Frjáls verslun - 01.01.1979, Blaðsíða 61
■ Framfaraár
hreyfla herflutningavél á leið til Grænlands. Allt
betra en biðin. Eftir 4 tíma flug lendum við í Goose
Bay á Labradorströnd. Hér eigum við að dvelja
jólanóttina. Þetta er ömurlegur staður. Grimmdar-
gaddur og allt að tveggja metra hár snjór. Við fáum
ágætt herbergi á Hótel ,,De Gink“. En mat fáum við
í Officeraklúbbnum. Tómatsúpu og Corned Beef.
Við urðum sjálfir að ganga um beina. Þetta er sá
lélegasti jólamatur, sem ég man eftir að hafa neytt.
Var hann þó líklega ekki slæmur. En okkur hefur
dreymt um jólagraut og rjúpur.
Þetta voru dauf jól. Við dauðleiðir hvor á öðrum
og með hugann allt annars staðar, og svo eru
engin jól hér fyrr en á morgun; það er svo í hinum
enska heimi. Við kunnum því illa, að sjá menn
drukkna, dansandi og syngjandi á jólanóttina. En
þetta er þeirra Þorláksmessa eða Þrettándi.
Jóladagur. Við erum snemma á fótum. Biðjum
um morgunverð. En hér fæst ekkert. Þeir, sem eru
vakandi, hafa ekki lagt sig ennþá. Allir eru hálfir.
Gleðileg jól! Gleöileg jól! Hópur ungra liðsfor-
ingja í sólskinsskapi bjóða okkur inn í eldhús.
Gjörið þið svo vel, hér er nægur matur — jóla-
maturinn. Veriö þið nú gestir okkar. Hvað má
bjóða ykkur. Akurhænsn, Svínasteik, pie eða
pudding? Já, og bjór! Blessaðir drekkið þið bjór.
Þarna var regluleg jólastemmning í eldhúsinu,
glatt á hjalla og gaman að strákunum.
Við þökkuðum og kvöddum og lögðum af stað
frá Goose Bay löngu fyrir birtingu. Mjög dimmt var
þó ekki. Snjór á jörðu og heiðríkja á lofti. Ekki
höfðum við farið lengi fyrr en lýsa tók af degi. Og
brátt Ijómandi dagur í austri — jóladagurinn. Við
höldum beint á móti honum, stefnum á suðurodda
Grænlands. Nú tekur að kólna í vélinni og það til
muna. Hitaleiðslan hefur bilað og við sitjum þarna í
40—50 st. frosti í 6000 feta hæð. Við fáum nóg af
ábreiðum og skinnfötum. En fótakuldinn er verst-
ur. Þetta eru köld jól, en útsýniö er fagurt. Að vísu
sjáum við ekkert nema niður á skýjabólstrana,
glitrandi í sólinni. Flugvélin lækkar sig. Skýin
hverfa, og við okkur blasir land — Grænland. Við
fljúgum inn Eiríksfjörðinn og lendum á flugvellin-
um á Narsarssoak eftir röskra fjögurra tíma flug frá
Goose Bay.
Jól í Grænlandi. Hér er snjólítið og alls ekki kalt.
Allmikið skógarkjarr er í fjallshlíðunum, og dalur-
inn, sem flugvöllurinn liggur í, hinn vinalegasti. En
Grænlendinga sjáum vér hér enga og heldur ekki
þann litla sel, sem burt ber heimsins synd. Hér
höfum við tveggja tíma viðdvöl. Komum beint í
jólamatinn. Kalkún vitanlega og ný jarðarber
(frosin) í ábætir.
Kl. 2 lögðum við af stað til íslands og tökum
beina stefnu á Keflavík, þvert yfir suðurodda
Grænlands. Nú erum við í léttu skapi, eigum að-
eins 4% tíma flug fyrir höndum. Náum þó í jólin
heima íkvöld. í hinni ísköldu flugvél ferylur um mig
FRIDÍÍN sjálfvirka reiknivélin er slarf-
andi lijá sjölíu íslenzkmn fyrirla*kjuni
og óskar eflir að koinast að enn víðar.
EinkaumboS:
HeildveTzlun Magnúsai Kjaian.
61