Frjáls verslun - 01.01.1979, Blaðsíða 81
■ Sóknarár\
Verzlunarskólinn 50 ára
Verzlunarskóli íslands var, svo sem kunnugt er,
stotnaður árið 1905 og verður því fimmtugur á
þessu ári. Þessara merku tímamóta í sögu skólans
mun verða minnzt á hausti komanda, m.a. með
útgáfu minningarrits. Verður þar að nokkru rakin
saga skólans. Hér skal aðeins drepið á örfá
meginatriði.
Kaupmannafélagið og Verzlunarmannafélagið í
Reykjavík stóðu aö stofnun skólans. Kusu þau fé-
lög fyrstu stjórnarnefnd skólans. Skólastjóri var
ráöinn Olafur G. Eyjólfsson, maður prýðilega
menntaður bæði almennt og í verzlunarfræðum
sérstaklega. Veitti hann skólanum forstöðu tíu
fyrstu árin, sem hann starfaöi. Þótt við mikla fjár-
hagsörðugleika væri að etja, dafnaði skólinn
furöanlega. Starfaði hann' lengst af í þremur
deildum: undirbúningsdeild, miðdeild og efstu
deild. ,
Er Ólafur G. Eyjólfsson lét af skólastjórn árið
1915, var Jón Sivertsen ráðinn forstöðumaður
skólans. Gegndi hann því starfi til ársins 1931.
Aðsókn að skólanum fór stöðugt vaxandi, en fjár-
hagurinn var jafnan mjög erfiður og húsakynnin
óhentug. — Tvennt má merkast telja í sögu skól-
ans á þessu tímabili: Fyrst það, er Verzlunarráð
íslands tók að sér rekstur skólans. Var frá þeim
málum að fullu gengið í júlí árið 1922. Skipaði
Verzlunarráðið þá sérstaka skólanefnd til að hafa
á hendi málefni skólans. Hinn merkisatburðurinn
var sá, er stofnaður var 3. bekkur árið 1926.
Lengdist námið þá um eitt ár. Var skólinn þannig
þriggja ára skóli, auk undirbúningsdeildar.
Árið 1931 lét Jón Sivertsen af stjórn skólans.
Urðu það ár mikil þáttaskil. Ráðizt var í að kaupa
húseignina Grundarstíg 24, þar sem skólinn hefur
starfað síóan. Hlutafélag var stofnað til að annast
þessi húsakaup. — Um leið og skólinn flutti í hin
nýju húsakynni, tók Vilhjálmur Þ. Gíslason við
stjórn hans. Efldist skólinn nú brátt að nemenda-
fjölda og fjölbreytilegri möguleikum til náms. Árið
1935 var skólanum breytt úr þriggja ára skóla í
fjögurra ára skóla. Framhaldsdeild var starfrækt
um tíma fyrir þá, er lokið höfðu verzlunarprófi.
Sum árin var og efnt til ýmissa sérnámskeiða. Loks
var merkilegum áfanga náð með stofnun lær-
dómsdeildar við skólann árið 1942. Tók hún til
starfa haustiö 1943. Lærdómsdeildarbekkirnir eru
tveir, 5. og 6. bekkur. Fyrstu stúdentarnir frá
Verzlunarskólanum brautskráðust vorið 1945.
Eiga þeir því nú á vori komanda tíu ára
stúdentsafmæli.
Lengi stóð það Verzlunarskólanum mjög fyrir
þrifum, að allir kennarar við hann voru stunda-
kennarar. Árið 1941 var fyrst ráöinn einn fastur
kennari viö skólann, en 1944 voru ráönir fjórir
fastir kennarar til viðbótar. Nú starfa sex kennarar
fastráðnir við skólann auk skólastjóra. Stunda-
kennarar eru sextán.
Er Vilhjálmur Þ. Gíslason var skipaður útvarps-
stjóri áriö 1953, tók Jón Gíslason við
skólastjórninni.
Ört vaxcmdl sala á MOSKVITCH
og POBEDA bifrelðum bor þess
gloggstoíi vott, að íslendingar haía
kunnað að mota þelrra mörgu kosti
og httfni við (slenzka staðhætti.
Bifreiðar & landbúnaðarvélar h.f.
l.lilStiÓlT l«i SIMI S iS-OS
Auglýsing í Frjálsri verzlun 1955
81