verksmiðju. Sigur-
plast hf. var stofnsett árið
1960 og sameinaðist fljótlega
þeirri deild sápugerðarinnar
Frigg sem framleiddi umbúðir
fyrir Frigg. Reksturinn gekk
samt dálítið erfiðlega þar til
gripið var til þess ráðs að
kaupa Orraplast hf., sem
sendi frá sér sams konar vöru
en siðan hefur hann gengið
vel.
Framkvæmdastjóri er Knud
Kaaber. Hann segir:
■—- Það eru mest önnur iðn-
fyrirtæki sem versla við okk-
ur. Þar má t. d. nefna sápu-
gerðir, lyfjaverzlanir, efna-
gerðir, olíufélögin og svo vissir
matvælaframleiðendur. Flestir
af okkar stærri viðskiptavinum
eiga sín eigin mót fyrir þær
flöskur eða glös sem þeir nota
undir framleiðslu. Þessi mót
eru geysilega dýr en sem bet-
ur fer er hægt að fá fleiri en
eina „tegund“ úr hverju móti.
Þar er nú eiginlega svindlað
dálítið, því lögunin er alltaí
eins. Hins vegar er hægt að
hafa plastið mjúkt eða hart
og eins er hægt að hafa það
í mismunandi litum og þann-
ig er hægt að nota ílát úr
sömu mótunum undir mis-
munandi vörutegundir.
Flest mótin eru smíðuð hér
á landi hjá fyrirtæki sem heit-
ir Mót og stansar hf.
VONLAUST AÐ
FJÁRFESTA NÚ
Við viljum auðvitað færa út
kvíarnar og fullkomna fram-
leiðsluna og gera hana fjöl-
breyttari, en verðum líklega
að una við það sem við höfum
í bili því það er algerlega
vonlaust að ætla sér að fjár-
festa eittíhvað eins og nú
stendur í efnahagsmálunum.
— Það var mikil heppni að
reksturinn í fyrra gekk vel og
við vorum svo bjartsýnir að
fara út í töluverð vélakaup.
Við erum því ágætlega stadd-
ir að því leyti, með góðar og
fullkomnar vé'lar. Það er því
ekki beinlínis nein neyð að
þurfa að halda að sér höndun-
um í bili þótt ég vildi gjarn-
an leggja út í vélakaup sem
með tímanum myndu bæði
spara okkur peninga og þjóð,-
arbúinu gjaldeyri.
Við kaupum langmest af
okkar hráefni frá Þýzkalandi.
Plastið kemur í ögnum, einna
líkast hrísgrjónum og við full-
vinnum það svo, bætum t. d.
í það litarefnum ef með þarf.
Við höfum líka hérna sér-
staka vél til að prenta á flösk-
urnar og dósirnar, þannig að
varan cr alveg fullunnin þegar
hún fer frá okkur. Það eru
um 250 lestir af ári sem við
kaupum af hráefni erlendis
frá.
Á þessu eru auðvitað tollar,
frá 5 og upp í 10 prósent og
flutningar og tollar eru okkur
dýrir. Einnig söluskattur af
vélum. Hann var að vísu
lækkaður um 50 prósent um
síðustu áramót, en það hefur
ekki komið okkur til góða enn-
þá. Hins vegar hækkaði gengis-
fellingin eðlilega skuldir okk-
ar erlendis. Sem betur fór
áttum við ekki nema tvær af-
borganir eftir af dýrustu vél-
inni. Það hefði getað verið
verra.
Sigurplast
framleiðir
margs
knnar
plastum-
búðir,
flöskur,
brúsa og
krukk'ar.
Knud
Kaaber
framkv.stj.
sýnir
þarna
nokkrar
tegundir.
FV 2 1975
07