Frjáls verslun - 01.01.1982, Blaðsíða 33
>kynning
Möguleikar auglýsenda einkum:
Dagblöð, sjónvarp,
útvarp og sérrit
Það þarf meira en 19 kalda vetur
til að leggja Volvo að velli
VOLVO
Erlendar auglysingar á islandi: Volvo er með vandaðar erlendar auglýsingar
með miklum upplýsingum sem eiga ekki síður við hér á landi en annars staðar.
Auglýsingarnar birtast í sérritunum og eru með vönduðustu auglýsingum á
íslandi.
Auglýsingar eru snar þáttur i lífi
manna og fer stöðugt vaxandi. Það er
nánast vonlaust fyrir fyrirtæki, að
markaðssetja vörur, eða kynna starf-
semi og þjónustu sína, nema í gegn-
um auglýsingar. Forráðamenn fyrir-
tækja greinir því ekki á um nauðsyn
þess, að auglýsa, heldur frekar um
hvernig auglýsa skal og hvernig aug-
lýsingin skal vera uppbyggð. — Ein
góð auglýsing, sem hittir í mark, er á
við 100 venjulegar, sagði einn við-
mælenda Frjálsrar verzlunar. Aug-
lysingastofum hér á landi hefur mjög
fjölgað hin síðari ár, en hins vegar er
það staðreynd, að mjög mörg fyrir-
tæki, bæði stór og smá sjá eftir sem
áður um sínar auglýsingar.
Auglýsingaformin eru einkum fjögur,
þ. e. auglýsing í dagblöðum, auglýs-
ingar í sjónvarpi, auglýsingar í út-
varpi og loks auglýsingar í ýmsum
sérritum. Hvert framangreindra aug-
lýsingaforma hefur sína kosti og sína
galla, og deilir auglýsendur því gjarn-
an á um hver kosturinn sé vænleg-
astur til árangurs. Enda kom það í
Ijós, þegar Frjáls verzlun ræddi við
forsvarsmenn nokkurra fyrirtækja,
sem leggja mikið upp úr auglýsingum
til að kynna vöru sína og þjónustu, að
skoðanirnar voru jafnmargar mönn-
unum.
Athyglisverðar niður-
stöður í fjölmiðlakönnun
Enda þótt meginniðurstöðurnar í fjöl-
miðlakönnun Sambands íslenzkra
auglýsingastofa á síðasta ári hafi fáum
komið á óvart, kom þó einn athyglis-
verður hlutur fram, en það er hinn mikli
styrkur sérrita þeirra er Frjálst framtak
gefur út. Tízkublaðið Líf er samkvæmt
könnuninni mest lesna tímarit á íslandi
í dag og auglýsingakostnaður á hvern
lesandaermjög svipaðurog í Morgun-
blaðinu, sem er langstærsta dagblað
landsins. Þetta er athyglisvert fyrst og
fremst vegna þess, að annað blaðið er
eitt dýrasta og jafnframt eitt vandaðsta
blað, sem gefið er út á Islandi, en hitt
blaðið mjög ódýrt. Ódýra blaðið hefur
sólarhrings líftíma dagblaðsins, en hitt
langa líftíma tímaritsins.
Eins og áður sagði, er ýmist hafður sá
háttur á hjá fyrirtækjunum, að aug-
lýsingastofur eru fengnar til að sjá um
auglýsingar þeirra, eða þau sjá sjálf
alfarið um þær. Við þetta má svo bæta,
að mörg fyrirtæki hafa fengið hingað
erlendar auglýsingar, sem inn á hefur
verið settur islenzkur texti, eða þær
jafnvel verið birtar textalausar sé um
það að ræða og með erlenda textan-
um.
Eitt þeirra fyrirtækja, sem sér að mestu
um sínar auglýsingar sjálft er Bílaborg
h. f., sem hefur m. a. umboð fyrir
Mazda-bíla, Hino-bíla, Komatshu—
vinnuvélar, Bridgestone-hljóbarða og
Yamaha utanborðsmótóra og mótor-
hjól, og þarf því óhjákvæmilega að
auglýsa mikið. - Okkur hefur reynzt
mjög vel í gegnum tíðina, að sjá um
okkar auglýsingar sjálfir og munum
halda því áfram. Við höfum að vísu haft
ákveðna samvinnu við Myndamót um
gerð þeirra, en allar hugmyndir koma
frá okkur sjálfum, eða frá hinum er-
lendu viðskiptaaðilum okkar, sagð
Þórir Jenssen, forstjóri Bílaborgar h
f., í samtali við FV.
Efnismiklar auglýsingar
áhrifamestar
í sambandi við auglýsingar fyrirtækis-
ins, sagði Þórir að reynzla þeirra væri
sú, að auglýsingar með ýtarlegum
texta, þ. e. nákvæmum upplýsingum
fyrir viðskiptavini fyrirtækisins, væru
þær, sem beztum árangri hefðu
náð. — Þá er okkar reynzla sú, að
auglýsingar í dagblöðum séu áhrifa-
mestar, sérstaklega í sambandi við
bílasöluna. Við höfum því, að mestu
beint okkar auglýsingum hin síðari ár
inn í dagblöðin og svo í sjónvarpið,
sagði Þórirennfremur.
Aðspurður um stefnu og línu í aug-
33