Frjáls verslun - 01.02.1975, Síða 63
Plastprent hf.:
Byrja framleiðslu á bygginga-
plasti í nýrri deild
Þú ert á leiðinni út úr mat-
vöruverzluninni sem þú heim-
sækir á nær hverjum degi. í
hægri hendinni heldur þú á
plastpoka, með nafni verzlun-
arinnar áprentuðu og hann er
fullur af því sem þú og fjöl-
skyldan borðið næstu daga og
ýmsum öðrum hlutum.
Það er með plastið eins og
vatnið, það er orðið svo al-
gengt í daglegu lífi að við er-
um löngu hætt að taka eftir
því. Og það eru sjálfsagt að-
eins örfáir sem leiða hugann
nokkurntíma að því að þetta
er framleiðsluvara, aði það
voru reistar verksmiðjur til að
framleiða það og allstór hóp-
ur manna hefur af þessu sitt
lífsviðurværi. Við fórum í
heimsókn í nokkrar verksmiðj-
ur.
Við GrenSásveg 7 er fyrir-
tækið Plastprent hf. Það var
stofnsett árið 1958 og var
smátt í sniðum í fyrstu en
hefur heldur vaxið fiskur um
'hrygg og 25 prósent fram
leiðsluaukning að meðaltali,
undanfarin ár hefur leitt til
þess, að í næsta mánuði
verður flutt í rúmlega helm-
ingi stærra húsnæði. Fram-
kvæmdastjóri er Haukur Egg-
ertsson. Hann greir.di frá
helztu framleiðsluvörunum.
— Meginuppistaðan í fram-
leiðslu okkar eru plastpokar af
ýmsum stærðum og gerðum.
Starfsemin byrjaðd með fram-
leiðslu fyrir önnur iðnfyrir-
tæki og það er enn verulegur
hluti af henni. Uppbyggingin
hefur þó breyst að því leyti á
undanförnum árum að við er-
um farnir að framleiða svo-
nefndar endursöluvörur fyrir
verzlanir. Við gerum einnig
umbúðir fyrir verzlanirnar
sjálfar, til innpökkunar og
burðarpokarnir sem vörurnar
eru afhentar í eru þar stærsti
liðurinn.
MARGS KONAR PRENTUN.
— Ýmiskonar plastumbúðir
fara þó beint inn á heimilin
til notkunar þar og má þar t.
d. nefna heimilisplastpokann
sem sjálfsagt fæst nú í öllum
matvöruverzlunum.
— Við höfum góðar prent-
vélar og hliðarframleiðsla hjá
okkur er prentun á allskonar
aðrar umbúðir, svo sem selló-
fan fyrir sælgætisiðnaðinn,
smjörlíkispappír og umbúða-
pappír.
— Fyrirtækið hefur vaxið
hægt, en nokkuð örugglega og
nú er að hefjast nýr kafli.
Það má segja að, framleiðslan
sé í þrem stigum. Númer 1 er
framleiðsla slöngunnar úr
grunn-hráefninu, númer 2 er
prentunin og númer 3 er poka-
framleiðslan. Hingað til höfum
við fengið okkur hráefni í
slönguformi og þvi aðeins ver-
ið með tvö stig. Við höfurn
keypt plastið í slönguformi,
nokkurnvegin jöfnum höndum
frá Reykjalundi og erlendis
frá.
NÝTT HÚSNÆÐI.
— Nú erum við að flytja
inn á Höfðabakka 9, þar sem
við fáum rúmlega 2000 fer-
metra húsnæði í stað tæplega
900 sem við höfðum hér og
þangað eru komnar vélar sem
framleiða slönguna fyrir okk-
ur. Þær framleiða það mikið
að við losnum við innkaup er-
lendis frá, en hins vegar er á-
ætlaði að viðskiptin við Reykja-
lund verði óbreytt.
Haukur
Eggertsson
með sýnis-
horn af
plastpoka,
sem gerðir
eru hjá
Plastprent.
FV 2 1975
63