Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 53

Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 53
framboðs afkasta sem verður óend- anlega mikill nema einhver „auka“- afkastageta sé látin vera fyrir hendi. Þó að stjórnendum væri sýnt fram á þessa hluti á stærðfræðilegan hátt og með línuritum þá er nokkuð víst að flestir af þeim myndu svara „aldrei“ ef þeir væru spurðir hversu oft þeir vildu láta starfsfólkið vera aðgerða- laust. Þeir myndu vilja fullt framlag vinnu fyrir hverja greidda krónu í laun. A hinn bóginn er hætt við að óhóflegt magn efnis og ófullgerðrar framleiðslu, vanefndar afhendingar og slæleg tilfinning fyrir flöskuhálsum í framleiðsluferlinu væri áberandi ef litast væri um í viðkomandi fyrirtækj- um. I Bandaríkjunum eru þjónustufyrir- tæki eins og t.d. skyndibitastaðir, bensínstöðvar o.þ.h., staðsett, inn- réttuð og mönnuð að vel athuguðu máli. Oftast er þetta gert með ýtar- legum umferðarmælingum og athug- unum með hermilíkani þar sem reynt er að taka tillit til sem flestra að- stæðna og áhrifaþátta. Niðurstöður slíkrar athugunar veita síðan góða, vel rökstudda vísbendingu um nauð- synlegan mannafla á hverjum tíma, sætafjölda, fjölda afgreiðslukassa o.s.frv., semsagt engar ágiskanir út í bláinn! Til að öðlast trú á skyldleika alka þeirra flóknu atriða, sem mynda sam- spil nútíma framleiðslu, þá þurfa stjórnendur aðferðir sem gera þeim kleift að setjast við tölvu og „leika“ sér ofurlítið með líkan af sínu kerfi og átta sig sjálfir á umræddum skyld- leika. Eftir að hafa reynt þetta má búast við að þeir sömu fái tiltrú og fari að leggja traust á hvernig lögmál stærðfræðinnar eru allsráðandi í heimi framleiðslunnar. Hermilíkön fyrir tölvur, hönnuð með sama hætti og flest fólk hugsar, gera kleift að gera tilraunir og að setja fram niðurstöður á myndrænan hátt, bæði beint og grafískt. Þetta gæti veitt þeim, sem ekki eru sérfróðir á tilteknu sviði, þá hugsýn sem við- komandi gæti auðveldlega gripið og tileinkað sér. Þær framfarir, sem orðið hafa í seinni tíð varðandi vél- og hugbúnað til gerðar á tölvulíkönum, hafa orðið til að bjóða upp á þessa miklu möguleika. VEITIR YFIRSÝN OG RÖKSTUDDA VÍSBENDINGU Hermilíkön gera kleift að skoða samtímis öll hin flóknu og oft ruglings- legu innbyrðis samskipti sem átt geta sér stað í framleiðsluferlinu og erfitt er annars að fá yfirsýn yfir. Hægt er að hanna líkön af einhverjum tiltekn- um viðhorfum í framleiðslukerfum til að ná fram betri nýtingu og meiri krafti úr framleiðslugetunni, minnka efnismagn í framleiðslunni, ná að standast áætlun í afhendingum, minnka ijárfestingar og jafna fram- leiðslu. Að gera hermilíkan af raunveru- legu kerfi veitir möguleika á að koma auga á hvar hinir raunverulegu flösku- hálsar eru og hvernig þeir hugsanlega færast til við breytt álag í framleiðsl- unni, hver sé hinn raunverulega virkni og nýting allra frumþáttanna, s.s. verksmiðju, tækja og mannafla. Á bæði fljótlegan og ódýran hátt væri hægt að sjá hvaða vélastærðir væru heppilegastar áður en ráðist er í fjár- festingar, ákvörðun tekin um fjölda og afkastagetu flutningstækja o.s.frv.. Með því að eiga hermilíkan af t.d. verksmiðju eða frystihúsi geta menn auðveldlega athugað áhrif auk- inna afkasta véla, manna eða flutn- ingstækja og þá um leið hvort slík aukning sé réttlætanleg. Flestu fólki hættir til að hugsa um orsakir og afleiðingar og framkvæma aðgerðir með tilliti til skemmri tíma. Samt er það svo að langtíma áhrif eru venjulega öndverð við hin skamm- tíma bundnu sem leiðir til þess að sé til lengri tíma litið þá reynast oft ýms- ar ákvarðanir rangar. Þetta á einkum við í stjórnmálum og hagfræði. Hermilíkön bjóða upp á möguleika til að „skoða ókomna framtíð" með því að byggja líkön, sem hægt er að gera tilraunir á með því að gefa breytilegar forsendur, og þannig að kanna bæði skamm- og langtíma áhrif ýmissa þátta. Þannig má síðan reyna að ná því besta jafnvægi milli þessara áhrifa sem hægt er. NIÐURLAG FYRRIHLUTA Fram til þessa hafa flest hermilíkön verið gerð af verkfræðingum, vís- indamönnum, tölvusérfræðingum og einstaklingum með mikla stærðfræði- lega getu. Þetta gæti fengið gerð hermilíkana til að líta út fyrir að vera eingöngu viðfangsefni fyrir langskó- lagengið fólk á vísindasviði. Samt er óhætt að segja að gerð hermilíkana sé fremur list en vísindi. Reynslan hefur sýnt að fólk, sem ekki hefur mikla sérþekkingu varðandi stærðfræði, dregst engu að síður að þessu við- fangsefni þegar því hefur verið kynnt málið. Hermilíliön eru mjög gagnleg við framleiðslustjórnun og notkun þeirra hefur breiðst hratt út samfara framförum í menntun á sviði tölvu- tækni ásamt bættum vél- og hugbún- aði. 53

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.