Frjáls verslun - 01.01.1982, Blaðsíða 10
Erfiðleikar steðja að Cargolux
Miklir rekstrarörðugleikar
steðja að Cargolux, vöru-
flutningafélaginu í Luxem-
borg, sem Flugleiðir eiga
aðild að. Tapið á síðasta ári
mun nema 7 milljónum doll-
ara að því er heimildarmenn
blaðsins segja, þar af er tap
á rekstri dótturfyrirtækis
félagsins í Urguay frá fyrra
ári um 3 millj. dollara.
Ástæðan fyrir þessum erfið-
leikum Cargolux er harðn-
andi samkeppni um minni
flutninga vegna efnahagsá-
standsins á Vesturlöndum.
Áætlunarflugfélög, sem
nota breiðþotur til farþega-
flutninga á Austurlandaleið-
um, hafa mikið rými til vöru-
flutninga, en það er einmitt
Austur-Asíuflugið, sem ver-
ið hefur mikilvægasti þáttur
í rekstri Cargolux. Félagið
hóf fyrir nokkru starfsemi I
Bandaríkjunum og flug
vestur um haf en það mun
ekki hafa gengið eins og
menn höfðu gert sér vonir
um fyrirfram. Félagið hefur
nýlega keypt tvær Boeing
747 breiðþotur og hefur
fjármagnskostnaður vegna
þeirra kaupa verið félaginu
mjög þungur baggi. Nokkur
óvissa er ríkjandi um áfram-
haldandi verkefni fyrir flug-
menn félagsins, sem að
stórum hluta eru íslending-
ar. Hefur jafnvel komið til
tals, að Flugleiðir fái ein-
hverja þeirra lánaða til að
fljúga sínum vélum í sumar,
þegar annir verða mestar í
sumaráætluninni.
140 ný bílastæði við Skúlagötu?
Til greina hefur komið, að
Reykjavíkurborg taki á leigu
lóð Eimskipafélags (slands
milli Frakkastígs og Vatns-
stígs við Skúlagötu og noti
sem almenn bílastæði. Eim-
skipafélagið hefur auglýst
þessa lóð til leigu og hafa
fulltrúar borgarinnar átt
viðræður við forráðamenn
félagsins um nýtingu henn-
ar undir bílastæði. Áætlað
er, að þarna yrði rými fyrir
liðlega 140 bíla og myndi
verða um langtímastæði að
ræða, sem sennilega yrðu
til ókeypis afnota fyrst I stað
en sennilegt að gjaldtaka
yrði upp tekin er fram í
sækir, ekki ósvipað því sem
gerist á bílastæðunum á
Tollstöðvarhúsinu.
Danir í meðferð
hjá SÁÁ?
Starfsemi SÁÁ hér á landi
og meðferð áfangisvanda-
mála hjá samtökunum hefur
vakið athygli víða um lönd.
Samtök í Danmörku hafa
mikinn áhuga á samstarfi
við SÁÁ þar eð viðbrögð við
áfangisvandanum þar í
landi, sem er orðinn gífur-
legur, þykja af gamla skól-
anum og til lítils gagns.
Hafa Danir spurzt fyrir um
það, hvort Danir gætu átt
þess kost að fá meðferð á
stofnunum SÁÁ hér á landi.
Óvíst er að svo geti orðið en
aðstaða SAA til virkrar þjón-
ustu við samfélagið mun
breytast mjög til hins betra
með tilkomu nýrrar stöðvar
sem reisa á við Grafarvog.
10