Frjáls verslun - 01.01.1982, Page 45
10.500 fjár og hátt í 1000 stórgrip-
um. Karl telur að þar hafi verið
slátrað um 20% af því sem slátrað
var á svæðinu af fé, en álítur að
hlutdeildin í slátrun stórgripa hafi
verið miklu stærri, eða nær helm-
ingi. Hann segir einnig að veltan í
versluninni haldist nokkuð í hend-
urviðveltunaíinnleggi bænda. Og
ennfremur segir Karl að hlutdeild
fyrirtækisins í viðskiptum á staðn-
um fari vaxandi, ár frá ári.
Nýtt hús með hraði
í maí á síðasta ári flutti verslunin í
nýtt húsnæði. Það var um haustið
1979 að undirbúningur að bygg-
ingunni hófst og var þá stofnað fé-
Meleyri h. f. er rækjuverksmiðja
og saltfiskverkun. Auk þess er
fyrirtækið meðeigandi í útgerðar-
félögum tveggja báta. Eyri h. f.,
sem gerir út Glað og Sif h. f., sem
gerir Siglunesið út. Þar að auki á
Meleyri h. f. hlutabréf í Steypu-
þjónustunni h. f. og Mjöl h. f.
Meleyri h. f. var stofnað árið 1973
um rækjuvinnslu þá sem hafði
áður verið reynd á vegum V. S. P.
um hríð og hóf starfsemi sína í
sláturhúsi V. S. P.
NÚ hefur fyrirtækið byggt yfir sig
eigið hús og árið 1978 tók fyrir-
tækið upp saltfiskverkun.
lag um bygginguna. Að því stóðu
auk Verslunar Sigurðar Pálma-
sonar h. f., Saumastofan Drífa h. f.
Sýslusjóður og Ræktunar- og
búnaðarsamband V-Húnavatns-
sýslu. í maí 1980 var gólfplatan
steypt, húsið var fokhelt í nóv-
ember og í desember var þar hald-
inn jólamarkaður. Það var svo í
apríl næsta ár, að verslunin flutti
inn.einsogfyrr sagði.
Húsið er 600 fermetrar að flatar-
máli. Á fyrstu hæðinni er Verslun
Sigurðar Pálmasonar h. f. til húsa
með smásölu sína og skrifstofur.
Sölubúðin er á um 250 fermetrum.
Það eru æði mikil viðbrigði og
Nú tekur fyrirtækið á móti afla af
fimm bátum og samtals hafa um
fimmtíu manns atvinnu sína við
fyrirtækið beint eða I tengslum við
það, þ. e. a. s. á bátunum og við
vinnslu aflans.
Á síðasta ári var tekið á móti um
700 tonnum af rækju, þaraf var um
helmingur veiddur samkvæmt
kvóta úr flóanum, en hinn hlutinn
var af djúpmiðum.
Framkvæmdastjóri Meleyrar h. f.
er Hreinn Halldórsson, en hann er
dóttursonur Sigurðar Pálma-
sonar.
stórbætt aðstaða, því að áður var
athafnasvæðið á milli 60 og 70 fer-
metrar. Hinn hluti hæðarinnar er
notaður undir lager og skrifstofur.
Á annarri hæð hússins er
Saumastofan Drífa til húsa, en á
efstu hæðinni verða skrifstofur
Ræktunar- og búnaðarsambands-
ins og bókasafn.
Ný fyrirtæki og fjölgun
íbúanna
íbúar á Hvammstnga árið 1970
voru 361. Þá hafði fjölgunin verið
mjög hægfara um langt skeið, árið
1940 voru þeirt. d. 314, hafði fjölg-
að um 47 á 30 árum. Staðurinn var
nær eingöngu þjónustumiðstöð
við sveitir V-Húnavatnssýslu og
atvinnumöguleikar miðuðust við
það. Mannlífið var staðnað og
unga fólkið fékk fá tækifæri og
flutti burt. Við svo búið þótti
mönnum ekki mega standa, og ár-
ið 1970 reið Verslun Sigurðar
Pálmasonar á vaðið með að auka
fjölbreytni atvinnulífsins og hóf
ræKjuvinnslu (tilraunaskyni í slát-
urhúsinu. Byrjað var að kaupa
rækju af einum bát og rækjan var
handpilluð. Fljótlega varð Ijóst að
þau vinnubrögð dugðu ekki í sam-
keppninni. Þá var hlutafélagið
Meleyri stofnað um þann rekstur.
Það varárið 1973.
Persónutengsl og
viðskiptasambönd
Sama ár stofnar Karl ásamt fjór-
um mönnum öðrum Saumastof-
una Drífu h. f., en V. S. P. er ekki
aðili að því fyrirtæki. í kjölfar auk-
innar atvinnu fer fólki á Hvamms-
tanga að fjölga og þar með hefst
mikil uppbygging íbúðarhúsa á
staðnum. Næsta skrefið, er því að
stuðla að þeirri uppbyggingu og V.
S. P. tekur þátt í því með eignarað-
ild að steypustöð með öðrum fyrir-
tækjum og stofnunum á staðnum.
Nýjasta átakið í framfaramálum
staðarins, sem V. S. P. á þátt í, er
stofnun mjölverksmiðju og upp-
bygging hennar. Hún tekur vænt-
anlega til starfa fyrri hluta þessa
árs.
Blaðamaður frá Frjálsri verslun var
Útgerð lá með öllu niðri á Hvammstanga um nokkurra áratuga skeið, en
nú eru fimm bátar gerðir út þaðan. Glaður HU-67 er einn þeirra, hann er
gerður út af Eyri hf., sem Meleyri hf. á aðild að.
Meleyri hf.:
Veitir fimmtíu
mönnum vinnu
45