Frjáls verslun - 01.02.1992, Page 38
TOLVUR
stem Disks Memory Benchmarks Report Quit! Fl=
Computer Name: Built-in BIOS: Main Processor: Math Co-Processor: Video Adapter: Mouse Type: IBM PC IBM, Monday, 8 November 1988 Intel 8088, 4.77 MHz None Monochrome (MDA) None
Hard disks: SIM Floppy disks: 360K 360K Bus Type: Serial Ports: ISA (PC/AT) 1 1
Keyboard Type: Operating System: 83-key DOS 3.S0
DOS Memory: Extended Memory: Expanded Memory: 640K OK OK
V
Norton Utilities: Kerfisupplýsingar; uppbygging vélbúnaðarins.
Next
Previous
ize system informaticm
Pr int
Cancel
illí
System Inf
þeirra er stolið. Til þess að minnka
áhrif þjófnaðarins á tekjur fyrirtækis-
ins hefur Peter Norton valið þá leið að
uppfæra pakkann reglulega og inni-
fela þá fullkomnari útgáfur af kerfum
eða ný kerfi.
VANDAÐ VERKFÆRI
Norton Disk Doctor var nýtt kerfi
sem kom fyrst með útgáfu 4.5 af Nor-
ton Utilities, eða NU, og var ein af
helstu nýjungunum í þeirri útgáfu.
Kerfið vinnur með öllum útgáfum af
DOS í 3. flokki og einnig í 4.0 þótt það
sé ekki tekið sérstaklega fram.
Nýjasta útgáfan á markaðnum er
NU 5.0 (6.0 mun vera að koma á
markaðinn í Bandaríkjunum). Sú út-
gáfa er hins vegar talsvert frábrugðin
4.5. Hún er fyrir grafískan skjáhátt
sem m.a. þýðir að vinnslu íkerfinu má
stjórna með mús. NU 5.0 tekur miklu
meira rými á diski og hentar því ekki
venjulegum PC og AT tölvum. NU
5.0 fæst hjá flestum helstu seljendum
forrita og kostar rúmar 16 þúsund kr.
með vsk.
Án þess að fara nákvæmlega út í að
lýsa eldri hjálparforritunum í útgáfu
4.5 má nefna að í henni eru m.a. forrit
til þess að endurstofna skrár sem hef-
ur verið eytt af diski (með DELETE
eða skel í notendaforriti sem notar
DELETE), forrit til að „taka til á
diski“, þ.e. að þjappa gögnum saman
og auka virkt geymslurými en við það
eykst sóknar- og vistunarhraði. Þessi
kerfi eru höfð saman undir einum
hatti í útgáfu 4.5 og ræst með NI
(Norton Integrator). Stjóm og
vinnsla fer öll fram með skel sem inni-
heldur aðgengilegar valmyndir og eru
kostir valdir með örvahnöppum.
í Utilities 4.5 er valmyndin byggð
þannig upp að til hliðar er textadálkur
„Peter Norton fór ekki í
forstjóraleik eða gerðist
„tölvugúrú“ eins og títt er í
tölvuævintýrum, heldur hélt
sínu striki og þróaði og
endurbætti kerfin stig af stigi
auk þess að bæta við nýjum
kerfum í pakkann."
í þessum textadálki er listi yfir föll
þeirra breyta sem hægt er að nota en
þau má síðan flytja í skipanalínu neðst
á skjánum.
Fyrsti valkosturinn nefnist „Batch
Enhancer“ eða BE. Með honum er
hægt að búa til glugga á skjánum og
setja inn í hann valmynd með ræsi-
lyklum fyrir skipanaskrár (bat-skrár).
Með þessu móti getur notandinn búið
til einfalda skel sem getur verið til
hagræðis þegar nota þarf mismunandi
forrit. í stað þess að ræsa þau frá
drifkvaðningu er hægt að gera það
með örvahnappi og RETURN úr val-
mynd. Innifalið í BE er prófun sem
gerir kleift að reyna alla notkunar-
möguleika, þ.e. hvort BE-uppsetn-
ingin virki fullkomlega í DOS um-
hverfinu.
STÆLLINN
Án þess að fara út í langt mál skal
þess getið að með NU kerfinu er
hægt að gera ýmsa hluti sem venju-
legir notendur kynnu áreiðanlega vel
að meta og gera skeljar skemmtileg-
ar. Má þar nefna notkun lita og þann
möguleika að láta glugga gliðna sund-
ur og hverfa af skjánum; „súmma út“
eins og það heitir á fagmálinu.
Ef benda ætti á dæmi um notkun
þessa verkfæris mætti nefna þann
möguleika að glæða venjulegt DOS
umhverfi lífi: í stað þurrkuntulegrar
drifkvaðningar birtast gluggar á
skjánum, í lit, og í þeim listi yfir þá
vinnslu sem notandinn á kost á að
velja.
HJÁLPARFORRITIN
Af öðrum möguleikum má nefna
„Disc Information" sem fer yfir disk-
inn og gefur notanda upplýsingar um
ástand hans og hvernig hann er nýttur
ásamt ýmsum upplýsingum um drifið
sjálft og þann hugbúnað (stýriplötu)
sem stjórnar því. Hægt er að raða
upp skrá yfir innihald disks eftir skrá-
arheiti, eftirnafni, stærð, dag- eða
tímasetningu. Hér er ástæða til að
geta þess að endurröðun yfirlits má
vista þannig að hún birtist þegar skip-
unin DIR er gefin í stýrikerfmu.
Helsti kosturinn er sá að með þessu
móti er hægt að láta þær skrár, sem
oftast eru sóttar, vera efst á skjánum.
Með „Disc Tester“ er hægt að
yfirfara og prófa disk, t.d. með því að
láta tölvuna lesa alla sektora (geira),
allar skrár eða hvort tveggja. Einnig
má prófa að lesa einstaka skrá ef not-
andinn hefur illan bifur á henni.
Með „File Attribute“ er hægt að
leita uppi skrár eftir einkennum
þeirra, t.d. finna og raða upp skrám
sem tilheyra DOS stýrikerfinu. Þetta
kerfi er talsvert fullkomnara en það
sem innifalið er í DOS. (Með ATT-
RIB-skipuninni í DOS 3.1 eru skrár
38