Frjáls verslun - 01.11.1998, Qupperneq 46
MARKAÐSMÁL
Thule-auglýsingar frá Góðu fólki vöktu verðskuldaða athygli á árinu. Félagarnir sem leika í
auglýsingunum eru danskir fastagestir á ónafngreindri krá í Kaupmannahöfn. Vegur þeirra
hefur nú vaxið þar sem þeir hafa verið fengnir hingað til lands til að leika í nýrri röð
auglýsinga.
□ rjáls verslun bað forsvarsmenn
átta stærstu auglýsingastofanna
að líta til baka yfir árið og segja
lesendum hvað hefði sett svip á það. Þeir
sögðu einnig frá spennandi verkefnum
sem stofurnar hefðu fengist við á árinu.
í svörum þeirra kemur fram að árið
virðist hafa verið mjög annasamt en einnig
má greina breytta hugsun í ýmsu sem
lýtur að auglýsingamarkaði. Breytingar á
fjölmiðlamarkaði, aukin gæðavitund
auglýsenda og meiri kröfur til fjölþættrar
þjónustu frá stofunum. Allt hefur þetta
breytingar í för með sér.
MJÖG MIKIÐ AÐ GERA
„Verkefni hafa verið næg og mjög mikið
að gera en því hafa fýlgt miklar kostn-
aðarhækkanir svo öll þessi umsvif skilja
kannski ekki svo mikið eftir sig,“ sagði
Helgi Helgason, framkvæmdastjóri hjá
Góðu fólki.
„Þetta hef ég grun um að eigi við flest
fyrirtæki í þessari grein.“
Helgi sagði að Gott fólk hefði fengið til
sín nýja og stóra viðskiptavini á árinu og
þeim heföu fylgt spennandi og fjölbreytt
verkefni. Hann nefndi sérstaklega Vífilfell,
Hmdsbankann, Fjárvang og Bifreiðar og
Landbúnaðarvélar í hópi nýrra viðskipta-
vina.
„Eftirminnilegustu verkefni ársins eru
tvímælalaust herferð fyrir Fjárvang í
kringum HM í knattspyrnu, Kaupvarpið
fyrir áskrift að spariskírteinum ríkissjóðs,
Renault herferðin nú í haust, auglýsingar
sem við gerðum fyrir mbl.is og síðast en
ekki síst herferð fyrir Thule bjór sem var
send út í haust, tókst mjög vel og vakti
mikla athygli."
MIKILL VÖXTUR
Jón Sæmundsson, framkvæmdastjóri
Nonna og Manna, sagði að vöxtur væri
umtalsverður milli ára eða um 35-40%.
Hann taldi að þetta ár sem er að líða gæfi
næsta á undan lítið eftir.
„Okkar stærstu verkefni á árinu hafa
verið fýrir Landssímann, Tæknival, Heim-
ilistæki og Lýsingu. Þetta eru ólík verkefni
en öll mjög skemmtileg.“
VORUM MIKIÐÁTALI
„Almennt séð tel ég að umhverfið sem
auglýsingastofur vinna í sé orðið eðlilegra
en það var fyrir nokkrum árum. Auglýs-
ingastofur berjast ekki lengur í bökkum
eins og þær gerðu. Aukin samþjöppun í
atvinnulífinu og stærri fyrirtæki hafa kall-
að á faglegri vinnubrögð og ný kynslóð,
sem hefur tekið völdin, hefur aðra sýn á
auglýsingamál en sú næsta á undan,“ sagði
Þormóður Jónsson framkvæmdastjóri
Fítons um árið sem er að líða.
Hann sagði að verkefni Fítons hefðu
verið margvísleg og skemmtileg á árinu en
umsjón með auglýsingum og kynningu
fýrir símafyrirtækið Tal stæði þar upp úr.
„í fyrsta lagi var þetta gríðarstór her-
ferð og mjög skemmtileg. Þetta var líka
stór viðburður í íslensku viðskiptalífi þar
sem tekist var á við stórveldi. Mér fannst
það sýna faglegan metnað hvernig fyrir-
tækið byggði upp ímynd sína áður en það
lagði út í það verðstríð sem nú stendur
sem hæst.“
GOTT ÁR AÐ BAKI
„Að mínu mati er afgerandi framþróun
að eiga sér stað hvað varðar fagleg vinnu-
brögð meðal auglýsenda. Þeir gera auknar
kröfur til auglýsingastofa og krefjast
heildstæðrar þjónustu. Gott dæmi um slíka
þróun eru ný vinnubrögð Vífilfells í sínum
markaðs- og kynningarmálum," sagði
Hallur Baldursson, framkvæmdastjóri aug-
lýsingastofunnar Yddu.
,Árið hefur verið mjög gott á Yddu að
GOTT ÁR HJÁ AUGLÝSINGA
46
Áriö 1998 hefur veriö gott ár hjá auglýsingastofum. Dæmi eru um aö einstakar
50-60% veltuaukningu milli ára. Þetta helst í hendur viö umtalaö góöœri í
merkjum þess er aukin neysla sem tengist auknum