Frjáls verslun - 01.02.1985, Side 19
Kennsluskylda sem þessi hvilir á
mörgum deildum spitalanna og er
ráö fyrir þvi gert í starfsemi þeirra
að læknar fái tima til aö sinna
henni og læknar viðkomandi
deilda koma einir til greina i slikar
kennslustöður.
Kostnaður
við lækna-
stofu er
43.581 kr.
á mánuði
•
Þá gegna sumir læknar starfi
trúnaðarlæknis fyrirtækja. Fara
tekjur af þvi oftast eftir starfs-
mannafjölda fyrirtækisins og
geta verð kringum 8 til 10 þúsund
kr. á mánuði hjá stærri fyrir-
tækjum.
slíkar tölur eru nefndar sé verið
að tala um einstök dæmi, tima-
bundna toppa sem einstaka
menn geta lent i við ákveðnar að-
stæður.
Nokkrir sérfræðingar vinna
eingöngu á stofum sinum og hafa
þvi engin föst laun heldur aöeins
taxtagreiðslur fyrir unnin læknis-
verk.
Aðalaukatekjur sérfræðinga er
að starfa við sjúkrahúsin eru
tekjur af stofurekstri. Margir taka
á móti sjúklingum á stofu sinni
einn til tvo eftirmiðdaga í viku,
2—4 stundir i senn. Mjög er mis-
jafnt eftir sérgreinum hversu
annrikið er mikið, kvenlæknar
hafa þannig nokkuð stöðuga
„aðsókn“, barnalæknar hafa
einnig haft það til skamms tima,
en þar sem þeim hefur fjölgað
mjög á undanförnum árum fer
vinna þeirra á stofum minnkandi.
Misjafnt er einnig hversu dýr
stofurekstur lækna er. Augn-
læknar, háls-, nef- og eyrna-
læknar þurfa til dæmis að reka
dýr tæki eigi þeir að geta sinnt
sjúklingum, en öðrum nægir oft
einfaldur skoðunarbekkur og
ýmis smátæki til að geta með-
höndlað sjúklinga sína. Hag-
kvæmni stofurekstrar getur lika
verið mjög misjöfn og fer eftir þvi
hversu margir læknar sameinast
um húsnæði, sima, aðstoðarfólk
og annan fastan kostnað við
stofurekstur.
í nýlegri samantekt yfir kostn-
að við læknastofu kemur fram að
hann er kr. 43.581 á mánuði og
er þá reyndar talinn með bíla-
kostnaður og endurmenntun fyrir
utan fastan kostnað stofunnar og
starfsliðs hennar.
Af öörum störfum sem læknar
gegna oft meðfram fastri vinnu
sinni eru kennslustörf fyrirferðar-
mest. Við læknadeild eru ráðnir
allmargir kennarar, dósentar eða
lektorar í hlutastöðum, oftast
37% starfs. Taka þeir lækna-
stúdenta i tíma á spitölum sínum
eða húsnæði háskólans og segja
má að kennslan sjálf fari iðulega
fram i vinnutima læknis en undir-
búningur utan vinnutimans. Tekj-
ur vegna 37% stööu eru milli 11
og 12 þúsund kr. á mánuði.
Atvinnuleysi?
Vaxandi áhyggjur eru meðal
lækna af atvinnuleysi. Enn er það
ekki staðreynd hérlendis, en
fjöldi íslenskra lækna viö nám og
störf erlendis er slikur að Ijóst er
að þeir fá ekki allir atvinnu hér-
lendis i sérgreinum sínum. Þegar
er vitað að ýmsir læknar eru til-
búnir að koma heim til starfa
strax ef störf bjóðast. Stöðum
lækna mun ekki fjölga að ráði á
næstunni, en nú eru um 300 is-
lenskir læknar við nám og störf
erlendis þessi árin. Liðlega 600
læknar eru við störf á íslandi.
Með fjölgun lækna mun e.t.v.
þrengjast á markaði aukastarfa
eða lausastarfa þeirra og heild-
artekjur þvi hugsanlega lækka,
en benda má á að t.d. kennslu-
stöðurnar eru bundnar því að
læknar gegni föstu starfi á
spitala.
Segja má að þegar litið er til
fastra launa lækna séu þeir ekki
hátekjumenn, en miklar tekjur
þeirra byggjast á yfirvinnu og
vaktavinnu annars vegar og
ýmsum aukastörfum hins vegar
sem þeir taka að sér utan dag-
vinnutíma.
Sett hefur verið yfirvinnuþak á sjúkrahuslækna.
19