Frjáls verslun - 01.01.1979, Blaðsíða 45
Stríðsár I
í.slcnzkir kmipsvsliiiiicnn í Neu N’ork
TaliA jrú narlunuri rrulu borilsin* ofi vimlra nunui: Jbn Bjurnison. Jnkuh Srpurbsson. f'ril: K jorlnnxyon.
Arnuson, Ólufur Ólajsson. í.onW fíitlason, llnllnrinmr llenediktsson, Hjorn lljornsson. hpiirrl Krisijrinsson
mumdsum, llilniur Fcnmr. Dunlcl fíisluso:,. Ilcnrik IticrinK. Tulib Iru fjurlœ^uri ,ndu horAsins on huKrn
Finnsson. F.hurd Frimunnsson, llanne Kjurlonsson op /Vliir Johnson. fínDmundur Irnuson. Oddur
Magnús Kjaron fírcnir F.ngrrlsson. Jon fíubhrurulsson. Urus Fjcldsle.\ oK >,,irswur Jbhannsson.
Irunz Indrrs.n, 1‘ull Wristci), fítinnur Fúlsson. horstcinn
. Ólufur Johns. n. Slrfbn M „ihnc, Óllar Mollcr, Jon fíinY
niriiin: llunnrs Johnson. H\orn llullprimsson og lljulmnr
fíuUjbnsson oK Frib/ijbfur Johnsnn. Ilnruldiir irnasrm,
ItúriUir fíubmundsson. S,,,nn I ulfclls oe Trseen ÓI„f%%on.
svo sem stálhringurinn. Má búast við að markaðs-
óvissan vestra fari sízt minnkandi, enda er nú
framleiðslan þar alltaf meir og meir tekin í þágu
vígbúnaðar Bandaríkjanna.
Verðlag á matvöru er nærri óbreytt og var fyrir
stríð, en búizt er við, að slíkar vörur hækki ört á
næstunni.
Erfiðleikar hafa verið miklir á skipagöngum
undanfarið milli íslands og Bandaríkjanna og mik-
ið af vörum liggur nú í New York, sem bíða flutn-
ings til íslands. Þessar vörur voru pantaðar fyrir
ákveðinn tíma og liggja því á kostnað og ábyrgð
kaupanda. En vonazt er eftir, aö þau þrjú skip, sem
ríkisstjórnin hefir nú fengið á leigu, fyrir milligöngu
Thor Thors, aðalkonsúls, muni grynna mjög á
þessum vörubirgðum.
— Hvernig hafa ísl. niðursuðuvörur líkað
vestra?
— Yfirleitt þóttu þessar vörur ágætar. En svo
kom það fyrir, að send var skemmd vara á mark-
aðinn, og þeir sem við verzlun fást vita, að það þarf
ekki nema fá tilfelli til að spilla því áliti, sem menn
höfðu áður myndað sér um gæði vörunnar. í
framtíðinni þarf því að gæta þess að slíkt komi ekki
fyrir. Ameríkumenn eru vandlátir, samkeppnin er
hörð, og íslenzkar vörur lítt þekktar.
— Hvað er um Isiendinga vestra?
— Þeir landar, sem ég hitti, létu allir vel af líðan
sinni. Miðstöð alls þess, sem viðkemur landinu, er
á skrifstofu og heimili Thor Thors aðalkonsúls.
Ræðismaðurinn er, ekki sízt nú, störfum hlaðinn
og verður hann að líta í mörg horn. Ræðismaður-
inn er íslendingum hin mesta hjálparhella, enda
gegnir hann starfi sínu með ágætum. Má geta
þess, að það er ekki smáræðis viðbót við starf
ræðismannsins að þurfa að annast hina margvís-
legustu upplýsingastarfsemi í sambandi við ísland
og íslendinga. Þegar Bandaríkin tóku að sér her-
vernd íslands, jókust störf ræðismannsskrifstof-
unnar á þessu sviði. Blaðamenn gera sér nú far um
aö birta sem réttastar fregnir af íslandi og íslend-
ingum, enda mótmælti konsúlatið jafnharðan því
sem rangt var og vann ræðismannsskrifstofan
þjóðnytjastarf meó þessu. Blöðin og ýmsir aðilar
aðrir leita nú þangaö um allar upplýsingar varð-
andi Island og er áríðandi að slíku sé hægt að
sinna sem bezt.
Væri vafalaust nauðsynlegt að senda blaðafull-
trúa aðalkonsúlnum til aðstoðar, og sæi hann um
þessa upplýsingastarfsemi.
45