Frjáls verslun - 01.02.1985, Síða 28
AFENGISSALA
Mest selt af íslensku
brennivíni, en Smirnoff
vodka er í öðru sætinu
— kláravín í 3. sæti í stað Campari sem féll verulega í sölu
í þessu tölublaði Frjálsrar
verzlunar birtist listi yfir selt
áfengi hjá Áfengis og tóbaks-
verslun ríkisins á síðasta ári og
er þetta í annað sinn sem blaðið
greinir frá sölunni með þessum
hætti, en birting þessara upp-
lýsinga var hafin í fyrra. Hér er
greint frá því hversu mikiö magn
var selt af hverri einstakri teg-
und á siðasta ári og til hliðsjón-
ar eru birtar tölur um söluna á
árinu 1983.
Þegar listinn er skoðaður sést
að i fyrsta dálki listans kemur
fram tegundarheiti, i næsta dálki
stærð flaskanna mæld i litrum, i
þriðja dálki kemur fram selt magn
og i siöasta dálkinum sést hvað
seldist af sömu tegund áriö áður.
Þannig geta lesendur blaðsins
séð hvaöa breytingar hafa orðið
á milli ára.
Ef skoðaðar eru helstu breyt-
ingarnar, þá kemur i Ijós að þó is-
lenska Brennivinið haldi enn
fyrsta sætinu á markaðinum, þá
dregur verulega úr sölu þess á
milli ára. I fyrra seldust af þvi
361.544 heilar flöskur á móti
394.608 heilum flöskum árið
áður, en svipað magn seldist af
Brennivini i hálfum flöskum hvort
ár. Tegundin sem var i ööru sæti
árið 1983, Smirnoff vodka bætti
hins vegar litillega við sig, eða
sem nemur um 4.000 heilum
flöskum, selst nú i 221.687 heil-
um flöskum. Kláravin skýst nú
upp i þriðja sætið með 191.946
flöskur sem er mjög mikil aukning
frá árinu áður, en þá seldust
tæplega 104.000 flöskur af
þessum miði. I fjórða sæti á list-
anum er siðan Anhauser Lieb-
fraumilch, en i fyrra seldust
175.106 flöskur af þvi ágæta
hvitvíni og er þar um mjög veru-
lega aukningu að ræöa frá árinu
áður, en þá seldist 106.831
flaskaaf þessu víni.
Það sem vekur kannski mesta
athygli á listanum er „hrun"
drykksins Bitter Campari, sem
hafnaði i þriðja sæti á listanum i
fyrra. Campari seldist þá í
142.543 flöskum, en salan dróst
saman um nær helming á milli
áranna 1983 og 1984, þvi i fyrra
seldist Campari i 74.689 flösk-
um. Það er auðvitað aðallega um
að kenna gifurlegri hækkun á
áfengi á milli áranna ásamt
breytingum á álagningarreglum,
sem bitnuðu mjög á Campari.
Ef litið er til heildarsölu áfengra
drykkja hjá Áfengis- og tóbaks-
verslun rikisins á siðasta ári,
kemur i Ijós að hún var 3.220.069
litrar, sem er nokkur aukning frá
fyrra ári, en þá var heildarsalan
3.035.806 litrar. Aukningin á milli
ára er þvi liðlega 6%. Samkvæmt
þessum tölum var meðalneysla á
hvern landsmann 3,30 litrar af
hreinum vinanda á móti 3,242
litrum af hreinum vinanda áriö
áður.
Hvað einstaka flokka vins og
áfengis áhrærir þá seldust sam-
tals 1.332.738 lítrar af sterkum
drykkjum á siðasta ári á móti
1.223.789 litrum árið áður og er
þau um aukningu að ræða sem
nemur tæplega 9%. Af heitum
vinum nam salan á árinu 519.606
litrum á móti 650.959 lítrum árið
áöur. Er þarna um samdrátt að
ræða sem nemur liðlega 20%.
Hvað varðar borðvín, þá seldust
1.367.725 litrar af þeim i fyrra á
móti 1.161.058 litrum og er það
aukning upp á um 17.8%.
Þess má geta aö aukningin í
neyslu hreins vinanda á milli
áranna 1983 og 1984 nam um
1,8%, en samsvarandi aukning á
milli áranna 1983 og 1982 var um
3,4%.
28