Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1979, Page 12

Frjáls verslun - 01.01.1979, Page 12
Gísli J. Johnsen h.f. flytur í febrúarmánuði nk. í nýtt og eigið húsnæði að Smiðjuvegi 8 í Kópavogi, en fyrirtækið hefur verið starfrækt sl. 14 ár á Vesturgötunni í Reykja- vík. Verður nú veruleg aukning á húsrými, sem gefur aukna möguleika á betri þjónustu til handa viðskipta- mönnum fyrirtækisins. í tengslum við nýtt og stærra húsnæði verður vöruúr- valið aukið og er þar fyrst að nefna, að Gísli J. Johnsen hf. hefur nú söluumboð á islandi fyrir Ijósritunarvélar, frá þýska fyrirtækinu Kalle Infotec. Infotec Ijósritunarvélarnar eru fyrir venjulegan pappír og til í fjórum gerðum og geta Ijósritað beggja megin. Þær geta einnig Ijósritað glærur og löggiltan skjala- pappír svo dæmi sé nefnt. Infotec Ijósritunarvélarnar hafa verið mest seldu Ijósritunarvélarnar í Evrópu. Þá verður einnig farið að bjóða upp á skrlfstofuhús- gögn frá Facit fyrirtækinu í Svíþjóð, en Gísli J. Johnsen hf. hefur um árabil haft umboð fyrir ritvélar og reiknivél- ar frá þessu stóra fyrirtæki. Verður um tvær gerðir innréttinga að ræða, Facit Data og Facit 80, en innréttingarnar eru byggðar upp sem kerfl, þar sem öll húsgögnin mynda eina heild, og sam- anstanda m.a. af skrifborðum, vélritunarborðum, skáp- um, t.a.m. skjalaskápum, hillum og færanlegum milll- veggjum, sem festa má á hillur og skápa, en þelr eru með melri hljóðdeyfingu en aðrir milliveggir á mark- aðnum. Einnig er unnt að fá hina ýmsu fylgihlutl eftir þörfum hvers og eins. Má og geta, að hæð á borðfótum er stlllanleg t.d. á skrifborðum. Facit Innréttingarnar verða fáanlegar í eik í mismun- andi litum, og klæðnlng á skllveggjum verður einnig til í nokkrum litum. GISLI J JOHNSEN HF Facit innréttingar á skrifstofuna 12

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.