Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1985, Page 56

Frjáls verslun - 01.02.1985, Page 56
FERÐAMÁL Búist við auknum ferðamanna- straumi til og frá landinu Texti: Ólafur Jóhannsson. BÚIST er viö fjölgun feröa- manna hingað til lands á þessu ári og einnig gera innlendar feröaskrifstofur ráö fyrir því aö ferðum íslendinga til útlanda fjölgi í ár. Þetta kom fram í sam- tölum Frjálsrar verzlunar viö nokkra aöila sem aö ferðamál- um vinna, þegar þeir voru spurö- ir um útlitiö í feröamannaiðnaö- inum á þessu ári. Hjá þeim kom fram að pantanir útlendinga á feröum hingað til lands í sumar hafa aukist frá þvi í fyrra og ennfremur hefur mikiö veriö pantaö í hinar ýmsu ferðir inn- lendra feröaskrifstofa og segja margir ferðaskrifstofumenn aö markaðurinn hafi tekiö vel við sér. 8% aukning í ferðum til útlanda í fyrra Þegar áætlanir um þessa „ver- tið“ sem nú er aö hefjast í ferða- mannaiönaðinum voru geröar hjá ferðaskrifstofunum, geröu menn ráö fyrir mismikilli fjölgun á ferð- um Islendinga til útlanda í sumar. Ýmsir voru efins um aö aukningin frá síöasta ári myndi halda áfram, en þá var um 8% aukning í ferö- um Islendinga til útlanda. Héldu því sumar feröaskrifstofur nokk- uö aö sér höndum viö pantanir i flugi og á gististöðum og geröu ráöf yrir nokkru minni aukningu feröamanna út en á síðasta ári. Hins vegar voru aörir sem gerðu mun djarfari áætlanir og ýmislegt bendir til aö þær geti gengið upp, a.m.k. ef miöaö er viö hinn stutta tima sem liðinn er frá því feröa- skrifstofurnar kynntu feröamögu- leika sína. Eru feröaskrifstofu- menn almennt sammála um þaö aö mikil eftirspurn sé eftir utan- landsferöum í ár og segja menn aö mikið sé þegar bókaö i margar feröir. ísland hefur meövind í feröamannaiðnaöinum „Mér heyrist aö þaö sé mikiö pantaö hjá ferðaskrifstofunum og meira en á siðasta ári,“ sagöi Birgir Þorgilsson, feröamálastjóri i samtali viö Frjálsa verzlun, þeg- ar hann var spuröur um útlitiö i sumar. „Þaö er raunar sömu sögu aö segja um ferðalög útlendinga til islands i sumar, þaö er meira um pantanir en var á sama tíma i fyrra.“ Birgir gat þess hins vegar að ekki væri fyllilega aö marka pant- anir fyrr en lengra kæmi fram á vorið. Þá færu menn að „grisja". Skipuleggjendurnir erlendis panta ferðir fyrir mismunandi stóra hópa, án þess aö vera búnir aö selja i þessar feröir. „Þaö kemur að þvi i maimánuði aö- menn fara aö athuga hvaö sé búiö aö selja mikiö i þau pláss sem pöntuö hafa verið og þá hefst grisjunin. Hún er þó senni- lega svipuð frá ári til árs. Hitt er svo annað mál, aö ferðir til Islnds viröast njóta vinsælda, Island hefur meövind i ferðamannaiön- aðinum. í fyrra var 10% aukning frá árinu áöur, en þaö ár var 7% aukning á ferðum útlendinga til landsins. Þannig aö segja má aö þaö haf i verið nokkuö hraöur stig- andi i þessu frá ári til árs hjá okk- ur,“ sagöi Birgir. Búast má við verulegri fjölgun hingaö í ár Birgir gat þess jafnframt aö talsverð aukning heföi oröið á hingaðkomum erlendra feröa- manna fyrstu tvo mánuöi ársins og i janúarmánuði heföi aukning- in oröið 21%, en þess bæri þó aö geta aö þær væru ekki fyllilega marktækar, þar sem um lágartöl- ur væri aö ræöa i komum feröa- manna á þessum árstima. 56

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.