Frjáls verslun - 01.02.1975, Qupperneq 55
Frá inámskeiði fyrir kerfisfræðinga, sem vinna við vélar frá IBM.
sem betur fer, vegna þess að
viðskiptahaettirnir eru þá ó-
umdeilanlega heilbrigðir og
við erum ekki sakaðir um ein-
okun.
— Hver hefur verið þróunin
hér á landi í sambandi við
notkun á tölvum og hverjir
eru stærstir á því sviði?
— Fyrsta tölvan kom til
landsins 1964, til Háskóla ís-
lands og er hún enn í notkun
þar.
Skýrsluvélar ríkisins og
Reykjavíkurborgar eru með
stærstu tölvusamstæðuna, sem
er notuð fyrir mjög fjölbreyti-
leg verkefni fyrir hinar ýmsu
ríkis- og borgarstofnanir. Á
næstu vikum verður sett upp
mjög stór tölva fyrir Reikni-
stofu bankanna og kemur hún
til með að þjóna öllum bönk-
unum og þar verða m. a. vélar
til að lesa og raða ávísunum.
Er þetta merkilegur áfangi í
þróun tölvutækni hérlendis,
þar sem um beinan lestur á
frumgögnum er að ræða.
Það yrði of langt mál að
fara að telja hér upp alla þá
aðila, sem nota tölvur hér á
landi, en mér telst til að þeir
séu 16, sem hafa stórar og
fullkomnar tölvur.
Merkilegum áfanga var náð
nú um áramótin, þegar fyrsta
tölvan var sett upp úti á landi,
hjá nýstofnuðu fyrirtæki á ísa-
firði, Reiknistofu Vestfjarða.
— Þið eruð sjálfir með stóra
tölvu.
— Það er rétt. Við erum með
stóra tölvu og vinnum á hana
verkefni fyrir hart nær 100
viðskiptavini. Það eru mest
ýmis konar bókhalds- og
launaverkefni, en einnig vís-
inda- og tækniútreikningar.
Þessi þjónusta hefur vaxið
mjög mikið á síðustu árum.
— Hver telur þú, að þróun-
in muni verða í framtíðinni í
sambandi við tölvunotkun hér
á landi?
— Þessu er erfitt að svara
í stuttu máli, en ég tel að á
mörgum sviðum séum við á
eftir okkar nágrannaþjóðum
í notkun tölva, en bilið stytt-
ist þó óðum.
Sú aðferð að nota símalínur
til að koma boðum milli not-
enda og tölvunnar mun áreið-
anlega verða notuð í auknurn
mæli.
Fjarvinnsla.
Hér er átt við svokallaða
fjarvinnslu, sem byrjað var á
hérlendis á s.l. ári, þegar
Borgarspítalinn fékk spjalda-
lesara og prentara, sem staðr
sett eru á spítalanum og eru
tengd við tölvu Skýrsluvéla
með símalínu. Síðan hefur
þessi þróun haldið áfram og
var ég nú rétt í þessu að
frétta af því, að KEA á Akur-
eyri hafi sent sínar fyrstu
upplýsingar á símalínu til úr-
vinnslu í tölvu SÍS í Reykja-
vík.
Ég geri ráð fyrir, að í
framtíðinni verðd tölvur not-
aðar meira og meira í sam-
bandi við ákvörðunartöku af
ýmsu tagi, vegna þess að tölva
getur unnið úr miklu magni af
upplýsingum og reynslu og
gefið upp, hverjar afleiðingar
hinar mismunandi ákvarðanir
hafi í för með sér, áður en
þær eru teknar í raun og
veru.
Tölvutæknin í þágu
atvinn'uveganna.
Að lokum sagði Ottó, að
IBM væri alltaf að leita að
nýjum mörkuðum hér á landi.
Hann nefndi, að tryggingar-
félög, bankar og olíufélögin
hefðu tileinkað sér tölvutækn-
ina, en miklu stærri verkefni
biðu í vísindum og atvinnu-
lífinu. Nefndi hann sem dæmi,
að kynbætur og litasamsetn-
ing ullar hefði þegar verið
unnið í tölvu en spurningin
væri, hvort ekki ætti að geiv
skipstjórnarmönnum kleift að
leita ráða hjá tölvunni um til-
högun fiskveiða með hliðsjón af
veiðarfærum um borð, árstím-
anum, sem veiðarnar skyldu
stundaðar á, og tegund fisks,
sem markaðurinn óskaði eftir
o. fl.
BLÓMASTOFA FRIÐFINNS
Suðurlandsbraut 10. Sími 31099
SKREYTINGAR VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI. — GJAFAVÖRUR I ORVALI.
FV 2 1975
55