Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Qupperneq 50

Frjáls verslun - 01.02.1992, Qupperneq 50
ÞJÓNUSTA ályktanir af þeim. Þetta kemur sér vel fyrir marga stjómendur sem oft eru mjög svo tímabundnir og þurfa á því að halda að geta greint aðalatriði frá aukaatriðum á skjótan hátt.“ Skúli sagði að þjónusta íslenskra markaðsrannsókna skiptist í þrjú meginsvið. í fyrsta lagi væri um að ræða almennar markaðsrannsóknir og kannanir en undir þann þjónustu- þátt flokkast m.a. spurningavagnar, sem fyrirtækið framkvæmir mánað- arlega, ýmsar sérrannsóknir og við- talskannanir. I öðru lagi væri um að ræða þjónustueftirfylgni og í þriðja lagi símaþjónusturannsóknir. „Stjórnendur íslenskra fyrirtækja eru í vaxandi mæli famir að leita eftir þjónustu á borð við þá sem við veit- um,“ sagði Skúli. „Menn hafa áttað sig á því að mistök í markaðssetningu geta verið mjög dýrkeypt og væri vissulega hægt að nefna mörg dæmi um slíkt. Með öflugum og markviss- um markaðsrannsóknum er unnt að komast hjá mörgum mistökum og ná betri árangri í rekstri. Markaðsrann- sóknir eru í raun fjárfesting í upplýs- ingum sem eiga að skila arði. Mark- aðsrannsóknir eiga að leiða til bæði fleiri og betri ákvarðana og gefa vís- bendingu um ný eða fleiri tækifæri og gera alla ákvörðunartöku auðveldari og markvissari en ella. Þannig geta þær verið fyrirtækjum mikil stoð við stefnumótun og uppþyggingu mark- aðsáætlana. Við höfum líka orðið þess varir að markaðsrannsóknir skapa já- kvætt viðhorf og andrúmsloft innan fyrirtækjanna sem við erum að vinna fyrir. Metnaður starfsfólksins hefur aukist svo og áhugi þess á viðskipta- vinunum og þörfum þeirra.“ Skúli sagði að vitanlega væri það mjög mismunandi hverjar þarfir fyrir- tækjanna, sem þeir vinna fyrir, væru. „Við byrjum á því að gera áætlun um það hvað fyrirtækið þurfi að fá út úr könnunum og hvernig það geti síðan nýtt sér þær upplýsingar sem við öfl- um. Næsta skref er upplýsingaöflunin sjálf. Segja má að við förum bæði hefðbundnar og óhefðbundnar leiðir í upplýsingaöflun. Hefðbundnu aðferð- irnar eru símakannanir, svokallaðir spurningavagnar, en úrtakið í slíkum könnunum er 1.200 aðilar úr þjóð- skrá. Þá bjóðum við einnig upp á úr- Forráðamenn í atvinnulífinu gera sér æ betri grein fyrir nauðsyn þess að þekkja viðhorf almennings. tök úr afmarkaðri hópum, t.d. eftir búsetu eða aldri. Óhefðbundnu leið- imar eru síðan viðtalskannanir við einstaklinga eða hópa, vettvangs- athuganir, atferlisrannsóknir og ann- að slíkt." Um þann þátt starfseminnar, sem Skúli kallaði þjónustueftirfylgni, sagði hann að sú rannsóknaraðferð hefði þá sérstöðu að hún gæti verið mikilvægt verkfæri í sjálfri markaðssetningunni á ákveðinni vöru eða þjónustu og þannig væri líka hægt að afla upplýs- inga um viðhorf viðskiptavina til ákveðinnar vöru eða þjónustu. Við framkvæmd slíkrar könnunar væri leitað til viðskiptavina með reglulegu millibili eða eftir að ákveðinn tími væri liðinn frá því að þeir hefðu keypt vöru eða þjónustu. Markmiðið með þessu væri að afla upplýsinga um árangur fyrirtækisins og starfsmanna þess, leita eftir nýjum tækifærum til þess að auka sölu og bæta þjónustu, vekja almennt traust á fyrirtækinu og veita sölumönnum og starfsfólki hvatningu og aðhald. Með þessu móti berst vitneskja til fyrirtækisins um kvartan- ir viðskiptavina frá fyrstu hendi. Skúli sagði að svokallaðar síma- þjónusturannsóknir væru sniðnar að bandarískri fyrirmynd og hefðu að hluta til verið hannaðar í samvinnu við Stjórnunarfélag íslands. Þá er kannað hvernig símaþjónusta viðkomandi fyrirtækis sé og hvemig hún virki á viðskiptavininn. Við hringjum í við- komandi fyrirtæki og metum á fjórða tug atriða í hverju símtali. Meðal at- riða, sem könnuð eru, má nefna þekkingu starísmanna á vöru eða þjónustu fyrirtæksins, hvernig af- greiðslu viðskiptavinir fái í gegnum síma, hvemig kurteisi og viðmót starfsmanna sé til viðskiptavinanna, gerðar eru tímamælingar o.fl. „Við höfum fengið mjög góðar und- irtektir hvað varðar starí okkar,“ sagði Skúli Gunnsteinsson. „Ég held að forráðamenn íslenskra fyrirtækja og stofnana séu farnir að láta það skipta sig mun meira máli en áður hvert viðhorf almennings til fyrir- tækjanna sé enda má öllum ljóst vera að það ræður jafnan miklu um vel- gengni þeirra. Kannski má segja að oft hafi verið þörf en nú sé nauðsyn þegar allt viðskiptaumhverfið er að taka miklum stakkaskiptum í kjölfar þeirra breytinga á viðskiptaháttum sem nú eru að verða í Evrópu. ísland er ekki lengur einangrað land þar sem nægir að framleiða vöru og henda henni síðan á markaðinn í þeirri von að hann taki við henni. Þvert á móti er mjög áríðandi að við séum þess með- vituð að slagurinn er harður og við munum eiga í vaxandi samkeppni við aðila og fyrirtæki sem byggja á þró- uðu markaðsstarfi sem grundvallast á ítarlegum rannsóknum. Þess vegna má segja að það, sem við erum að gera, sé fullkomlega í takt við hinn nýja tíma. Við höfum sannarlega ekki þurft að kvarta yfir verkefnaskorti. Við höfum þegar gert samninga við nokkur fyrirtæki um að veita þeim aðstoð í formi markaðsrannsókna og markaðsráðgjafar og samningar við enn fleiri eru á döfmni hjá okkur. Við erum fullir bjartsýni og metnaðar. Við teljum að í hönd fari spennandi tími sem eigi að færa okkur íslendingum fjölmörg tækifæri, bæði hér á heima- markaði og erlendis, ef við höldum rétt á spilunum." 50
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.