Fregnir - 01.11.1995, Blaðsíða 3
Ný nefnd um gagnagrunn bókasafna
Menntamálaráðuneytið hefur skipað nefnd til að gera tillögur um
hagkvæmustu leiðina til þess að tengja bókasöfn landsins í stafrænt
upplýsinganet og gera þeim kleift að leggja gagnagrunn sinn inn í
sameiginlegan gagnagrunn sem væri aðgengilegur öllum lands-
mönnum. Þannig yrði leitarhæfni safna bætt, einkum almennings-
bókasafna á landsbyggðinni. Nefndin skal taka mið af þeirri þróun
sem orðið hefur í tölvu- og upplýsingamálum og þeim kröfum sem
þess vegna verður að gera til safnanna. I því sambandi skal nefndin
taka til athugunar tillögu að frumvarpi til laga um almennings-
bókasöfn frá árinu 1991, sem fyrir liggur í ráðuneytinu, og koma
með breytingartillögur þar að lútandi ef þörf krefúr að mati
nefndarinnar. Nefndin skal leggja fram fastmótaðar tillögur sem
kostnaðarmat fylgi. í nefndinni eiga sæti Hólmkell Hreinsson,
Amtsbókasafninu á Akureyri, Hrafn Harðarson, Bókasafni
Kópavogs, Þórdís Þorvaldsdóttir, Borgarbókasafni, Þórir
Ragnarsson, Landsbókasafni Islands - Háskólabókasafni og Þóra
Óskarsdóttir bókafúlltrúi sem er formaður nefndarinnar.
Fregnir 3-4/95 3