Frjáls verslun - 01.02.1992, Síða 61
HAFA SKIPT UM BREFHAUS
- SEGIR VILHJÁLMUR EGILSSON HJÁ
VERSLUNARRÁDINU
stöðuna til að berjast fyrir sínum
hagsmunamálum og þess vegna varð
íslensk verslun til. Um leið erum við
að taka þátt í þróun sem hefur átt sér
stað í Evrópu með stofnun „hreinna"
samtaka atvinnurekenda í verslun-
inni.“
Þess má geta að í framkvæmda-
stjórn Islenskrar verslunar sitja þau
Bjarni Finnsson í Blómavali, Birgir R.
Jónsson hjá Magnúsi Kjaran hf., Sig-
fús Sigfússon í Heklu, Sigrún Magn-
úsdóttir í versluninni Rangá, Kristján
Einarsson hjá Rekstrarvörum hf.,
Ragnar Ragnarsson í Jöfri, Magnús
E. Finnsson framkvæmdastjóri
Kaupmannasamtakanna, Stefán S.
Guðjónsson framkvæmdastjóri Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna og Jón-
as Steinarsson framkvæmdastjóri
Bílgreinasambandsins.
FLUTNING AKAU PARÁÐ STOFNAÐ
Aður en Islensk verslun var stofn-
uð í janúar sl. hafði Félag íslenskra
stórkaupmanna lengi vel fyrir sér
stofnun sk. flutningakauparáðs. Slík
félög eru starfandi víða erlendis og í
Evrópusamtökunum eru um 220 þús-
und fyrirtæki. Tilgangur þeirra er sá
að vera sameiginlegur málsvari flutn-
ingakaupenda á öllum sviðum flutn-
inga. Nú hefur þetta ráð verið stofnað
á vegum Islenskrar verslunar og við
spurðum Birgi R. Jónsson nánar út í
þetta fyrirkomulag.
„Félögin í íslenskri verslun eru
mjög stórir flutningakaupendur og við
teljum að meira en helmingur þessar-
ar þjónustu sé keyptur af okkar fyrir-
tækjum. Þá er átt við flutninga á sjó, í
lofti og á landi, póst- og fjarskipta-
flutninga og afnot af höfnum og flug-
völlum auk þess sem við kaupum
ýmsa þjónustu er snertir vöruflæðið
sjálft. Þeir kostnaðarliðir, sem þessu
eru samfara, skipta miklu um afkomu
verslunarinnar og vöruverðið í land-
inu. Um leið hafa þessi atriði áhrif á
samkeppnisstöðu okkar fyrirtækja
gagnvart útlöndum og það liggur fyrir
að samkeppnisaðilar þar búa við mun
lægri gjöld en við á því sviði.“
Meginhlutverk Flutningakaupa-
ráðsins er að sögn Birgis það að beita
sér fyrir fullu frelsi í samgöngum inn-
an- og utanlands. Hvað á hann við
„Stofnun íslenskrar versl-
unar mun ekki hafa nein áhrif á
okkur. Verslunarráð íslands
verður 75 ára á þessu ári og við
horfum með mikilli bjartsýni
til næstu 75 ára. Verslunarráð-
inu er á engan hátt ógnað þótt
þessi þrjú félög búi sér til sam-
eiginlegan bréfhaus,“ sagði
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs-
ins, í samtali.
Vilhjálmur sagði það hins vegar
sitt álit að í íslenskri verslun væri
ekki við neina andstæðinga að etja.
Menn hefðu auðvitað frelsi til að
berjast fyrir sínum hagsmunamálum
á eigin vettvangi en heppilegra væri
að menn stæðu saman um sína
hagsmuni í öflugum samtökum
manna í atvinnurekstri.
„Það er auðvitað rnisskilningur
hjá forystumönnum þessara sam-
taka að betra sé fyrir þau að hasla
sér völl í einhvers konar hreinlífis-
samtökum verslunarmanna. Á því
herrans ári 1992 er það með ólíkind-
um því auðvitað er öll atvinnustarf-
semi nú til dags tengd verslun með
einhverjum hætti. Hvað með iðnfyr-
irtæki sem er bæði í framleiðslu,
innflutningi og sölu á markaði hér
innanlands? í hvers konar samtök-
um ætti það að vera?
Við í Verslunarráðinu vinnum
fyrir viðskiptalífið í heild og vitum að
allri atvinnustarfsemi fylgir kaup og
sala í ákveðnum skilningi. Þess
vegna hlýtur að vera meira í takt við
tímann að fyrirtækin standi saman í
öflugum samtökum á borð við okkar
og ræði þar sín mál í þlíðu og stríðu.
Ef menn eiga eitthvað vantalað hver
við annan er skynsamlegra að ræða
þau mál á sameiginlegum vettvangi
fremur en skiptast á skeytum í
gegnum fjölmiðla."
Við spurðum Vilhjálm út í þá
gagnrýni sem kaupmenn hefðu sett
fram á Verslunarráðið um að það
gæti illa sinnt hagsmunum flutninga-
kaupenda vegna stöðu Eimskips
innan ráðsins.
„Þetta er auðvitað fráleit fullyrð-
ing og á engan hátt makleg ásökun á
Verslunarráðið. Innan þess eru fjöl-
margir keppinautar á mörgum svið-
um. Þannig hefur það alltaf verið og
mun verða áfram. Verslunarráðið er
vettvangur samtaka í öllum atvinnu-
greinum og þar sameinast smáir og
stórir til þess að vinna að framfara-
málum atvinnulífsins í heild sinni.
Við ræðum auðvitað þau mál, sem
eru sameiginleg hagsmunamál, en
einnig sérmál tiltekinna greina. Slíkt
er eðli samtaka á borð við okkar."
61