Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Blaðsíða 6

Frjáls verslun - 01.02.1992, Blaðsíða 6
EFNI 5 RITSTJÓRNARGREIN 8 FRÉTTIR 49 ÍSLENSKAR MARKAÐSRANNSÓKNIR Nýtt fyrirtæki hefur verið að hasla sér völl á sviði markaðsrannsókna og við 16 EINKAVÆÐING RÍKISFYRIRTÆKJA Hér er fjallað um mál sem mjög hefur verið til umræðu síðustu misserin, ekki síst eftir að ríkisstjóm Davíðs Oddssonar komst til valda. Nú eru í undirbúningi ýmsar aðgerðir sem miða að því að einkavæða allmörg ríkisfyrirtæki og selja hlut ríkisins í einstökum félögum. Búnaðarbanki íslands hefur einatt verið nefndur sem eitt þeirra fyrirtækja sem hagkvæmt væri að einkavæða þar sem búast mætti við mikilli eftirspum eftir hlutabréfum í svo öflugu fyrirtæki. Margir telja að gangi áform ríkisstjómarinnar um sölu á því fýrirtæki eftir muni það ráða úrslitum um hvernig framhaldið verði. I Frjálsri verslun nú er grein eftir Þór Sigfússon hagfræðing, þar sem hann lýsir hagkvæmni þess að einkavæða Búnaðarbankann, og einnig þá kynnumst við sjónarmiðum Guðna Ágústssonar, alþingismanns og formanns bankaráðs Búnaðarbankans, en hann er annarrar skoðunar. Ekki er að efa að frekari umræða mun verða um einkavæðingu á næstu mánuðum og mikilvægt að kynn- ast rökum sem þar era með og á móti. 26 LEIÐIN TIL AKUREYRAR STYTTIST I síðasta tölublaði Frjálsrar verslunar var íjallað um möguleika á tvöföldun Reykjanesbrautar og vakin athygli á hagkvæmni þess að ráðast í þá framkvæmd án þess að íþyngja skuldsettum ríkissjóði. Að þessu sinni ræðum við um þá möguleika, sem era fyrir hendi, á að stytta leiðina frá Reykjavík til Akureyrar. í ljós kemur að með aðgerðum á ljórum stöðum megi stytta leiðina norður um 90 kílómetra. Það skal tekið fram að sumir þessara kosta era einungis fræðilega mögulegir og óvíst hvort nokkum tímann verður í þá ráðist. En um Hvalfjarðargöng og sjávarbraut frá Holtagörðum til Kjalamess gildir öðra máli. 31 LÍFSKJÖR TEKIN AÐ LÁNI Flestir Islendingar gera sér grein fyrir því að við lifum um efni fram. Það birtist m.a. í viðskiptahaUa, sem hefúr verið viðvarandi um langt árabil, og í stöðugt hærri erlendum skuldum. Þrátt fyrir góðæri öðru hvora og hækkandi þjóðartekjur virðist Iögmálið um neikvæðan viðskiptajöfnuð fylgja okkur eins og dagur nóttu. í grein um málið er dregin upp mynd af eins konar efnahagshrollvekju okkar íslendinga. 37 TÖLVUR Leó M. Jónsson véltæknifræðingur skrifar eins og endranær um tölvur í blaðið. 41 SKATTUR Á EIGNATEKJUR Ólafur Nilsson, löggiltur endurskoðandi, skrifar hér athyglisverða grein um skatta á eignir og eignatekjur og minnir m.a. á að núverandi og fyrrverandi fjármálaráðherrar hafa látið skoða möguleika á að skattleggja eignatekjur með einhverju móti. Einhverra hluta vegna hefur h'tið gengið eftir af þeim áformum, enn sem komið er. 44 STARFSANDIÁ VINNUSTÖÐUM Allir, sem reka fyrirtæki, vita að miklu skiptir að andinn í hópi starfsmanna sé góður því starfsfólk, sem h'ður vel, skilar betri árangri í starfi. Hér er m.a. rætt við starfsmannastjóra í fyrirtækjum og sálfræðing sem hefur látið þessi mál til sín taka. 6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.