Frjáls verslun - 01.02.1975, Page 74
Verzlunarbankinn í Keflavík
Innlánin jukust um 48%
í fyrra en útlán um 15%
Rætt við Helga Hólm, útibússtjóra
Innlánsaukning í útibúi Verzlunarbanka íslands hf. í Kefla.vík, nani 48% á síðasta ári, sem er
langt yfir meðal innlánsaukningu, og útlán jv kust um 15% á sama tíma. Viðskiptavinir út>
búsins, sem stofnað var í marz, 1963, skipta nú þúsundum, og mánaðarleg velta er 400 til
500 milljónir króna, sé upphæð útlána og innlána lögð saman.
Þetta kom fram er F.V.
ræddi við útibússtjórann, Helga
Hólm. í haust mun útibúið
flytja í eigið húsnæði, sem
það keypti á jarðhæð í nýju
verzlunarhúsi á mótum Vatns-
nesvegar og Framnesvegar.
Útibúið veitir alla venjulega
bankaþjónustu nema gjald-
eyrisviðskipti. Viðskiptasvæði
eru Suðurnes, sunnan
Straumsvíkur.
Helgi sagði að mestur hluti
viðskiptavinanna væru ein-
staklingar og fjölgaði þeim
stöðugt, eins og innlánsaukn-
ingin segði nokkuð til um.
Hann hélt fast við að grædd-
ur væri geymdur eyrir. Fólk
ætti þá peninga, sem það hefði
lagt inn á banka og fengi á þá
vexti, en sömu sögu væri ekki
hægt að segja um fólk, sem
eyddi öllum sínum peningum
oft og tíðum í vitleysu, einung-
is til að láta þá ekki rýma í
banka í verðbólgunni. Hann
sagðist hvetja fólk til að leggja
fyrir, því þannig væri það að
byggja sig upp í tvennum
skilningi. Annars vegar þyrfti
það ekki eins stórt lán, þegar
til kæmi, og hinsvegar væri
eðlilega auðveldara fyrir góða
viðskiptavini að fá lán í bank-
anum, en aðra aðila. Hann
vildi einnig hvetja almenning
til að nota ávísanareikninga
meira, þótt launin væru ef til
vill fljól að fara í gegn um
þá, þvi bankarnir hefðu alltaf
talsverc ráðstöfunarfé með
því móti og margt smátt gerði
eitt stórt í viðskiptum ein-
staklinganna við bankann.
AUKIN VERZLUN.
Verzlun á Suðurnesjum hef-
ur vaxið verulega á síðustu
árum og þar með viðskipti við
útibúið. Sagði Helgi að fyrir
fáum árum hefði ekki veiið
óalgengt hlutfall að um 70%
ávísana viðskiptavina útibús-
ins, hefðu verið leystar út í
Reykjavík, sem gæfi vís-
bendingu um hvar fólkið verzl-
aði. Nú væri hlutfallið orðið
jafnt milli Suðurnesja og
Reykjavíkur. Verzlun á Suður-
nesjum ætti þó í ýmsum erf-
iðleikum eins og t. d. að þurfa
að aka öllum vörum frá
Reykjavík, jafnvel þótt skip
með viðkomandi vörur, hefðu
fyrst komið til Keflavíkur, á
leið til Reykjavíkur. Engin
tollvörugeymsla væri í Kefla-
vík, en það stæði þó væntan-
lega til bóta þar sem stofnað
hefur verið félag um rekstur
tollvörugeymslu í Keflavík.
ERFIÐLEIKAR ÚTGERÐAR.
Mesti og vaxandi hlutur út-
lána, fer til iðnaðarfyrirtækja
og þjónustufyrirtækja við
bátaflotann og frysti'húsin.
Helgi sagði að ástand þessara
fyrirtækja á Suðurnesjum
virtist óvenju slæmt, ef á
heildina væri litið á öllu land-
inu, og væri ein skýringin
líklega sú að frystihúsin á
svæðinu væru yfirleitt gömul
og þyrftu mikið viðhald, og
bátaflotinn hefði hæsta meðr
alaldur á landinu, sem þýddi
mikinn viðhaldskostnað. Út-
gerðin hefur átt í erfiðleik-
um að undanförnu og átt erf-
itt með að greiða svona
reikninga, sem leiðir af sér að
þjónustufyrirtækin eiga orðdð
allt of mikið útistandandi hjá
henni. Þau hafa ekki haft
eðlilegt bolmagn til að endur-
bæta tækjakost og freistast
jafnvel til þess af rekstrarfé,
og því eru þau mörg illa stödd
Um samskipti aðalbankans
og útibúsins, sagði Helgi, að
þau væru mikil, aðalbankinn
sæi t. d. um bókhaldið og
þar væri fjallað um lánaum-
sóknir: Á meðan útibúið væri
að skapa sér góða fótfestu í
Keflavík, taldi hann að náið
samstarf við aðalbankann væri
mjög æskilegt, enda reyndir
menn þar til ráðuneytis. Hins-
vegar taldi hann vel koma til
álita að í framtíðinni yrði
skipuð sérstök stjórn heima-
manna fyrir útibúið og það
yrði heldur sjálfstæðara.
Að lokum sagði hann um
bankamál almennt, að sér
fyndist að bankarnir ættu að
vera meira ráðgefandi aðilar
en þeir eru nú, líkt og tíðk-
ast víða erlendis. Vísir væri
að þessu með tilkomu hag-
deildar Verzlunarbankans, en
aukin þessháttar þjónusta
kæmi viðskiptavinunum til
góða, ekki síður en bönkun-
um, sem gætu um leið gert sér
gleggri grein fyrir gagnsemi
útlánanna.
74
FV 2 1975