Frjáls verslun - 01.01.1982, Page 15
Úr vélasal hjá Iðunni. Aldrei hafa verið keyptar notaðar vélar. Hér er allt nýtt og starfar samkvæmt nýjustu tækni. Öll
mynstur eru nú gerð í tölvubúnaði, sem tengdur er prjónavélunum.
„Þessu verður að breyta. Álagningarreglur verða að virka
hvetjandi fyrir sölu á innlendu vörunni. Síðustu árin hefur
framleiðslumagnið hjá okkur verið mjög svipað milli ára og
við sjáum ekki fram á að auka markaðshlutdeildina innan-
lands. Aukningin verður að koma með útflutningi. Um
25% af framleiðslunni fer núna á erlendan markað og mun-
ar mest um viðskipti við fyrirtæki í Danmörku og Svíþjóð.
Einnig Frakkland og Bandaríkin. Vestan hafs er það Doretta
Egilsson í Los Angeles, eiginkona Árna Egilssonar, hljóm-
listarmanns, sem kaupir vöruna beint af okkur. Milli tveggja
síðustu ára jókst útflutningurinn hjá okkur um 45% í heild,
reiknað í dollurum".
Þannig lýstu eigendur Prjónastofunnar Iðunnar, þau Njáll
Þorsteinsson og Lovísa Marteinsdóttir aðstæðunum, sem
fyrirtæki þeirra stendur frammi fyrir um þessar mundir.
Síður en svo að nokkurs uppgjafartóns gætti. Þau lögðu
þvert á móti áherzlu á að aldrei mætti slaka á og það væri
dauðadómur yfir fyrirtæki í þessum rekstri ef menn ætluðu
að fara að taka lífinu rólega.
Mikilvægar tilviljanir
„Annars var það mest fyrir tilviljun að við byrjuðum á út-
flutningi. Það var fyrir sex árum að íslenzkur sýnandi, sem
ætlaði að vera með á Scandinavian Fashion Week í Bella
Center í Kaupmannahöfn, bauð okkur hluta af plássi sínu."
En það var Marinó sonur þeirra hjóna, sem gerði fyrsta
samninginn meðan faðir hans hafði brugðið sér frá sýning-
arbásnum. Þar var á ferðinni norskur kaupandi, sem keypti
barnapeysur frá Iðunni. Framan af var salan mest í þeim en
lítil sem engin síðustu árin. Ástæðan fyrir þessari sölu á
barnapeysunum mun sú, að Iðunn var á undan öðrum að
bjóða peysur, sem myndir voru pressaðar á. Vöktu þær
mikla athygli og seldust t. d. til Danmerkur í talsverðu
magni.
Og það eru fleiri tilviljanakennd atvik, sem leitt geta til
umtalsverðra viðskipta. Þannig hefur franskur aðili samið
við Iðunni um að prjóna dömupeysur úr efni, sem hann
sendir hingað til úrvinnslu en fær fullunna vöru til baka,
samkvæmt eigin hönnun. Flann sagðist leita til Iðunnar af
því að hann hefði séð vörur frá verksmiðjunni á sýningu í
Bretlandi fyrir þremur árum.
Ómetanleg þjónusta Iðnrekstrarsjóðs
Sýningarnar í Bella Center eru aðalkynningarvettvangur-
inn, sem Iðunn notfærir sér til að komast í samband við
erlenda kaupendur. Einnig tízkuvörukaupstefna í Stokk-
hólmi, sem haldin er tvisvar á ári. Þau Njáll og Lovisa sögðu
að viðskiptin við Bella Center væru þó mun greiðari og
árangursríkari. Þá mætti í þessu sambandi heldur ekki
gleyma hlut Iðnrekstrarsjóðs hér heima, en hann tekur þátt í
kostnaði með íslenzku framleiðendunum. Þannig greiðir
Iðnrekstrarsjóður helming af útlögðum sýningarkostnaði,
helming ferðakostnaðar og helming dagpeninga fyrir einn
fulltrúa fyrirtækisins vegna sýningarhaldsins. Sögðu þau
að þessi þjónusta Iðnrekstrarsjóðs væri ómetanleg og veitt
af sérstakri lipurð.
Fyrir þremur árum byrjaði Iðunn að prjóna úr íslenzku
garni. Úr því er framleidd vara, sem er miklu fínlegri og
léttari en þær íslenzkar prjónavörur, sem mest hafa verið
seldar á erlenda markaði síðustu árin. Hins vegar sést eng-
inn munur á vélprjóni og því sem prjónað er í höndunum.
Prjónuð sjöl frá Iðunni hafa vakið mikla athygli og í tízku-
blöðum má víða sjá þau notuð sem fylgihluti með öðrum
klæðnaði sem verið er að kynna. Nokkur munur er á að-
stöðu Iðunnar og annarra íslenzkra útflytjenda, sem selja
prjónavörur til Bandaríkjanna, að því leyti að fíngerða, vél-
prjónaða varan, eins og t. d. sjölin flokkast undir „blúndur" í
bandarískum tollskrám og því þarf að greiða af þeim 42%
toll þegartolluraf handprjónuðum lopapeysumert. d.22%.
Skoða nýja liti í útlöndum
Velgengni prjónavörunnaráerlendu mörkuðunum erýmsu
háð, ekki sízt lit. Hvítt, beige og blátt eru tízkulitirnir á þessu
sviði r\ú sem stendur. Og það þarf hárréttan lit til að slá í
gegn. Blái liturinn hjálðunni hefurhlotiðgóðarviðtökur, en
15