Frjáls verslun - 01.08.2000, Blaðsíða 32
STJÓBNUN
Hver er sinnar gæfu smiður!
Nám er ferli sem lýkur aldrei og menn þurfa að taka ábyrgð á öflun þeirrar þekkingar
sem þeir telja mikilvæga fyrir sjálfa sig.
erfiðara að stjórna. Prófessor dr. Joseph Kessels, sem er með-
eigandi ráðgjafarfyrirtækisins „The Learning Company" í
Hollandi, heldur því jafnvel fram að ekki sé hægt að stjórna
þekkingu þar sem hún sé einstaklingsbundin, huglæg hæfni
sem hver starfsmaður verði að afla sér. Kessels kýs því að nota
ekki orðið „þekkingarstjórnun" heldur talar hann um „þekking-
arframleiðni". Með þekkingarframleiðni á hann við hæfileika
fyrirtækis til að finna upplýsingar sem skipta máli, vinna úr
þeim og skapa þar með nýja þekkingu og þróa nýja hæfhi. Þess-
ari hæfni verður síðan að dreifa um allt fyrirtækið.
Sjálfsstjórn, samskiptahæfní og heildarsýn mikilvæglr eiginleikar
Dr. Leenamaija Otala er alþjóðlegur ráðgjafi á sviði þekkingar-
stjórnunar, lærdómsfyrirtækja og stöðugrar þekkingaröflunar
og einn af aðalfyrirlesurunum á ráðstefnu um Þekkingarstjórn-
un sem haldin verður 19. október n.k. á vegum Stjórnendaþjálf-
oryggi
Öryggisskáparnir frá Rosengrens
eru traust geymsla fyrir peninga,
skjöl, tölvugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem em í hæsta
gæðaflokki fást í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.
unar Gallups. Dr. Otala er virtur fræðimaður og hefur m.a.
fengið verðlaun fyrir iramlag sitt á sviði stöðugrar þekk-
ingaröflunar. Hún telur að þeir hæfileikar sem einstaklingar
þurfi mest á að halda í dag séu sjálfsstjórn, samskiptahæfni og
heildarsýn.
Með sjálfsstjórn er átt við að fólk geri sér grein fyrir eigin
menntunarþörfum, skilji lærdómsferlið, viti við hvaða aðstæð-
ur það lærir best og geti stjórnað eigin þekkingaröflun. Per-
sónuleg skuldbinding til að nálgast þekkingu og ábyrgð á eig-
in þekkingaröflun er mikilvægur þáttur.
Starf og starfsþróun eru samtengd í dag og það sama gildir
um nám. Vinna er nám og menn vinna og læra með öðru fólki.
Að læra er gagnkvæmt ferli sem krefst samskiptahæfileika.
Við þurfum á samskiptahæfileikum að halda til að spyrja og
miðla upplýsingum, eiga í samskiptum, hlusta, blanda saman
þekkingu og vinna og læra í hópum. Með því að vinna saman
og blanda saman ólíkri þekkingu skapast svo ný
þekking. Nýsköpun er þannig byggð á þekkingu.
Til að skilja betur menntunarþarfir og breyting-
ar í umhverfinu þurfa einstaklingar að hafa heildar-
sýn yfir vinnuna, líf sitt og samfélag. Þeir þurfa að
skilja kerfin sem þeir eru hluti af og hvernig þessi
kerfi virka og bregðast hvert við öðru. Kerfisbund-
in hugsun, að vinna úr upplýsingum og hæfileikar
til að leysa vandamál eru mikilvægir eiginleikar.
Fjölbreyttar lærdómsaðferöir Stöðug þekkingaröfl-
un krefst ijölbreyttra námsaðferða. Fólk er mis-
munandi, hefur mismunandi þarfir og lærir á mis-
munandi hátt. Mikilvægt er þvi að boðið sé upp á
mismunandi lærdómsmöguleika. Við getum t.d.
lært í vinnunni, með því að lesa bækur, með því að
æfa okkur, á skólabekk, á námskeiðum, ein eða í
hópum, eða af öðrum. Við getum lært með því að
taka þátt í verkefnum, í gegnum starfsskipti og/eða
starfskynningar eða með þvi að stunda nám.
Ábyrgð nútímastarfsmannsins stöðug þekk-
ingaröflun gerir okkur kleift að lifa betra lífi. Tæki-
færið til að auka þekkingu sína ætti því að vera eitt
af grundvallarréttindum einstaklinga. Nýjasta kyn-
slóð starfsmanna lítur á hvert starf sem tækifæri tíl
að öðlast nýja hæfni. Til að geta unnið störf morg-
undagsins þarf hver og einn að taka ábyrgð á eigin
starfshæfni og hæfnisviðhaldi (employability).jíj
Bedco & Mathiesen
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Símí 565 1000
Stjórnendaþjálfun Gallup stendur fyrir ráðstefnu um
Þekkingarstjórnun fimmtudaginn 19. október n.k..
Fyrirlesarar verða m.a. Dr. Leenamaija Otala, for-
stjóri Pro Competence Oy Inc. og höfimdur 15 bóka
og 150 greina, Próf. Dr. Peter Woolliams, Riitta
Weiste frá Nokia og Dr. Deborah Swallow.
32