Frjáls verslun - 01.01.1982, Síða 9
Dollarinn í kr. 13
í árslok?
,,Við teljum þessa spá
Verzlunarráðsins mjög á-
reiðanlega fyrir allavega tvo
til þrjá fyrstu ársfjórðunga",
sagði Guðmundur Arnalds-
son, hagfræðingur Verzlun-
arráðs Islands um spá þess
um verðlagsþróun á árinu
1982. „Það er okkar skoðun
að í árslok verði uppsveifla.
Þetta er næstum óhjá-
kvæmilegt, þegar tillit er
tekið til hins pólitíska
ástands I sambandi við
kosningar í vor og samn-
inga á vinnumarkaði, sem
dragast eflaust til haustsins
«ða fram á næsta vetur."
Samkvæmt athugunum
Verzlunarráðsins verður
verðbólgan á árinu 1982
51% og launahækkanir
41%. Hækkun dollarans
verður um 62% miðað við
gengisskráninguna I árslok
1981, en 41% þegarreiknað
er frá skráðu gengi hans
eftir gengisfellinguna 14.
janúar sl. Því er spáð að
dollarinn verði kominn í 13
kr. 1. desember nk. Gert er
ráð fyrir 8% launahækkun-
um 1. marz og 1. júní, 8,5%
1. september og 11,5% 1.
desember. Ekki er reiknað
með grunnkaupshækkun-
um á árinu. Þá er reiknað
með að versnandi við-
skiptakjara gæti við út-
reikning verðbóta á laun 1.
marz samkvæmt Ólafs-
lögum. Ennfremur er gert
ráð fyrir að niðurgreiðslur
verði auknar um 6% á fyrri
helmingi ársins samkvæmt
stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar.
Verzlunarráðið birti spá
um verðlagsþróun fyrir árið
1981 og spáði þá 52%
hækkun framfærsluvísitölu.
Með tilliti til aðhalds í ríkis-
rekstri, innlendum og er-
lendum lántökum ríkisfyrir-
tækja til að halda sér á floti
og verðstöðvun, þykir þessi
spá hafa verið raunsæ. Þeg-
ar aðrar vísitölur eru skoð-
aðar hækkaði verðlag t. d.
með viðmiðun við láns-
kjaravísitölu um 47,5%. Spá
um gengi dollarans var
mjög nærri lagi. Verzlunar-
ráðið gerði ráð fyrir að
dollarinn yrði í kr. 8,60 í
árslok. Hann var skráður kr.
8,185 en hækkaði svo 19,439
hinn 14. janúar.’
Jónas Þór
frá FÍS
Félag ísl. stórkaupmanna
mun flytja í Hús verzlunar-
innar seinna á þessu ári en
um svipað leyti verður sú
breyting hjá félaginu að
Jónas Þór Steinarsson læt-
ur af störfum sem fram-
kvæmdastjóri. Þeirri stöðu
hefur hann gegnt síðan í
september 1977. Ekki er
vitað hvað Jónas hyggst fyr-
ir né heldur hver koma muni
í hans stað hjá stórkaup-
mannafélaginu.
Útibússtjóri Verzlunarbanka í Mosfellssveit
„Viðskiptin við útibúið virð-
ast ætla að verða blómleg",
sagði Geir Þórðarson, ný-
skipaður útibússtjóri við
útibú Verzlunarbanka ís-
lands í Mosfellssveit en það
var opnað hinn 11. desem-
ber sl. Útibúið er til húsa að
Kljásteini við Þverholt, í
sama húsi og verzlunin
Kjörval.
„Viðskiptavinir útibúsins
eru einkanlega ungt fólk,
sem býr hér og vinnur hér í
sveitinni" hélt Geir áfram.
Verzlunarbankinn hefur m.
a. boðið viðskiptamönnum
sínum svokölluð safnlán og
launalán, sem mikið hefur
verið spurt eftir. Þá veitir
útibúið ráðgjafaþjónustu
varðandi fjármál einstakl-
inga.
Útibú Verzlunarbankans [
Mosfellssveit er í beinu
tölvusambandi við aðal-
bankann, þannig að allar
upplýsingar, sem senda
þarf á milli er hægt að kalla
fram á skjánum og ekki þarf
að sendaskjölámilli.
Geir Þórðarson er 28 ára
gamall. Hann starfaði áður í
níu ár í aðalbankanum, síð-
ast sem fulltrúi í ráðgjafa-
og uþplýsingadeild.
9