Frjáls verslun - 01.02.1975, Blaðsíða 9
Illa hefur árað hjá En-
ergoprojekt, verktökun-
um við Sigölduvirkjun.
Fyrirsvarsmenn þessa
júgóslavneska fyrirtækis
sjá fram á stórfellt tap
á verkinu og hafa reynt
að losa sig út úr því og
viljað fela Landsvirkjun
að sjá um afganginn. í
vetur var svo komið, að
matvælafyrirtæki, sem
Júgóslavarnir skiptu við,
neituðu orðið a'ð skrifa
hjá Energoprojekt. Þá
segja kunnugir, að vetr-
arveður á hálendinu hafi
valdið miklum töfum en
hitt sé líka athyglisvert,
að þegar veður tók að
skána eftir áramót hafi
mannskapurinn slappað
af í langan tíma og lítið
verið aðhafzt við fram-
kvæmdirnar.
Lítil von er talin til
þess aS íslenzk yfirvöld
komist að neinni ákveð-
inni niðurstöðu um upp--
runa þessara vatnssæknu
hlustunartækja, sem hér
hafa fundizt upp á síðr
kastið ýmist í ferskvatni
eða söltum sjó. Allavega
er ekki við því að búast,
að utanríkisráðuneytið
eða aðrar stjórnardeildir
láti neitt frá sér fara op-
inberlega um hverjir hin-
ir raunverulegu eigendur
tækjanna hafi verið, þó
að embættismenn telji
sig hafa fulla vissu fyrir
því. Samkvæmt áreiðan-
legum heimildum hafa
þessi hlustunartækjamál
þó vakið ábyrg yfirvöld
til alvarlegrar ihugunar
um ástand öryggisgæzlu
íslenzka ríkisins, sem
segja má, að ekki sé til
staðar. Eina raunveru-
lega niðurstaðan í hlust-
unartækjamálunum verð-
ur því sennilega sú að
öryggisgæzla verður efld
og þá einkanlega eftirlit
með starfsemi erlendra
sendiráða hér á landi.
Sjómenn, aðilar í fisk-
vinnslu og útflutningsfyr-
irtæki sjávarútvegsins
hafa bundið nokkrar
vonir við fiskkassana svo-
nefndu til geymslu á
fiski um borð í skipum
og í vinnslustöðv’um í
landi. Þessir kassar hafa
verið um borð í nokkr-
um hluta togaraflotans
enda fer ekki á milli
mála, að fiskur á að
komast í hærri gæða-
flokka með slíkri með-
ferð. Ekki reynist þetta
þó einihlítt hér á landi og
á þessu sviði ætla byrj-
unarörðugleikarnir að
segja til sín eins og svo
víða annars staðar. Á
vegum sölusamtaka í
sjávarútveginum fer nú
fram rannsókn á
skemmdum fiski frá
Vestfjörðum, sem beinlín-
is eru taldar stafa af
geymslu hans í fiskköss-
unum góðu.
Stjórnendur sjón-
varpsins ætla að standa
fast á ákvörðun sinni um
að veita engan afslátt af
afnotagjöldum, þó að í-
búar einstakra byggðar-
laga úti í strjálbýlinu
hafa kvartað undan mjög
lélegri og á köflum alls
engri móttöku sjón-
varpsmyndar. Telja sjón-
varpsmenn að miklu
fleira myndi fylgja á eft-
ir, yrði gengið til móts
við þessa sjónvarpsnot-
endur, m. a. það, að
auglýsendur myndu fara
fram á bætur, ef sjón-
varpið viðurkenndi þann-
ig að auglýsingar næðu
ekki til alls markaðarins,
sem þær eru seldar fyrir.
Eftir síðustu gengisfell-
ingu gekk sú saga fjöll-
unum hærra, að stjórn-
endur SÍS hefð’u eitt-
hvert ekstra skilning-
arvit, þegar um væri að
ræða viðeigandi ráðstaf-
anir vegna yfirvofandi
gengisfellingar. Þótti það
þó ekki merkilegt, þegar
hafðar voru í huga meld-
ingar viðskiptaráðherra á
Framsóknarfundinum
fræga. Ýmsir velta því
aftur á móti fyrir sér,
hvernig SÍS fari að því
að leysa út á einu bretti
vörur fyrir á annað
hundrað milljónir króna.
Á vegum menntamála-
ráðuneytisins starfar nú
nefnd, sem kannar skil-
yrði til að hefja kennslu
í fjölmiðlun m. a.
blaðamennsku og rekstri
útvarps og sjónvarps víð
Háskóla íslands. Undir-
tektir hafa verið jákvæðr
ar nema hvað tannlækna-
deild telur þetta ótíma-
bært meðan hún fær
ekki fleiri tannlækna-
skóla!
FV 2 1975
9