Frjáls verslun - 01.02.1985, Page 68
til hennar sé vandað og takmark
þekkt.
Markaðsrannsóknir af því tagi,
er við framkvæmum er einkum
tvennskonar. í fyrsta lagi svo köll-
uð skrifþorðsrannsókn, er felst i
skriflegri söfnun allra þeirra upp-
lýsinga, er nauðsynlegar mega
teljast hverju sinni, svo sem upp-
lýsingar um innflutning lands á
ákveðinni vörutegund, tollamál,
innflutningshöft o.s.frv.
I öðru lagi upplýsingasöfnun á
staðnum, svo sem samsetning
verslana, dreifileiðir, samkeppni,
verðmyndun, hefðir og venjur i
neyslu o.s.frv.
Til viðbótar koma síðan óháðir
aðilar til athugunar á dreifingu
ákveðinnar vörutegundar á mark-
aðnum, þ.e. fjölda verslana,
markaðshlutdeild o.s.frv. svo og
rannsóknir, er lúta að vöruþróun. I
dag vinnur einn starfsmaður i
fullu starfi eingöngu að þessum
málaflokki.
Markaöurinn ræöur
Þetta er ef til vill inntakið í öllu
okkar starfi. Við viljum láta mark-
aðinn segja okkur hvað við eigum
að framleiða. Ákvörðun um nýjar
framleiöslutegundir verður að
taka i samræmi við þarfir og óskir
neytandans.
Vöruþróun er einn veigamesti
þátturinn i starfsemi lagmetisiðn-
aðarins hér og á hana er stöðugt
lögö meiri áhersla. Þetta er gert i
samvinnu við verksmiðjurnar
sjálfar, svo og ýmsa rannsóknar-
aðila. Það er til lítils að eyða öllum
kröftum i aukið markaðs- og
sölustarf, ef sá endi er tengist
verksmiöjunum gleymist. Við
veröum að fylgja fast eftir þróun í
framleiðslutækni til aukningar
framleiöni, bættrar samkeppnis-
aðstöðu og aukinnar arðsemi. Við
hjá S.L. erum svo lánsamir, að
hafa að baki okkur kröftuga og
stórhuga framleiðendur, er hafa
mikinn skilning á þessum málum
og eru þess albúnir að takast á
við verkefnin.
Á þessu ári reiknum við með
um 30% magnaukningu i útflutn-
ingi lagmetis, sem þýðir um 4000
tonn, sem er að sjálfsögðu árang-
ur af markaðsstarfi undanfarinna
ára og gerum við ráö fyrir svipaðri
þróun næstu tvö árin.
Nú þegar liggja fyrir hálfs árs
samningar við Rússa um kaup á
gaffalbitum og þorskalifur. I lifrinni
er aukningin um 100% frá fyrra
ári og verðin þau sömu í dollurum,
sem þykir nokkuð gott. Sárgræti-
legt er, að hvað varðar þessa
vörutegund gætum við þrefaldað
útflutning okkar, ef betri nýtng
næðist á allri þeirri lifur, er til fell-
ur. Magn gaffalbita er svipað og
áður og verðin einnig hliðstæð.
Ennfremur eru Rússar nú að
skoða ýmsar fleiri vörutegundir,
er vonandi næst samkomulag
um, áðuren langt um liður.
Við erum sem sagt frekar bjart-
sýnir á framhaldið og stefnum
hátt með góðum stuðningi fram-
leiöenda. Framhaldið byggist á
að haldið verði áfram markvissu
starfi allt frá framleiðanda til neyt-
anda. Okkur finnst sjálfgefið, að
nú þegar illa árar hjá flestum út-
flutningsgreinum, verði aukin
áhersla lögð á að nýta þær full-
vinnslugreinar, sem til eru, svo
sem lagmetisiðnaðinn, og honum
skipaður sá sess, er honum ber.
Það gæti orðið til að bæta upp út-
flutningstapið úr öðrum greinum.
Við eigum að hætta að lita á
okkur sem hráefnisútflytjendur,
við eigum að stórauka fullvinnslu
og þar meö aukna verðmæta-
sköpun fyrir þjóöarbúiö. Við höld-
um áfram, okkar markið er að
verða viðurkennt markaðsfyrir-
tæki, sem keppt getur á alþjóða-
mörkuðum í það minnsta jafn-
fætis okkar helstu keppinautum.
Stórkostleg nýjung
Nú þarf aldrei að bóna aftur
MASTER GLAZE
lakkvemd
Fyrir bíla og hvaða farartæki sem er
MASTER GLAZE
vemdar gegn:
A. Ryði
B. Salti
C. Sterkri sól
D. Frosti
E. Steinkasti
MASTER GLAZE
gefur djúpa og fallega
áferð sem heldur fletirtum
gljáandi í 12 - 18 mánuði.
Með MASTER GLAZE
lakkvemd þarftu aldrei
að bóna aftur.
MASTER GLAZE er steinefni sem slípað er ofan í lakkið. Pailtið tlma.
MASTER GLAZE safnar ekki í sig ryki, sýnir ekki fingraför,
fitubletti eða vatnsbletti.
MASTER GLAZE gefur bílnum varanlega vemd.
Ryóvarnarskálinn
________________________Sigtúni 5 - Simi 19400
68