Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 59
Gengið frá stofnun íslenskrar verslunar. Frá vinstri: Bjarni Finnsson formaður Kaupmannasamtakanna, Sigfús
Sigfússon formaður Bílgreinasambandsins og Birgir R. Jónsson, formaður Félags íslenskra stórkaupmanna.
stofnað samtökin íslenska verslun,
eru sennilega kaupendur að 50%
þeirra flutninga sem eiga sér stað til
landsins. Eimskip og Samskip hafa þá
flutninga með höndum. Fyrrnefnda
félagið fer með stóran hlut atkvæða í
Verslunarráðinu og það gefur auga-
leið að hagsmunir þess hljóta að hafa
áhrif á stefnumörkun ráðsins varð-
andi skipulag flutningastarfseminnar,
gjaldskrármál og aukið frelsi í flutn-
ingsmiðlun til landsins, svo eitthvað
sé nefnt.
Talsmenn Verslunarráðsins telja
hins vegar af og frá að þar sé hallað á
einn né neinn og segja að einstakl-
ingar og fyrirtæki í heildverslun og
vörudreifingu hafi ætíð haft rík áhrif
innan ráðsins og tekið virkan þátt í
aðgerðum Verslunarráðsins á sviði
vöruviðskipta, skatta- og tollamála.
BREYTINGAR í EVRÓPU
Það er ekki einungis hér á landi
sem skipulag samtaka atvinnurek-
enda hefur verið að breytast. Þróunin
í Evrópu hefur verið sú að félög innan
verslunarinnar hafa verið að þjappa
sér saman í eigin samtök, m.a. af
þeirri ástæðu að innan Evrópubanda-
lagsins er þrýst á um stofnun þeirra til
að fá álit á ýmsum sérhagsmunamál-
um í þessari atvinnugrein.
VERSLUNARRAÐ
ÍSLANDS
Upphaf þeirrar þróunar innan EB
má rekja til þess þegar stofnað var
sérstakt ráðuneyti hjá framkvæmda-
stjóm EB árið 1978 er skyldi fara með
málefni verslunarinnar. Um leið voru
stofnuð sérstök ráðuneyti fyrir aðrar
atvinnugreinar. Þetta kallaði á skipu-
lagsbreytingu hjá félagasamtökum
innan greinanna í þá veru að þau urðu
faglegri en áður. Upp úr þessu urðu til
tvö meginfélög atvinnurekenda í
verslun innan EB. Fyrirtæki í smá-
söluverslun stofnuðu með sér CECD
og þau, sem sinna milliríkjaviðskipt-
um, eru í FEWITA.
A Norðurlöndunum hófst þessi
þróun með stofnun einna samtaka að-
ila í versluninni í ársbyrjun 1990. Það
sama hefur gerst í Svíþjóð með stofn-
un félagsins Svensk Handel en þang-
að sækja hin nýju íslensku samtök
einmitt sína fyrirmynd. Með stofnun
íslenskrar verslunar hefur þetta
evrópska skref því verið stigið og í
59