Frjáls verslun - 01.05.1975, Qupperneq 37
Talsmenn verzlunarsamtakanna spuróir
Hver er staða verzlunarinnar ?
FRJÁLS VERZLUN bað franikvænidastjóra verzlunarsamtakanna að lýsa í stuttu máli viðhorfum
þeirra til síðustu aðgerða í efnahagsmálum, þróunarinnar undanfarna mánuði og hverju þeir vitdu
spá um framvindu mála á næstunni. Þeir sem svara spurningunni að þessu sinni eru: Magnús
Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka íslands og Júlíus S. Ólafsson, framkvæmdastjóri
Félags ísl. stórkaupmanna og Bílgrcinasambandsins.
„Samdrátturinn er minni
búast hefði mátt við“
- segir
IVIagnús
Finnsson
Ef fyrst er vikið að álagningarmálum, þá er það ljóst, að stefna
Kaupmannasamtaka íslands hefur frá upphafi verið sú, að álagn-
ing verði gefin frjáls á öllum vörutegundum. Við teljum, að það
verðlagskerfi sem í gildi er í dag sé orðið úrelt og samræmist ekki
þcim breyttu þjóðfélagsaðstæðum, sem orðnar eru í vestrænum
hcimi.
Magnús
Finnsson,
fram-
kvæmda-
stjóri
Kaup-
manna-
samtaka
íslands.
Hér er átt við, að verðlagsá-
kvæðin séu leifar frá þeim tíma
þegar vöruframboð var af
mjög skornum skammti vegna
hafta, sem hið opinbera setti og
vörudreifing var á fárra hönd-
um. Þegar vöruframboð er orð-
ið jafnmikið og nú, og eftir-
spurnin mikil, myndast jafn-
vægi í þessum málum.
Kaupmannasamtök íslands
telja jafnframt, að með því að
gefa verðlag frjálst sé stigið
stærsta skrefið í þá átt að draga
úr verðbólgu.
® STRÖNG VERÐLAGS-
ÁKVÆÐI —
MINNA VÖRUFRAMBOÐ
Með þvi að beita ströngum
verðlagsákvæðum er stuðlað að
því að framboð af vörum
minnki og ýmsar vörutegundir
hverfi af markaðinum eða að
vörur verði á hærra verði en
eila. Það er skoðun allra, að sá
sem leggur á sig mikla vinnu
með starfi, sem er arðbært fyr-
ir þjóðarheildina og aflar gjald-
eyris, eigi að bera ávöxt af því.
Jafnframt á sá aðili, sem gerir
hagstæð vöruinnkaup og sparar
þannig gjaldeyri og útgjöld að
fá að njóta sín.
Til þess að verðlag verði gef-
ið frjálst þarf að gera ýmsar
ráðstafanir. Setja þarf lög um
hringamyndun og samkeppnis-
hömlur, þannig að komið sé í
veg fyrir að einstakir aðilar
geti náð undirtökum í verzlun
FV 5 1975
37