Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Side 14

Frjáls verslun - 01.02.1992, Side 14
FRETTIR ÞEIR KUNNA AÐ RAÐ- STAFA SKATTPENINGUM Á líflegum morgun- verðarfundi Verslunar- ráðsins á dögunum um skattlagningu eigna og eignatekna, þar sem Baldur Guðlaugsson hafði framsögu, var Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbank- ans, einn þeirra sem fengnir voru til að segja álit sitt á málinu. Sverrir kom með marg- ar hnyttnar athugasemd- ir, eins og við mátti búast. Hann hafði m.a. áhyggjur af framgöngu al- þingismanna þegar til þeirra kasta kæmi að setja lög um svo flókið mál sem skattlagning eigna og eignatekna er. Bankastjórinn sagði eitthvað á þá leið að hann hefði átt hvað lengstan starfsdag með mönnum sem höfðu ekkert vit á skattamálum og lögðu sig ekki eftir því að skilja þau. Það hafi verið á al- þingi. En Sverrir sagðist engum hafa kynnst þar sem taldi sig ekki hafa vit á því hvernig ætti að ráð- stafa skattpeningum. Á fundinum voru menn sammála um að skatt- lagning eigna og eigna- tekna væri afar flókið og vandmeðfarið mál. Höfðu ýmsir áhyggjur af því að svo mikil tímapressa yrði lögð á þá nefnd, sem vinn- ur að málinu, að út úr starfi hennar gæti komið hættulegur óskapnaður. Gunnar Helgi Hálfdán- arson sagðist ekki kunna að nefna réttláta leið til að eyða því ranglæti sem nú viðgengist. Hann kvaðst óttast að niður- staðan yrði sú að einung- is bættist við ranglætið. Guðmundur Hauksson vakti athygli á því að hinn 1. janúar 1993 rynni upp sá dagur að Islendingar mættu flytja sparifé sitt óhindrað til útlanda. Það gæti leitt til fjármagns- flótta úr landinu, ef illa tækist til um lagasetn- ingu vegna skattlagning- ar eignatekna og fólki þætti vegið að sparifjá- reigendum. Almennt voru menn þeirrar skoðunar að hyggilegt væri fyrir stjórnvöld að hrapa ekki að neinu. Sverrir bankastjóri. Hermannsson, SALTSILDARMALIÐ: LANDSBANKINN VANN HEIMAVINNUNA FRETTABREF LANDS- BANKANS SENDIR STJÓRNVÖLDUM FÖST SKOT Talsverð átök urðu milli Landsbankans og ríkisstjórnarinnar vegna saltsíldarmálsins sem upp kom nú eftir áramót- in þegar Landsbankinn þurfti að taka afstöðu til beiðni síldarverkenda um að hann lánaði utanríkis- viðskiptabanka Rússa verulegar fjárhæðir vegna tímabundinna erf- iðleika þeirra. I Fréttabréfi Lands- bankans, sem út kom um mánaðamótin janúar — febrúar, er viðtal við Barða Árnason, aðstoðar- bankastjóra Alþjóðasviðs Landsbankans. Hann stendur fastur á því að Landsbankinn hafi einn unnið heimavinnuna í þessu máli. Barði telur að undirbúningur bankans hafi allur verið með eðli- legum hætti. Hann sendir L Landsbanki íslands The National Bankof lceland stjórnvöldum hins vegar föst skot, einkum vegna opnunar útflutnings- tryggingadeildar Ríkis- ábyrgðarsjóðs, sem hefur verið lokuð í áratug: „Opnun þessarar deild- ar hjá Ríkisábyrgðasjóði sýnir best í hvert öng- stræti stjórnvöld eru komin í þessu máli. Þessi tryggingardeild hefur aldrei verið neitt nema nafnið eitt og eftir því, sem ég best veit, var aldrei hægt að kaupa þar neina tryggingu sem nokkru næmi. Undanfar- in 10 ár a.m.k. hefurþessi trygginadeild verið gjör- samlega týnd. Nú á hún allt í einu að vera í stakk búin til að ábyrgjast 250 milljónir króna. Já, kraftaverkin gerast enn, hvað sem hver segir. En gera menn sér al- mennt ljóst hvað þetta þýðir? Það þýðir einfald- lega það að ríkisstjórnin sér sig knúna til að bjarga sjálfri sér fyrir horn með því að veita ríkisábyrgð fyrir þessari upphæð.“ 14

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.